Heimsmynd - 01.07.1993, Side 96

Heimsmynd - 01.07.1993, Side 96
engillinn&púkinn (Framhald af bls. 55) hann fyrir utan veitingahús á Akureyri og ég gekk til hans og kynnti mig. Já, Viðar, sagði hann og strauk mér um kinnarnar, þú ert engill alveg eins ég. Það vissi ég strax þeg- ar þú varst lítill. Svo bauð hann mér á veit- ingahús, hann afi minn og við snæddum saman englarnir og ég man að afi minn borðaði aðeins hvítan mat af því að hann vildi ekki óhreinka sálina. En hún amma mín varð heimsfræg á Akureyri þar sem hún gekk um þorpið hús úr húsi og sagði heimilisfólki brandara, það var hennar að- aláhugamál í ellinni. Seinna náðu þau sam- an aftur gömlu hjónin en það gerðist án þess að þau yrðu nokkurn tímann vör við það. Mamma fann garnflækjur í verksmiðj- unni og afhenti afa honum til dægrastytt- ingar en hann var þá kominn í húsaskjól hjá elsta syni sínum. Afi minn greiddi úr flækjunum og vatt upp í hnykil og þegar því var lokið fór mamma með þá til ömmu sem prjónaði úr þeim sokka. Þetta vissu gömlu hjónin ekki.“ ó að Viðar vilji líta á önnur ástarsam- bönd sín en sambandið við leikhúsið sem framhjáhald þá er hann engin pipar- karl eða kannski öllu heldur stundum ó- tryggur leikhúsinu. Á námsárunum upp- hófst mikill eltingarleikur við ástina og hann gerðist stórtækur og fór að halda við tvær konur sem hétu báðar sama nafni. „Ég var svo kræfur að halda að það kæmist ekki upp um mig, en þegar foreldr- ar annarrar stúlkunnar, yndislegs flautuleik- ara, voru langt komnir með að innrita mig í Samvinnuskólann á Bifröst vegna ótryggrar atvinnu í leiklistinni fóru að renna á mig tvær grímur. Hún er núna gift kona og tveggja barna móðir og kannski væri ég frammámaður í Samvinnuhreyfingunni í dag ef ekki hefði komist upp um mig. En það komst sem sagt upp um mig og þær yfirgáfu mig báðar. Ég var alger krakki og hef í raun aldrei kunnað að vera með annarri manneskju og taka fullt tillit til hennar. Önnur þessara stelpna sem var þremur árum eldri en ég og myndlistarkona varð seinna fyrsta sam- býliskona mín og það varði í nokkur ár og var bæði platónskt og erótískt á sinn hátt en að sjálfsögðu vorum við alltaf í framhjá- haldi hvort með öðru enda bæði metnaðar- fullir listamenn. Ég var seinna líka í sam- búð með strák en það fór eins fyrir því, og það tók lengri tíma að skilja heldur en sam- búðin sjálf varði. Þegar maður er giftur leikhúsinu og vinnur mikið í lausamennsku eins og ég hef gert, þá tengja mann mjög náin bönd við það fólk sem unnið er með á hverjum tíma. Þegar verkið er komið á fjalirnar skilj- ast leiðir og ná kannski ekki saman aftur fyrr en tíu árum síðar og þá er eins og ekk- ert hafi gerst. Ég get verið grimmur í þessu samstarfi og ef ég finn einhvern veikan punkt þá verð ég hræddur, og ef ég finn að undirstöðurnar eru að bresta þá getur hræðsla mín snúist upp í reiði. Að því leyt- inu er ég erfiður í samvinnu og það skiptir mig ákaflega miklu máli að gera vel, þannig hættir mér til að verða kaldlyndur. Ég veit ekki hvort því er þannig farið í einkalífinu því starf mitt hverju sinni skiptir mig mestu máli og einkalífið er í öðru sæti. Ég hef enn ekki bundist neinum svo sterk- um böndum að það hafi tekið hug minn allan. Ég var tuttugu og sjö ára gamall þeg- ar ég eignaðist mitt fyrsta rúm og áður átti ég aldrei neitt. Líf mitt hefur því ekki ein- kennst af miklum skuldbindingum." Núna býr ástin á Spáni, dökkhærður með hárið í tagli, stjórnar menntaskóla og ekur um á mótorhjóli? Já, og er ágætlega komin á Spáni eins og reyndar ég sjálfur þegar ég skrepp út fyrir landsteinanna að heilsa upp á heitar spænskar nætur. Við erum ekkert á leiðinni í sambúð enda væri erfitt að koma því þannig fyrir þar sem við vinnum sitt t hvom landinu. En ég nýt þess virkilega að fara út í fríum og eins að fá hann hingað. Ætli ég sé ekki töluvert ástfanginn.“ Viðar hefur alla tíð haft mörg járn í eld- inum og er til dæmis vinsæll útvarps- maður. Kemurðu ekki til með að sakna þess? „Jú auðvitað kem ég til með að gera það, en ég er vanur því að vinna mikið og hver veit nema ég geti sinnt öðrum hugðar- efnum en leikhúsinu að einhverju leyti þegar ég fer að venjast því og það mér. Þessir fléttuþættir hafa alltaf verið að gerjast í kollinum á mér en þeir eru gífurlega tíma- frekir og til dæmis þá tók útvarpsþátturinn Eins og dýr í búri 105 klukkutíma í stúdíói og annað eins í undirbúningsvinnu en henni dreifði ég á heilt ár. Það er ljóst að íslenskir fjölmiðlar geta sjaldnast leyft sér svona vinnubrögð og þar finnst mér komið hlutverk ríkisfjölmiðils. í þessari þáttagerð reynum við að komast sem næst kjarnanum og finna söguna sem er á bak við hverja sögu, það er munaður sem er sjaldnast hægt að leyfa sér í fjölmiðlavinnu. Ég reyni að byggja þetta upp sem leikrit en atburð- irnir ýmist eiga sér stað í nútímanum eða eru rifjaðir upp í beinu framhaldi af ein- hverju sem er að gerast. Þannig verður dag- skrárgerðarmaðurinn ekki sýnilegur nema sem höfundur eða sá sem heldur utan um verkið. Hans rödd hljómar ekki í gegnum þáttinn.“ EGG-leikhúsið, einleikur á manneskjuna. Leikhús sem varð kannski þekktast fyrir leikrit sem var aðeins sýnt fyrir einn áhorf- anda í senn og það alls tvö hundruð og Eg nýt þess virkilega að fara út í fríum 09 eins að fá hann hingað. Ætfi ég sé ekki töluvert ástfanginn. áttatíu sinnum. Leikritið Ekki ég ... heldur ... EGG-leikhúsið hefur verið lofað fyrir framúrstefnu á sviði leiklistar og frumleika í verkefnavali. Ertu hættur að vera einfari í íslenskri leiklist? „Hver og ein sýning EGG-leikhússins hefur jafnan verið sú síðasta. Aðeins þannig var mér kleift að halda þessu leikhúsi gang- andi. Ég kem sem leikhússtjóri á Akureyri til með að hafa aðrar starfsaðferðir enda er sá hópur sem þar kemur á sýningar allur annar en sá er sótti sýningar EGG-leikhússins. Hér hafa mótast við leik- húsið ákveðnar hefðir í sambandi við verk- efnaval, ein óperetta og eða söngleikur á hverjum vetri og ég kem til með að virða þær fullkomlega. En ég mun að sjálfsögðu líka fara mínar eigin leiðir án þess að um neinar byltingarkenndar breytingar verði að ræða.“ Hvað er eftirminnilegasta hlutverkið á sviði? „Það ekkert gaman að leika nema hætta sér út á bjargbrúnina og vera lofthræddur í leiðinni. Þess vegna eru eftirminnilegustu hlutverkin listamenn á barmi taugaáfalls, þau hafa mörg komið í minn hlut á lífsleið- inni. Ekki síst þetta eina stóra. Ég trúi ekki á líf eftir dauðann. En ég hef oft velt fyrir mér möguleikanum á því að lifa tveimur líf- um í þessu. Skipta algerlega um mig. Verða eitthvað allt annað.“ Leikritið Eru tígrisdýr í Kongó? sem Al- þýðuleikhúsið sýndi á sínum tíma fjallaði um mál sem var viðkvæmt á þeim tíma og er enn. Tveir rithöfundar setjast niður til að skrifa um sjúkdóm sem þeim finnst að komi þeim ekki sérstaklega við. Síðan leik- ritið var sýnt árið 1987 hefur Viðar horft upp á vini sína deyja úr alnæmi og einn þeirra aðeins fyrir skömmu. Hvernig líturðu á þetta leikrit núna í ljósi reynslunnar? „Þegar þetta leikrit var sýnt stóðu menn almennt í þeirri trú að alnæmisveiran væri vitsmunavera og hún færi sem slík í mann- greinarálit og legðist eingöngu á homma vegna þess að þeir ættu það helst skilið. Það var því ákaflega takmarkaður hópur sem tók boðskapinn inn á sig og sjálfur var ég ákaflega lokaður fyrir mikilvægum atrib- um sem hafa verið að renna upp fyrir mér síðustu árin. Þegar maður hefur horft upp á vini sína deyja svo að segja í blóma lífsins þá horfir þetta öðruvísi við. Það er sú grimma staðreynd. Þó að enginn sé raun- verulega í stakk búinn að horfast í augu við dauðann fyrr en hann blasir við búa ís- lenskir hommar nú að betri upplýsingum en fólk almennt vegna þess að þeir urðu 96 HEIMSMYND J Ú L í

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.