Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 67

Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 67
inni og umkomuleysið í öllum félagsskapn- um. Vilmundur hitti konuefni sitt Valgerði Bjarnadóttur í menntaskólanum. Mér líkt og öðrum félögum hans var það minnisstætt þegar þau fóru að draga sig saman, hann 17 ára en hún 15. Sennilega var það fræg- asti rómans í menntaskóla sem sögur fara af; hann sonur menntamálaráðherra, hún dóttir forsætisráðherra. Það vakti ekki minna umtal þegar Vala, eins og Valgerður er alltaf kölluð, eignaðist soninn Benedikt árið 1966 er þau voru bæði í menntaskóla. Þau giftu sig 1970, þá bæði í háskólanámi. Þau eignuðust annan son 1973, en barnið lést sama dag. Guðrún var þriðja barn þeirra, fædd 1974. Fjórða barn þeirra var Nanna Sigríður, en hún lést aðeins fimm mánuða gömul í maí 1976. Árið 1981 fædd- ist sonurinn Baldur Hrafn. Það voru mikil og þung örlög lögð á herðar þeirra Vilmundar og Völu í hjónabandi þeirra. Um þau mál verður ekki fjallað í þessari grein, en efalítið settu þau djúp spor í sálu Vilmundar og mótuðu hann sem mann og pólitíkus. Ný þjóðfélagssýn. Þegar Vil- mundur kom til íslands 1973 að loknu háskólanámi í sögu í Bretlandi og hóf fyrstu beinu afskiptin af þjóðfélagsmálum og stjórnmálum, blasti við honum allt annað Island en flestir aðrir landar hans eygðu. Dvöl Vilmundar erlendis í opnu lýð- ræðissamfélagi, þekking hans og menntun í mannkynssögu jafnt sem samtímasögu sam- fara óvenjulegri greind og næmleika, gerði Vilmundi kleift að sjá lengra og dýpra í ís- lenskt þjóðfélag en þeir sem daglega hrærðust í atvinnusveiflum, óðaverðbólgu, bankabrölti og reddingum við húsabygging- ar og bílakaup. Og við má bæta meðfædd- um fyrirvara Vilmundar á valdi og valda- mönnum. Vilmundur var aðeins tíu ára þeg- ar faðir hans varð ráðherra í ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokksins, svo- nefndri Viðreisnarstjórn, og hann var 23 ára þegar faðir hans lét af embætti sem ráð- herra. Andstæðingar Vilmundar sögðu því oft að hann hefði verið alinn upp í aftursæt- inu á ráðherrabíl. Æska og uppvöxtur Vil- mundar Gylfasonar innan um valdamestu menn í stjórnkerfi og embættiskerfi settu vissulega mark á hann. En alls ekki í nei- kvæðri merkingu; hann dró ekki dám af valdinu sem slíku. Þvert á móti umgekkst Vilmundur valdamenn sem jafningja sína allt frá unga aldri og bar aldrei neina sér- staka virðingu fyrir þeim sem slíkum. Fyrirlitning Vilmundar á snobbinu í kringum stjórnsýsluna var af sama toga; honum þótti hvorki mikið til þeirra koma sem beygðu sig í andakt fyrir valdinu né þeirra sem kepptu eftir æðstu metorðum, valdanna og framans vegna. í augum hins unga háskólamanns var stjórnsýsluvaldið hvorki heilagt né óumbreytanlegt. Og það sem meira var: í augum Vilmundar voru hinir lýðræðislega kosnu valdamenn ekki fulltrúar fólksins, heldur fulltrúar fámennra sérhagsmunahópa sem stóðu vörð um vald- ið og fjármagnið. Vilmundur var óvenjulegur ungur maður í stjórnmálalegu tilliti. Hann tilheyrði hvorki stuttbuxnadeild Heimdallar né ungsósíalist- um Alþýðubandalagsins eða annarra hópa í villta vinstrinu. Hann var ekkí einu sinni ungkrati, leiddist hin lífvana og ófrjóa ung- liðasveit Alþýðuflokksins sem hann hafði haft dálítið samneyti við upp úr fermingu. Hann afneitaði meira að segja sinni eigin kynslóð, '68 kynslóðinni og gildum hennar; hlustaði í mesta lagi stöku sinnum á Bítlana, en dáði Hauk Morthens, Elvis Presley, Ink Spots og Marlene Dietrich mun meira. Ófá kvöld og nætur þurftum við skólabræður hans að hlýða á vemmilegar plötur Vimma, meðan hann kinkaði kollinum ákaft í takt við tónlistina, en við biðum óþreyjufullir eftir því að fá að setja Bítlana eða Rolling Stones á fóninn. Vilmundur var byltingarmaður en hugn- aðist ekki byltingarhugmyndir sósíalista. Hann hafði verið leikinn skákmaður allt frá barnæsku og með vönum augum skák- mannsins horfði hann yfir hið íslenska sjónarsvið, skilgreindi það og gaf því upp- nefni jafnt sem hugtök sem enn lifa. Hann sá það sem aðrir sáu ekki og úr hinum samfélagslegu skilgreiningum sínum á dvergríkinu íslandi smíðaði hann pólitísk vopn; stjórnmálstefnu sem í fyrstu virtist ekki samleit en var þó eins og maðurinn sjálfur: Margbrotin en samfelld í senn. Meinvörpin í þjóðar- líkamanum. Það ísland sem blasti við Vilmundi Gylfasyni var ísland fjötra og niðurlægingar, land fámennisvalds og sér- hagsmunagæslu eftir áratugalanga stjómun og samtryggingu stjórnmálaflokkanna fjögurra sem Vilmundur kaus að líta á sem samfellt kerfi, „fjórflokkakerfið". Valdamennirnir höfðu með öðrum orðum misnotað stjórnsýsluna og stjórnarskrána sem slíka til að taka völdin af fólkinu, en höfðu byggt upp kerfi sem tryggði fáum útvöldum yfirráð yfir völdum og fjármagni, hvort sem þeir væm við landsstjómina eða ekki. Rök Vilmundar fyrir þessari samfélags- mynd voru mörg. Flokkakerfið var að hans dómi úr sér gengið og ónýtt; hugmynda- fræði flokkanna var löngu komin frá upp- haflegum hugsjónum og þeir þjónuðu ein- ungis sem tæki fyrir fáa einstaklinga til að komast upp framastiga til að geta síðar sest að kjötkötlum samfélagsins. Óðaverðbólga og margs konar höft í verslun, viðskiptum og bankastarfsemi höfðu flutt eðlilega þró- un peningamála undir yfirborð þjóðfélags- ins þar sem brask og sukk á svörtum mark- aði blómstraði. Þetta kallaði Vilmundur Vilmundi þótti hvorki mikið til þeirra koma sem beygðu sig í andakt fyrir valdinu né þeirra sem kepptu eftir æðstu metorðum, valdanna og framans vegna. „neðanjarðarhagkerfið". Óeðlileg hagsmunatengsl aðila úr stjóm- málalífi og opinberu Iífi við aðila atvinnu- markaðarins og viðskiptalífsins kölluðu ennfremur á spillingu og fyrirgreiðslur sem skekktu eðlilega samkeppni og heilbrigt at- vinnu- og efnahagslíf. Vilmundur gerði alla þessa gjörninga gagnsæja með einu hnyttnu slagorði: Löglegt en siðlaust. Síðast en ekki síst beindi Vilmundur sjónum sínum að fjölmiðlum landsins, dag- blöðunum fjómm og Ríkisútvarpinu sem þá skiptist í eina útvarpsrás og sjónvarpsrás. Þessa fjölmiðla kallaði Vilmundur lokaða og þjóna hinnar samtryggðu og samtvinnuðu valdastéttar sem réði yfir fjármagni, völdum og hlunnindum. Allur almenningur væri hins vegar fórnarlamb þessa kerfis: Fólkið hafði kosningarétt til að kjósa yfir sig sömu mennina sí og æ þótt flokksliturinn væri mismunandi, og hin lokaða og ófrjálsa fjölmiðlun flokkakerfisins sá til þess að réttar og sannar upplýsingar bærust aldrei til fólksins og allri raunverulegri samfélags- umræðu yrði umbreytt í óáhugavert pólitískt pex og karp. Áhrif Vilmundar á þróun til frjálsrar fjölmiðlunar eru síst minni en framlag hans til umbreytinga í stjómmál- um og nýrrar þjóðfélagslegrar greiningar á íslenskum samtíma. Vilmundar á þessum sjúkdómseinkenn- um þjóðlífsins var ekki sú að þjóðin væri að berjast við erfiðar ytri aðstæður á borð við lélega fiskgengd, Iágt verð á fiskmörk- uðum, lítinn hagvöxt sem skapaði óðaverð- bólgu, óstöðugt gengi og þar fram eftir göt- unum. Vilmundur var þeirrar skoðunar að vandi þjóðfélagsins kæmi ekki að utan, HEIMSMYND J Ú L í 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.