Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 43
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
AMAN.IS:
Eðalvín og humlaður
hipsterabjór, allt bruggað heima
Upp á síðkastið hefur bjórbruggun og víngerð farið vaxandi á Íslandi enda
eru þær vörur sem notaðar eru í
heimabruggun og víngerð í sífelldri
þróun. „Í dag er hægt að koma sér
upp frábærri heimaaðstöðu með
tiltölulega lágum stofnkostnaði sem
gefur af sér sérlega bragðgóð vín
og bjór. Enn fremur er hægt að eyða
aðeins meira í tækjabúnað sem
gefur kost á að brugga bjór og vín
sem stenst fullkomlega gæðalegan
samanburð við það sem fæst keypt
úti í búð,“ segir Magnús Axelsson,
framkvæmda- og rekstrarstjóri
Ámunnar ehf.
Heimabruggið er vagga
víngerðarinnar
Bjórbruggun og víngerð er
stórskemmtilegt áhugamál fyrir
byrjendur sem lengra komna. „Fyrstu
rituðu heimildir um víngerð eru um
3.500 ára gamlar og komnar frá
Grikkjum. Heimildir um framleiðslu á
áfengum drykkjum, svo sem miði, öli
og sýrðum drykkjum eru þeim mun
eldri. Hér er í öllum tilfellum verið að
ræða um heimagert vín og bjór eða
skylda drykki og því má með sanni
segja að heimabruggið sé vagga
víngerðarinnar.“
Til hvers að brugga eigin bjór eða
gera eigið vín?
„Margir eru að leita að hagkvæmum
lausnum fyrir ýmsa viðburði svo
sem brúðkaup, afmæli og veislur
þar sem margt er um manninn.
Aðkeypt drykkjarföng geta hlaupið á
tugum ef ekki hundruðum þúsunda
og þegar upp er staðið er mun
skemmtilegra að bjóða gestum
upp á heimagerðan bjór eða vín. Í
brúðkaupsveislum er t.d. vinsælt að
nefna tvo mismunandi bjóra eða
víntunnur eftir brúðhjónunum eftir
því hvað þeim þykir bragðbetra.
Svo drekka gestir bókstaflega til
heiðurs brúðhjónunum.“ Einnig er
stór hópur áhugamanna og kvenna
sem bruggar eigin bjór frá grunni.
„Menn verða fljótlega sérfræðingar
og sumir verða bjórmeistarar heima
hjá sér. Allir geta búið til bjór og vín
ef þeir vilja og hafa áhuga.“
Humlandi góður bjór
Í bjórbruggun er hægt að fara
nokkrar misflóknar leiðir sem gefa af
sér afar ólíka útkomu en koma ætíð
skemmtilega á óvart. Með lágum
stofnkostnaði, einföldum hætti og
á stuttum bruggunartíma geta
byrjendur bruggað bragðgóðan bjór
sem kitlar bragðlaukana og hentar
t.d. vel í stórar veislur. Þegar kemur
að því að brugga bjór frá grunni er
stofnkostnaðurinn orðinn meiri, en
þessi aðferð gefur möguleika á mun
fjölbreyttari bjór og persónulegri
nálgun. „Bjórbruggun frá grunni er
ekki flókin í sjálfu sér, en til hennar
þarf ákveðið bjórger, malt/korn
og humla. Þá þarf að meskja við
ákveðið hitastig, sjóða virtan sem
fæst úr meskingunni, kæla, gerja
og svo framvegis. Tíminn frá því
að bjórgerð hefst og drykkurinn er
settur á flöskur er um tvær vikur.
Með þessari aðferð má prófa sig
áfram og nota mismunandi humla,
ger og korn til þess að ná fram ólíku
bragði og áferð,“ segir Magnús.
Bjórgerðarbúnaður fyrir
bjórmeistarana (á heimavelli)
Minibrew gerir byrjendum
sem og lengra komnum
bjórgerðarmeisturum kleift að
brugga dýrindis eðalbjór heima.
Hvort sem þú vilt dökkan stout,
ferskan saison eða gullfallegan IPA,
þá er Minibrew með efnið, tækin og
búnaðinn fyrir þig. Hægt er að nota
fyrirframgerðar uppskriftir eða þróa
sínar eigin. Prófaðu þig áfram í heimi
bjórgerðarlistarinnar og vertu alvöru
bjórmeistari heima í stofu. Auðvelt
að þrífa. Minibrew er nýtt á Íslandi
og fæst í verslun Ámunnar.
Víngerðin heillar marga
Eins og bjórbruggunin er
víngerðin heillandi og skemmtilegt
tómstundagaman. Þeir sem byrja
að gera sín eigin vín uppgötva
fljótt hvað þau eru holl, bragðgóð
og oft mildari og ferskari en
verksmiðjuframleidd vín. Bilið
á milli besta heimavínsins og
hinna svokölluðu eðaltegunda
minnkar óðum. Framboð af nýjum
tegundum og betri efnum eykst
líka stöðugt sem gerir það að
verkum að heimavínið er fyllilega
sambærilegt við borðvín frá frægum
vínræktarlöndum. Kosturinn við
heimavíngerð er að hún er einföld
og þægileg auk þess að vera ódýr
kostur. Lítið pláss þarf á heimilinu
fyrir víngerðina og henni fylgir
nánast engin lykt. Vínið er mjög
vandað og bragðgott og þrúgurnar
og víngerðarlíkin eru fyrsta flokks.
Bruggaðu þína eigin belju!
Það hefur aldrei verið jafnauðvelt
að brugga sitt eigið vín. DIY My Wine
Co. er nýtt á Íslandi og fæst í Ámunni
sem og hjá flestum endursöluaðilum
Ámunnar. Í átta einföldum skrefum
ertu komin/nn með bragðgott
drykkjarvín og gæðin koma
skemmtilega á óvart.
Áman flytur inn og selur vörur til
bjór- og víngerðar og er með smásölu,
netverslun og endursöluaðila víða
um land. Allar vörur eru keyptar af
viðurkenndum fyrirtækjum, víðs
vegar að úr heiminum t.d. Kanada,
Bretlandi, Danmörku, Ítalíu, Svíþjóð
og Þýskalandi. Hægt að skrá sig
í Ámuklúbbinn á www.aman.is
þar sem í boði eru alls kyns tilboð,
fróðleikur og fréttir.
Myndir: Eyþór Árnason