Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 31

Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 31
var júgóslavneskur Tyrki frá Makedóníu, og bjó eins og við á Norðurbrú í Kaupmanna- höfn. Þegar ég sagðist gjarnan vilja kynnast þessu fólki sem best sagðist hann myndi koma með „eintak“ næsta dag. Sabri efndi heit sitt og þann dag kom hann með kunningja sinn Sadri Astono- vitcki, hálfþrítugan, lávaxinn og hnotubrún- an mann sem leiddi við hönd sér eina af fjórum dætrum sínum. Þannig hófust kynni okkar sem efldust þann tíma sem við bjugg- um í Kaupmannahöfn. Hann var 25 ára en kona hans þremur árum yngri og þó áttu þau fjögur börn, allt stúlkur. Hann var at- vinnulaus og hún skúraði gólf. Þótt fjárhag- ur þeirra virtist ekki með þeim hætti að skynsamlegt væri að eignast fleiri börn kenndu rótgrónir siðir þjóðar þeirra að þau yrðu að reyna að eignast son. Sonur væri eina haldgóða öryggið í ellinni. Nokkrum mánuðum eftir að við kynnt- umst og frú Astonovitscki hafði tekið að gildna undir belti spurðu þau hvort við vildum taka að okkur barnið sem hún bar undir belti ef það reyndist vera stúlka. „Fimm börn eru okkur ofviða,“ sögðu þau, „og svo verðum við að halda áfram þar til við eignumst dreng.“ Spurningin kom svo flatt upp á okkur að okkur láðist að svara, enda hálf vantrúuð á tilboðið. Þeir sem þekktu sígauna betur en ég sögðu okkur nokkru síðar að boðið hafi að öllum líkind- um verið af heilindum meint, enda barnið ekki gjöf, öllu heldur lán í trausti þess að við tryggðum þvi bjarta framtíð. Þegar við vorum loks tilbúin með svarið var fjölskyldan flutt og hafði ekki skilið eftir sig nein spor. Enginn virtist vita hvert þau höfðu farið, þau voru horfin. Þótt ég haldi ekki í vonina um að fá bréf frá Sadri Astonovitcki og fjölskyldu í pósti geymi ég minningar um skemmtileg kynni við litríkt fólk sem birtist og hvarf. Stundum verður mér hugsað til telpnanna litlu, brúnna á hörund með tinnusvart hár og dökkbrún augu sem geisluðu af lífsgleði. Þrátt fyrir velmegun íslensks samfélags þykist ég þess fullviss að stúlkubarnið sem okkur bauðst hefði farið mikils á mis ef við hefðum skilið betur dýptina og einlægnina í spumingunni og svarað henni játandi. Og enn fylgist ég með sígaunum úr fjar- lægð, heillaður af lífsþorsta þessa sérstæða fólks og forvitinn um lifshætti sem em okkur svo framandi. Á liðnu hausti las ég grein í þýsku tímariti sem sagði frá „neyðarfundi” evrópskra sígauna sem hefði verið haldinn í Amsterdam fyrir skömmu. Þar var skorað á þjóðir heims að berjast gegn ofsóknum „Fjórða ríkisins" á hendur sígunum. Ástæða þessara ákalls er sú að fyrir skömmu undirritaði þýski innanríkis- ráðherrann Rudolf Seiter tilskipun um að flytja alla sígauna sem höfðu komið frá Rúmeníu til baka. Að minnsta kosti þrjátíu þúsund sígaunum hefur verið safnað saman í tvö hunduð og fimmtíu borgum og bæjum og bíða þess að verða sendir mót óvissum örlögum í Rúmeníu. Þeir hafa engan rétt til að kæra nauðungarflutningana og eiga sér „Þetta er önnur ílótta- tilraun Peters Chitschdy. Til að reísa honum íyrir hið óskiljanlega tungu- mál var efrivör hans skorin burt og hún steikt, en hann síðan neyddur til að éta hana." fáa málsvara. í Þýskalandi hafa fréttir af fjöldaflutningunum, sem eru einsdæmi frá falli Þriðja ríkisins, ekki vakið neina sérstaka eftirtekt. Á undanförnum vikum hafa sígaunar mátt þola ótal árásir nýnasista sem hafa ráðist á búðir þeirra með bensínsprengjum og bareflum. Með því að vísa þeim úr landi án margra orða hafa þýsk stjórnvöld enn einu sinni gripið til ráðs sem róar einhverja um stund en leysir engan vanda. Píslarsaga sígauna í Evrópu er ekki ný af nálinni. í aldir hafa þeir verið á flótta undan menningunni, stoltir og litríkir ferða- langar sem hafa haldið fast í sérkenni sín og siði þrátt fyrir ótal tilraunir til að láta þá hverfa í fjöldann. Sígaunar eru komnir frá Norður-Indlandi og athuganir hafa leitt í ljós að þaðan hafi þeir farið einhvern tíma á bilinu frá 700- 1000 eftir Krist. Koma sígauna til Evrópu er sveipuð óvissu, eins og svo margt í sögu þeirra. Fyrst er getið um ferðir þessa fólks í Evrópu í heimild sem skrifuð var af kristnum munki á eynni Krít árið 1322. Hann lýsir framandi aðkomufólki og segir meðal annars: „Þeir eru sjaldan lengur en þrjátíu daga á hverjum stað og flytjast stöðugt búferlum með sín smáu, svörtu tjöld, eins og vansælt flóttafólk sem Guð hefur útskúfað." í fyrstunni vakti koma þeirra til Evrópu fádæma athygli. Enginn þekkti til uppruna þeirra og engu var líkara en þeir spryttu upp úr jörðinni. Forvitnir bændur og borg- arbúar þustu á móti þeim með útrétta arma og vinarþeli svo miklu að það breyttist stundum í gleypugang. Fáum nægði að skoða og grandgæfa þetta ókunna fólk á alla kanta og vegu, heldur var einnig freist- andi að fá tækifæri til að skyggnast inn í það sem flestum er hulið, bæði fortíð og framtíð; þann starfa höfðu spákonur sígauna. Sígaunar komu til Evrópu á þeim tíma er veldi kirkjunnar var hvað mest. Með valdi sínu yfir sálum fólksins skóp kirkjan þá samhygð sem varð ein af höfuðstoðum lénsskipulagsins. Með lærðum tilvitnunum í heilaga ritningu var fáfróðri alþýðu kennt að una við sitt í þeirri vissu að henni myndi verða umbunað á efsta degi. Við þessar aðstæður var hentugt fyrir sígauna að látast vera pílagrímar í yfirbótar- ferð. í fyrstu var þeim trúað. Skýring þeirra á yfirbótarflakkinu var vissum breyt- ingum undirorpin frá einum stað til annars. Ein skýring þeirra var sú að þeir hefðu ver- ið reknir úr Egyptalandi vegna þess að þeir hefðu ekki skotið skjólshúsi yfir Maríu og Jesú á flótta þeirra. Önnur var á þá leið að þeir hafi neitað Jesúbarninu um vatn, og enn önnur að þeir hafi verið heiðingjar sem snúist hafi til kristni, snúið aftur til heiðni og frelsast á ný. Vegna þessarar hrösunar hafi þeir fengið þá refsingu að flakka land úr landi í sjö ár. HEIMSMYND J Ú L í 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.