Heimsmynd - 01.07.1993, Page 88

Heimsmynd - 01.07.1993, Page 88
Hið hraða og skamma líf Vilmundar Gylfasonar ('Framhaldafbls. 73) um Seðlabanka íslands sem gerði bankanum óheimilt að að ákveða vexti fyrir neðan verðbólgustig á hverjum tíma, um breikkun á þeirri heimild í lögum að skipa sérstakar þingnefndir til að fylgjast með framkvæmd laga, og frum- varp um stofnun sérstaks skattadómstóls. Allt eru þetta mikilvæg mál, en frumvarpið um Seðlabankann hafði mest áhrif á dag- legt líf fólks í landinu. Það varð að veru- leika þegar svonefnd Ólafslög gengu í gildi 1979, en svo nefndist efnahagslöggjöf ríkis- stjórnarinnar. Lögin voru nefnd í höfuðið á forsætisráðherranum, Ólafi Jóhannessyni, en hefðu réttilega átt að heita Vilmundar- lög, því hann hafði um þau forystu fyrir hönd Alþýðuflokksins. Hin nýja löggjöf þýddi einfaldlega að verðbólgubraskið og upptaka eigna sparifjáreigenda í bönkum var úr sögunni: Vextir urðu vísitölutengdir. Uppreisnarmaðurinn sem elskaði stjórnleysið. Það er tii marks urn hve menn í senn misskildu og óttuðust hugmyndir Vilmundar Gylfasonar á sínum tíma að stundum var álitið að hann hefði þá einu ósk heitasta að leysa upp ís- lenskt þjóðfélag og skilja það eftir í öng- þveiti og rústum. Þegar leið á árið 1979 hélt Tíminn því fram, að ,,stóra planið" hans Vil- mundar væri að koma ríkisstjóminni frá völdum og skapa upplausn í efnahagsmál- um og á vinnumarkaði. Kenning blaðsins var óneitanlega stór í sniðum: Með því að sprengja ríkisstjórnina í tætlur og leysa upp flokkakerfið í kjölfarið ætlaði Vilmundur að móta sína eigin pólitík. Vilmundur var uppreisnarmaður og um- bótasinni, ekki byltingarmaður. Byltingar- maðurinn spyr ekki um lýðræðislegan vilja. Hann byltir ríkjandi valdhöfum, fangelsar þá eða drepur og reisir þjóðfélag sem byggir á skilyrðislausri kröfu um hlýðni við hina nýju einræðisstjórn. Byltingin étur allt- af börnin sín. Ekkert var fjær Vilmundi Gylfasyni en bylting einræðissinna. Vilmundur bar djúpa lotningu fyrir lýðræð- inu og þegnum ríkisins. Hann vildi vald og frelsi fólksins sem mest. í raun hafði skoð- un Vilmundar á spillingu valdsins og samúð með málstað hins valdalausa samfélags fylgt honum allt lífið. Lítil saga kemur upp í hugann. Þegar við Vilmundur höfðum lokið landsprófi 15 ára gamlir fórum við í sigl- ingu til Færeyja ásamt tveimur öðrum bekkjabræðrum okkar, Hrafni Gunnlaugs- syni og Erni Þorlákssyni Sú ferðasaga verð- ur ekki rakin í þessum línum, en nótt eina þegar við Vilmundur vorum vakandi ein- hvers staðar í iðrum Dronning Alexandrine, sagði hann mér frá skáldsögu sem hann ætlaði að skrifa og ég ætti að myndskreyta. (Ég teiknaði mikið á þeim árum.) Skáldsaga Vilmundar átti að fjalla um fólkið á Vest- 88 fjarðakjálkanum sem hafði sagt sig úr lög- um við ísland og stofnað eigið þjóðríki þar sem allir voru jafnir og allt vald og yfirstjórn hafði verið lagt niður. Vilmundur sagði mér að teikna bókarkápuna þannig að Vest- fjarðakjálkinn væri skorinn frá íslandi - líkt og höfuð frá búk. Mörgum árum síðar þeg- ar við vorum orðnir fullorðnir menn minnti ég Vilmund á skáldsöguna sem aldrei var skrifuð og bókarteikninguna sem aldrei var teiknuð. Vilmundur glotti á sinn sérstæða og ögrandi hátt og sagði: ,,Þú manst þetta ennþá." Hann hafði greinilega ekki gleymt skáldsögunni um fólkið sem segir sig úr stjórnmálasambandi við spillt lýðræði og stofnar sitt eigið lýðræðislega og valdalausa samfélag. Ráðherra fellur á prinsípprófi. Alþýðuflokkurinn rauf stjórnarsamstarfið í október 1979- Formaður flokksins, Benedikt Gröndal, var staddur í Bandaríkjunum þegar meirihluti þingflokks- ins samþykkti tillögu Gunnlaugs Stefáns- sonar að hætta stjórnarsamstarfinu. Bene- dikt hraðaði sér heim, en kom of seint til að hafa áhrif á gang mála. Honum var gef- inn kostur á að flytja sjálfur tillögu um stjórnarslit. Þessi stjórnarslit áttu eftir að setja mikið mark á sáluheill Alþýðuflokks- ins um langan tíma og allt til dagsins í dag. „Brotthlaup krata“ varð að hugtaki sem stimplaði Alþýðuflokkinn óábyrgan um langan tíma, ef ekki í vitund almennings þá í hugum sjálfra krata. í framhaldi af stjórnarslitunum tók við minnihlutastjórn Alþýðuflokksins uns boð- að var til kosninga. Vilmundur Gylfason valdist sem dómsmálaráðherra í minnihluta- stjórninni sem naut forystu Benedikts Gröndals. Það var þó síður en svo samstaða í Alþýðuflokknum um að Vilmundur yrði ráðherra. Sjálfur hafði hann ekki áhuga á ráðherradómi, en átti erfitt að neita ráð- herrastól þegar hann var boðinn. Ráðherradómur Vilmundar var stuttur og ekki ýkja eftirminnilegur. Hann lét kanna og undirbúa um 30 mál í ráðherratíð sinni og stofnaði meðal annars embætti umboðs- fulltrúa við dómsmálaráðuneytið og skyldi það taka á móti kvörtunum og fyrirspurn- um varðandi dómsstólakerfi, löggæslu og fangelsismál. Ráðherratíð Vilmundar í bráðabirgðastjórninni var í miðri kosninga- baráttunni og það var óspart notað gegn honum að hann skyldi skipa Finn Torfa Stefánsson. fyrrum þingmann Alþýðuflokks- ins, í embætti umboðsfulltrúans. Skipunin var óneitanlega pólitísk mistök Vilmundar og hann fékk að gjalda fyrir þau. Nú voru hans eigin rök notuð gegn honurn sjálfum; spilling og samtrygging flokkakerfisins. Vilmundi gekk eflaust það eitt til að skipa mann sem hann treysti, og enginn efaðist um hæfni Finns Torfa og menntun, en Vilmundur hefði mátt vita að þetta myndi verða notað miskunnarlaust gegn sér miðað við það sem á undan var gengið. Vilmund- ur féll á þessu prínsípprófi og það fall reyndist honum erfitt. í febrúarbyrjun myndaði Gunnar Thor- oddsen ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Alþýðubandalagi og klauf þar með Sjálf- stæðisflokkinn í herðar niður. Væringar voru einnig innan Alþýðuflokksins. Kjartan Jóhannsson tók við formennsku af Bene- dikt Gröndal án þess að til kosninga kæmi. Staða Benedikts var orðin vonlaus eftir stjórnarsetuna og brotthlaupið og hann að vissu marki fórnarlamb kringumstæðna. Vil- mundur taldi sig geta átt góða samleið með Kjartani Jóhannssyni og bauð sig fram til varaformanns á flokksþinginu veturinn 1980. Með því hugðist hann styrkja stöðu sína og sinna stefnumála. Honum var hins vegar ljóst að á brattann var að sækja. Hann var umdeildur í Alþýðuflokknum, öfundaður og margir töldu hann ekki „góð- an flokksmann“. Auk þess að bjóða sig fram til varaformennsku, barðist Vilmundur fyrir veigamiklum breytingum á skipulagi flokksins sem miðuðu að því að gera hann opnari og breiðari. Þessar tillögur Vilmund- ar fóru fyrir brjóstið á mörgum flokksmann- inum og urðu ekki til að styrkja stöðu hans í framboðinu. Magnús Magnússon, þing- maður og fyrrum ráðherra, bauð sig fraln til varaformanns gegn Vilmundi og hafði stuðning flokksforystunnar. Eftir flókna valdabaráttu og mikil plott varð Vilmundur undir í kosningunni, fékk 68 atkvæði en Magnús 110. Margir töldu þetta góðan ár- angur hjá Vilmundi sem hafði storminn í fangið. Vilmundur lýsti hins vegar úrslitun- um sem miklum ósigri sínum og hellti sér yfir flokksþingið í eftirminnilegri ræðu. Þetta var einkennandi fyrir Vilmund; hann krafðist fullkomins sigurs en ella taldi hann sig gjörsigraðan. Hann var ekki lang- tímapólitíkus sem lítur á hvern sigur eða ósigur sem einstakar orrustur í stóru stríði. Vilmundur barðist alltaf í hverju máli eins og um úrslitaorrustu væri að ræða. Hann lagði allt undir og fékk stóra vinninginn eða glataði öllu að eigin mati. í framhaldi af ósigrinum á flokksþinginu sendi Vilmundur frá sér fréttabréf þar sem hann talaði um hluta alþýðuflokksmanna sem „skítapakk". Hvað sem segja má um sannleiksgildi þeirra orða urðu ummælin fleyg og þóttu enn breikka gjánna milli Vilmundar og Alþýðuflokksins. Alþýðublaðsdeilan. Tvö mál urðu endanlega til þess að Vilmundur komst að þeirri niðurstöðu að hann ætti enga samleið lengur með Alþýðuflokknum og að eina leiðin til að koma stefnumálum sínum áleiðis væri að stofna ný stjórnmála- samtök. Fyrra málið snerist um Alþýðublaðið, hið síðara um kosningu til varaformanns. Vil- HEIMSMYND J 0 L Í

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.