Heimsmynd - 01.07.1993, Page 28
„Það er allt annað kaliber
á íslenskri danstónlist í dag
en var í gangi fyrir ári síðan,
það hefur orðið rosalega
mikil framför. Mikið af
íslensku tónlistinni er orðið
að minnsta kosti sambæri-
legt við það besta úti í heimi.
Strákana hérna á íslandi
vantar einna helst aðgang að
fullkomnari stúdíóum og
græjum, þeir eru að leika sér
heima með lítil tæki og mér
finnst ótrúlegt
hvað kemur út úr
því." Sá sem hef-
ur orðið er Kiddi
kanína, eigandi
hljómplötuversl-
unarinnar Hljóma-
lindar, helsta
söluaðila óháðrar
tónlistar á íslandi í
dag. Strákarnir
sem hann talar
um eru Þórhallur,
Grétar, Maggi,
Agnar, Leon, Benni
og Himmi sem eru
allir plötusnúðar
og búa til eigin
danstónlist.
Fyrir 12 til 13
árum var danstón
listin uppi á yfir-
borðinu en rokkið,
þá í pönkbúningi, neðan-
jarðar. Núna hefur þetta
snúist við. Það er í dans-
tónlistinni sem gerjunin á sér
stað og framsæknir hlutir eru
danstónlist
í eldhúsinu
heima...
að gerast meðan rokkið
höktir í stað. Einu sinni voru
flestir bílskúrar bæjarins fullir
af krökkum með gítara, bassa
og trommur en í dag eru
krakkarnir með tölvur,
samplera og hljómborð.
„Það er danssprenging í
uppsiglingu," segir Kiddi og
hljómar eins og hann viti
hvað hann er að tala um. En
danstónlist þarf ekki að vera
það sama og danstónlist.
„Það sem er spilað í útvarp-
inu og kallað danstónlist er
útþynnt drasl og allt öðruvísi
en okkar tónlist," segir
Þórhallur. „Þetta er
bara tónlist sem er
verksmiðjuframleidd
fyrir útvarp og fólk
sem veit ekki hvað
almennileg danstón-
list er," bætir Leon
við. Til aðgreiningar
frá útvarpspoppinu
má kalla alvöru
danstónlistina sveim
sem er samheiti yfir
mörg afbrigði innan
tónlistarstefnunnar.
Sjálfir tóku strákarnir, sem
mynda nokkrar hljómsveitir,
sig saman og gáfu út á eigin
kostnað tólf tommu vynil-
plötu undir merkinu: IOU.
Meirihlutinn af upplaginu fór
til London og þessa dagana
er platan að gera góða hluti
úti í hinum stóra heimi, sein-
ast þegar fréttist var hún
28
HEIMSMYIMD
J Ú L í