Heimsmynd - 01.07.1993, Qupperneq 83
Dolce & Gabbana
ítölsku fatahönnuðirnir Dolce &
Gabbana eru í dag stefnumarkandi
afl í tískuheiminum og virðist þeim
félögum vera í lófa lagið að töfra
fram hverja glæsiflíkina á fætur
annarri. Þegar Stefano Dolce og
Domenico Gabbana stigu sín
fyrstu skref inn á torvelda braut
tískuheimsins einkenndist hönnun
þeirra af mjúkum kvenlegum línum,
fölum litum og einfaldleika, þar
sem fyrirsætur þeirra, sveipaðar
fínlegum látlausum kuflum, minntu
einna helst á íbúa hins forna
Rómaveldis. Þeir félagar kúventu
síðar og lögðu áherslu á glæfra-
legri, kynþokkafyllri fatnað. í dag
skipar ímynd sjálfstæðu og frökku
„súperkonunnar" hæstan sess sem
fyrirmynd félaganna og ekki er að
því að spyrja að sjálf drottning
„súperkvenna", Madonna, er ein-
lægur aðdáandi þeirra og vinur.
Sagan segir að hugmyndina að
línu þessari hafi þeir sótt í klæða-
burð móður Domenicos sem á
sjötta áratugnum dirfðist að ganga
í karlmannsjakkafötum í karla-
veldinu Sikiley.
Stefano Dolce fæddist í Feneyj-
um fyrir 30 árum og lærði grafíska
hönnun. Domenico sem er 33 ára
á rætur sínar að rekja til Palermo.
Flann stundaði upphaflega nám í
vísindum, en skipti síðar yfir í
listnám þegar hann uppgötvaði að
þar fengju hæfileikar hans betur
að njóta sín. Leiðir Stefano og
Domenico lágu saman þegar þeir
unnu báðir hjá ítölskum fatahönn-
uði, en nokkrum árum síðar voru
þeir komnir með sitt eigið fyrirtæki
Dolce & Gabbana. Á aðeins tíu
árum hefur þeim tekist að standa
jafnfætis helstu tfskufrömuðum
heims og nam veltan árið 1991
hvorki meira né minna en 66
miljónum dollara. Jafnframt kven-
mannsfatnaði framleiða Dolce &
Gabbana meðal annars prjónaföt,
strandfatnað og karlmannalínu og
virðast þeir sveipa allt sem frá
þeim kemur glæsileika og stíl.
Meðfylgjandi myndir sýna nýjustu
línu þeirra, skondnar og djarfar
buxnadragtir.
SUMT
BREYTIST
ALDREI
Einu sinni var þensla
vandamál á íslandi. Það var
fyrir tíma kreppunnar. Þegar
þenslan ríkti var ekkert eins í
dag og í
gær. Allt
var á
hreyfingu.
Launin
hækkuðu,
fyrirtæki
stækkuðu, skuldirnar uxu. Og
af því að mannskepnan er
homo economicus sveiflaðist
allt mannlegt með efnahags-
stærðunum. Veitingahús
höfðu ekki fyrr verið opnuð
en þeim var lokað vegna
breytinga. Fólk keyrði inn-
búið sitt á haugana að vori
og hausti og keypti sér nýtt. í
kreppunni er hins vegar allt
kyrrt. Laun-
in eru fros-
in, fyrirtæki
eru í
greiðslu-
stöðvun,
skuldirnar í
eindaga. Fólk kaupir sér
myndaramma í stað sófa-
setts. Og veitingahúsin fara
annað hvort á hausinn eða fá
að eldast og þroskast. Og
sökum þess að andinn
sveiflast eftir þyngd budd-
unnar sættist hann við
stöðugleikann. Þess vegna
nýtur hið óbreytanlega sín
betur í kreppunni. Og þar
hafa Mokka, Bæjarins bestu og
Prikið forskot á aðra staði
sem hafa farið í sautján and-
litsstrekkingar á meðan þess-
ir þrír hafa tekið aldrinum
með æðruleysi.
H E
M S M Y N D
J Ú L
83