Heimsmynd - 01.07.1993, Page 36
hpttQ pr nntt nartl María Ellingsen leikkona hefur
íCllQ ul yilll [JQI U undanfarin ár alið manninn í
draumaverksmiðjunni vestur í Los Angeles og þar hefur hún meðal
annars leikið í sápuóperunni Santa Barbara og í nokkrum
kvikmyndum. En hún hefur þó síður en svo sagt skilið við ísland
fyrir fullt og allt. Bonni ljósmyndari ræddi við Maríu í góðu tómi.
Hvernig hefurðu það, María?
Fínt, eiginlega mjög fínt.
Ertu búin að vera lengi á íslandi?
Nei, bara nokkra daga.
Komstu heim til að vinna?
Nei, ég bara í stutt frí-alltof stutt.
Hefurðu farið eitthvað út á lífið?
Elskan mín góða, upp á hvern einasta dag.
Nei, það er ekki alveg satt. En það er svo
leiðinlegt úti í Los Angeles að ég reyni að
bæta mér það upp þegar ég kem heim. Hér
nennir fólk að skemmta sér. Og gerir það
oft í viku. Virðist ekki hafa neitt annað að
gera. Ég er rólegheitakona, en það er
gaman að bregða út af vananum og fara út
á lífið.
Þú ert ekkert í glamúrlífinu úti í
Hollywood?
Hvað heldur þú? Að María skáti sé í
glamúrnum?
Ertu ekki á stefnumótum með Tom
Cruise og félögum?
Nei, nei. Þetta fólk býr ekki einu sinni í
borginni. Þetta er iðnaðarborg og fólk sem
hefur efni á því býr á búgörðum í Montana
og Nýju Mexíkó 'eða þá í New York.
Hvernig gengur þér annars þarna úti?
Ég veit það ekki. Stundum finnst mér að ég
sé ekkert að gera. En þegar á heildina er
litið er þetta ágætt.
Ertu að slá í gegn?
Nei. Mér finnst ég hafi verið skiptinemi í
nokkur ár. Ég er búin að læra heilmikið. Og
ég er alltaf með heimþrá. Alveg eins og
skiptinemi.
Saknarðu íslands?
Já.
Hvers vegna?
Ég sakna þess að vera ekki heima hjá mér.
Það er óttalega leiðinlegt að vera
útlendingur til lengdar. Fólk skilur ekki
einu sinni brandarana rnína.
Ertu orðin amerísk?
Nei, alls ekki. Ég er alltof þrjósk til að
breytast.
Eru ástfanginn?
Já, af lífinu.
Ekki af neinum manni?
Ertu að spyrja hvort ég eigi kærasta? Nei, ég
á ekki kærasta. Sjáðu til, ég er komin á
giftingaraldur svo það er hætt við að næsta
samband verði alvarlegt. Þá er það
spurningin: Á það að vera Ameríkani?
Á það að vera Ameríkani?
Ekki ef ég fæ einhverju um ráðið. Og alls
ekki ef systur mínar fá einhverju að ráða.
Heldurðu að það sé ekki hægt að siða
einhvern Ameríkana til? Klæða hann í
lopapeysu og senda hann í fjós á Islandi?
Það hefur oft verið reynt og ég hef aldrei
séð það ganga upp. Maður þarf að alast hér
upp til að skilja út á hvað þetta gengur.
íslenskar konur eru alltaf að segja
manni hvað við, íslenskir karlmenn,
gætum lært mikið af þeim bandarísku
sem eru alltaf svo kurteisir í návist
kvenna. Og svo taka þær alltaf dæmið af
bílhurðinni.
Já, ég er alltaf að lenda í þessu með
bílhurðina. Yfirleitt er ég búin að opna sjálf
og skil ekkert í því hvað mennirnir eru að
gera mín megin við bílinn. Annars eru
Bandaríkjamenn indælir og upp til hópa
mjög gott fólk. En hvað eiga þeir að gera
við íslenska konu eins og mig? Þeir vita
ekki hvað snýr upp og niður á svoleiðis
fyrirbrigði.
Ráða þeir ekki við sjálfstæðar konur?
Þeir eru mjög forvitnir og heillaðir, en um
leið eru þeir skíthræddir við kjaftinn á
manni. Þeir átta sig ekki á að þetta er mikið
til hinn íslenski hroki. Við erum öll svolítið
merkileg með okkur.
Við höfum lengi haldið að við værum í
nafla alheimsins hérna á skerinu.
Það þýðir ekkert annað. Annars gætum við
ekki verið hérna. Maður verður að segja við
sig: Þetta er gott partí.
Og er þetta gott partí?
Já, þetta er gott partí. Ég hef verið mikið á
flakki um heiminn. Líklega af því að ég er
hálfur Færeyingur. En mér líður alltaf best á
Islandi.
En héðan er styttra til Færeyja en til
Hollywood.
Það breytir ekki miklu fyrir mig. Ég kem
ákaflega sjaldan til Hollywood.
Þú býrð fyrir utan borgina?
Já, ég leigi lítinn vinnumannskofa á
hestabúgarði úti í sveit. Einn daginn þegar
ég kom heim fór ég beint í að hjálpa einni
merinni bænum að kasta. Það fannst mér
æðislegt.
Þú lékst í Santa Barbara. Hvar voru
þættirnir teknir upp?
Þeir voru teknir upp í hinu alleiðinlega
hverfi Burbank.
Ertu ekki fegin að vera hætt að leika i
sápuóperu?
Já, alveg rosalega fegin.
Var það kvöl og pína fyrir leikara sem
vill frekar vera á sviði?
Þetta var góður skóli og ég vil síður tala
illa um þættina. Ég var náttúrlega
ofboðslega hneyksluð á hinu
óbókmenntalega handriti til að byrja með.
En svo ákvað ég að taka þessu með
smáhúmor og leika mér. Og lék og lék og
lék. Síðan hætti ég þegar ég var búin að fá
nóg.
Hafðirðu gaman af þessu?
Ég held það. Ég á ábyggilega aldrei eftir
að gera neitt þessu líkt, að leika í
eitthundrað og sextíu sjónvarpsþáttum á
einu og hálfu ári. Þetta var eins og að leika
í tíu myndum á mánuði. Og alltaf sömu
persónuna.
Var þetta ekki feiknarleg vinna?
Jú, en ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir
á. Ég gerði eiginlega ekki neitt annað en
leika í þessum þáttum og var frekar
leiðinleg á þessum tíma. Þetta var eins og
að vera ófrísk. Ég átti mig ekki alveg sjálf.
Eftir að ég hætti tók það mig nokkra
mánuði að losna við sápuna úr hausnum.
Þegar það tókst var eins og ég eignaðist
sjálfa mig aftur.
Hvað ertu búin að leika í mörgum
myndum eftir að þú hættir í Santa
Barbara?
Næsta mynd verður sú þriðja.
Verður þetta góð mynd fyrir þig?
Já, hún býður upp á möguleika á að fá
önnur hlutverk. En ég get ekki séð að hún
verði neitt mjög krefjandi eða gefandi. Mér
er farið að klæja í puttana eftir að leika
eitthvað reglulega bitastætt.
Takast á við eitthvað?
Já, og helst í leikhúsi því þar á leikarinn
heima. En kvikmyndin er alltaf heillandi
og ég er á ágætis aldri til að leika í
kvikmyndum. Það er ekki langur
starfsaldur fyrir konur í amerískum
bíómyndum. Þeir eru svo uppteknir af
æskunni, Ameríkanar.
Áttu við að þær geti ekki verið kyntákn
36
HEIMSMYND
J Ú L