Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 80
80 22. nóvember 2019
SAKAMÁL
M
ikið stóð til að
Fitzhamon Embank-
ment númer 29 í Cardiff
í Wales á Bretlandi árið
1989. Eigendurnir höfðu ákveðið
að koma þar niðurníddum
raðhúsum í betra horf og breyta
húsnæÞann 7. desember hljóp
snurða á þráðinn og öll vinna
lagðist niður. Ástæðan var sú að
í garði fyrir framan eitt raðhús-
ið grófu vinnumenn sig niður á
óhugnanlegan fund í garðinum;
upprúllað teppi, sem bundið var
saman með rafmagnsleiðslum.
Innihaldið var beinagrind og var
plastpoki reyrður um höfuðkúp-
una og handleggirnir höfðu ver-
ið bundnir með rafmagnsvír fyrir
aftan bak.
Fimmtán ára stúlka
Lögreglan velktist ekki í vafa um
að þarna væri um að ræða morð-
mál og lagði því áherslu á að
kennsl yrðu borin á fórnarlambið
eins fljótt og auðið yrði. Það yrði
þrautin þyngri því ekki var mikið
til að byggja á. Fyrir lá að beina-
grindin var úr kvenmanni.
Tannlæknir, David Whittaker,
var meðal annarra lögreglu innan
handar. Sagðist hann geta með 80
prósenta vissu fullyrt að um væri
að ræða stúlku sem hefði verið
fimmtán og hálfs árs þegar hún
mætti örlögum sínum.
Talið var að hún hefði liðið of-
beldisfullan dauðdaga og senni-
lega kyrkt.
Borin kennsl á fórnarlambið
Aðrir sérfræðingar töldu að
hún hefði verið grafin fyrir að
minnsta kosti fimm árum og að
hún hefði ekki verið af albresk-
um, hvítum uppruna.
Leitað var til listamanns við
Manchester-háskóla og hann
fengin til að gera mót af hans
hugmynd um andlit stúlkunnar.
Tveimur dögum eftir að
mynd af endurgerð andlits stúlk-
unnar birtist, í útsendingu BBC í
janúar 1990, var lögreglan kom-
in með nafn til að tengja við lík-
amsleifarnar. Idris nokkur Ali
hafði hringt til lögreglunnar og
sagst telja sig þekkja stúlkuna,
Karen Price.
Karen hafði fimmtán ára
horfið af heimili á vegum hins
opinbera, í Pontypridd í Wales,
þann 3. júní árið 1981. Til henn-
ar hafði ekki spurst síðan.
Ömurleg æska
Karen fæddist 4. september, 1965,
móðir hennar var spænsk og faðir
hennar átti rætur að rekja til Kýpur.
Þau höfðu skilið þegar Karen var
sex ára og hún hafði alist upp hjá
föður sínum þar til henni var kom-
ið í fóstur tíu ára gamalli.
Hvað sem því líður þá var
það engin nýlunda að Karen léti
sig hverfa og því varð lítið upp-
nám á fósturheimilinu þegar það
gerðist árið 1981. Líkt og fleiri
börn á heimilinu, með brotinn
bakgrunn, átti Karen það til að
strjúka.
En í þetta skipti sneri hún
ekki til baka, og vakti það furðu
þrátt fyrir allt og allt. Viðleitni til
að finna hana bar ekki árangur,
hún virtist einfaldlega horfin og í
átta ár var hennar saknað og hún
skráð sem slík hjá yfirvöldum.
Ónafngreind kona
Upphaflega hafði Ali haft sam-
band við lögregluna einfaldlega
sem einhver sem hafði þekkt
Karen Price og lögreglan taldi
hann í besta falli geta varpað ljósi
á síðustu vikurnar í lífi Karenar.
Það átti eftir að breytast.
Í febrúar, 1990, gaf sig fram við
lögreglu ung kona sem hafði ver-
ið þrettán ára þegar hún dvaldi
á sama heimili og Karen. Konan,
sem aldrei var nafngreind, sagði
að á sínum tíma hefði hún tekið
þátt í kynlífi með karlmönnum
gegn greiðslu.
Ofbeldisfullt atvik
Einn umræddra manna hafði
verið dyravörður að nafni Alan
Charlton. Í annað skipti sem kon-
an hitti Alan vildi hann að hún
tæki þátt í kynferðislegum athöfn-
um, sem henni hafði ekki hugn-
ast. Fyrir vikið hafði Alan þessi
skorið hana með hnífi í lærið.
Konan bætti um betur og sagði
lögreglunni af einu ofbeldisfullu
atviki sem átti sér stað með Alan
og lauk með morðinu á Karen
Price. Konan þekkti annars Karen
ekki vel þótt þær hefðu hist í
vafasömum félagsskap hér og
hvar í bænum.
Að sögn konunnar hafði Karen
verið myrt í íbúð Alans Charlton
þar sem þær höfðu verið stadd-
ar. Viðstaddur morðið var annar
karlmaður; Idris Ali.
Karen kyrkt
Þetta var vending sem lögreglan
LÍKIÐ Í GARÐINUM
n Breyta átti húsnæði í Cardiff n Teppi grafið í garðinum geymdi lík n Ekki
var allt sem sýndist n Vitni kom lögreglunni á slóð morðingjans
„Fyrst gekk hann í skrokk á
Karen, kyrkti hana síðan og
hafði að lokum samfarir við lík hennar.
Á vettvangi
Verkamenn grófu
sig niður á óhugn-
anlegan fund.
Dyravörður Alan Charlton missti
stjórn á skipi sínu með banvænum
afleiðingum.