Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 63
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
NETBIFREIÐASALAN:
Öflugir í bílainnflutningi
Netbifreiðasalan er almenn bílasala með pláss fyrir 30 bíla á plani. Bílasalan
selur notaða bíla fyrir einstaklinga
og fyrirtæki, en sér einnig um
bílainnflutning. Netbifreiðasalan
aðstoðar einstaklinga og fyrirtæki
við að kaupa notaða og nýja bíla til
innflutnings frá Evrópu og Norður-
Ameríku.
Aðstoða við bílainnflutning
Oft getur verið betri kostur að
kaupa bíl að utan, þar sem þeir eru
í flestum tilfellum á betri kjörum en
hér heima. Rafmagns- og Plug-
In Hybrid-bílar þar eru í sérflokki
verðlega séð.
Úrvalið erlendis er oft meira en
það sem boðið er upp á hér heima.
Jafnvel sumar tegundir sem ekki er
að finna á bílasölum á Íslandi. Eins
fer veðurfar og vegir erlendis betur
með bíla og þeir í almennt betra
standi eftir nokkur ár erlendis en
nokkur ár hér á landi.
„Við setjumst niður með
viðskiptavini okkar og saman
finnum við bíl sem hentar honum
best og hann er sáttur vi,“ segir
Steinar Þór Guðjónsson, forstjóri
Netbifreiðasölunnar. „Við finnum
rétta bílinn fyrir kúnnann sama
hvað tegund það er, við flytjum
allt inn þar sem við erum ekki
bundnir við vissar tegundir,“ segir
Steinar. Í framhaldinu hefur svo
starfsfólk bílasölunnar samband
við bílasölur erlendis og semur um
verð á umræddum bíl. Þegar búið
er að samþykkja kaup á bíl þarf
viðskiptavinurinn ekki að hugsa um
þetta frekar þar til fer að líða að
afhendingu á bílnum til hans hér
heima.
Í millitíðinni sér Netbifreiðasalan
um að panta flutning, samskipti
við bílasölu varðandi pappírsvinnu
og skjalafrágang ásamt því að
fylgjast með öllu ferlinu og passar
að allt gangi eins og best verður á
kosið. Þegar bíllinn er svo kominn
til landsins sjá þau svo um að skrá
hann hérlendis. Viðskiptavinurinn
fær síðan bílinn í sínar hendur,
tilbúinn til notkunar fyrir utan hjá
þeim að Hlíðasmára 13.
Persónuleg og góð þjónusta
Hjá Netbifreiðasölunni starfa
eingöngu metnaðarfullir
bifreiðasalar og leggja þeir mikið
upp úr því að veita eins persónulega
og góða þjónustu og völ er á.
„Við erum beinn tengiliður milli
seljanda og kaupanda, aðstoðum við
að finna bíl sem hentar fjármagni,
fjölskyldustærð, notkun og öllu þar
á milli. Hvort sem það er bíl sem er
staðsettur hér heima eða erlendis.
Einnig hjálpum við viðskiptavinum að
finna hentugustu leið fjármögnunar
við kaupin,“ segir Steinar að lokum.
Netbifreiðasalan er að
Hlíðasmára 13 í Kópavogi. Hægt er
að hafa samband í síma 577-4400,
eða senda tölvupóst á nbs@nbs.is.
Opnunartími: Mánudaga til
fimmtudaga kl. 10–18, föstudaga
kl. 10–17 og laugardaga kl. 12–15.
En einnig er hægt að semja um að
hittast utan opnunartíma.
www.nbs.is