Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 86
['L-Q-rQ-ií^'v, Tónlistarmenn hafa löngum
iMinaar? verið kunnir fyrir að stunda
*'XijJW matseld í hjáverkum og
kompónera girnilegustu krásir
á svipaðan hátt og þeir byggja upp
áhrifamikil tónverk. Fyrir skömmu tók
Caput-hópurinn sig saman og spilaði af
fingrum fram á útigrill. Að grilla er eins og
að flytja litla bagatellu, - það krefst
talsverðs undirbúnings en tekur skjótt af
þegar á hólminn er komið.
Fyrr sama dag hafði einn ráðsettur fjöl-
skyldufaðir fest kaup á forláta gasgrilli frá
Skeljungsbúðinni í Síðumúla og varið síðdeginu
í að setja gripinn saman með dyggum stuðningi
leiðarvísisins sem er ómissandi við módelsmíð
sem þessa. Að kveldi var gripurinn tilbúinn í að-
gerð, með glöðum loga og vikursteinum í botn-
inumtil að jafna hitann.
Ákveðið hafði verið að leggja íslenskt fjalla-
lamb á glóðina og sá Matvöruverslunin í
Austurveri hópnum fyrir safaríku og meyru
lambakjöti sem menn hantéruðu á nokkra mis-
munandi vegu eftir smekk.
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari mælti
eindregið með því að nota til marineringar
Lamb Islandia kryddblönduna frá Pottagöldrum,
hrærða út í kaldpressaða ólívuolíu, og reyndist
það hið farsælasta ráð. Bryndís Halla Gylfa-
dóttir sellóleikari hvatti til
þess að heilsteikti hryggur-
inn yrði til viðbótar Lamb
Islandia blöndunni einnig
baðaður hvítlauk, steiktur í
álpappír góða stund, en að
lokum glóðaður nakinn tvö
augnablik yfir eldinum. Þetta
var hið mesta hnossgæti. Haukur Tómasson
tónskáld sem löngum hefur kunnað vel að meta
bragðmiklar og heitar kryddtegundir setti Chili
con Carne blöndu frá Pottagöldrum yfir nokkrar
lærisneiðar; var þetta talsverð erting fyrir
bragðlaukana.
Ekki má gleyma grænmetissalati sem píanó-
leikararnir Snorri S. Birgisson og Steinunn B.
Ragnarsdóttir útbjuggu úr fersku grænmeti og
var kærkomin tilbreyting með kjötmetinu. Það
er mál manna sem til teitis mættu og þekktu fátt
áður en gömlu kolahlóðirnar að ekkert jafnist á
við nútíma gasgrill frá Skeljungsbúðinni.
Jóna Fanney Friðriksdóttir
oa blóðrautt lambakiöt
Útsendari HEIMSMYNDAR, Jóna Fanney, bragðar á krásun-
um með guðsgöfflunum á meðan Björg Vilhjálmsdóttir rennir
dularfullu augnaráði til Ijósmyndarans.
Gunnhildur Halla Carr svindlaði sér inn í
karlaklíkuna sem samanstendur af þeim
Ólafi Tryggva Magnússyni, Snorra S.
Birgissyni, Guðna Franzsyni, Gylfa
Baldurssyni og Þórarni Guðnasyni.
Yngismærin Guðrún Halla Guðnadóttir lét sig ekki vanta
þráttfyrir nýafstaðna hlaupabólu. Til hægri Roland Hartwell
fiðluleikari, Steef van Osterhoud slagverksleikari og
Sólbjört Guðmundsdóttir.
Tíkin Dimmalimm til vinstri. Snorri S. Birgisson ásamt
heimilisföðurnum Gylfa Baldurssyni, Guðni Franzson með
dóttur sína Guðrúnu Höllu, Bryndís Halla Gylfadóttir og
Björg Vilhjálmsdóttir.
86
HEIMSMYND
J Ú L í