Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 78
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
KOLABRAUTIN:
Eitt glæsilegasta jólahlaðborð
landsins með gullfallegt útsýni
Jólahlaðborðið hjá Kolabrautinni verður sífellt vinsælla með hverju árinu
sem líður og stendur nú gestum til
boða til 23. desember. „Á hverju ári
höfum við verið að bæta hlaðborðið
og lagt síaukinn metnað í að allir
fái matarupplifun við sitt hæfi. Árið
í ár verður engin undantekning,“
segja Guðni Hrafn Grétarsson og
Laufar Sigurður Ómarsson hjá
Kolabrautinni.
Gómsætur jólamatur
„Grafinn lax, tvíreykt sauðarlæri,
jóla-sashimi, purusteik og svo margt
fleira. Einnig verður úrval af réttum
fyrir grænkera svo sem hnetusteik,
saltbökuð rauðrófa, falafel-bollur
og fleira.“ Þessi girnilega upptalning
er bara toppurinn á ísjakanum og
er víst að borðið hjá Kolabrautinni
er hlaðið ýmsum lystisemdum sem
gaman er að smakka í aðdraganda
jólanna.
Jólahlaðborð og
villibráðarhlaðborð
Jólahlaðborðið er nú byrjað
og lýkur þann 23. desember.
„Einnig verðum við með glæsilegt
villibráðarhlaðborð fyrstu tvær
helgarnar í nóvember. Það er um
að gera að bóka sem fyrst þar sem
nú þegar eru nokkrir dagar orðnir
fullbókaðir í hlaðborðin hjá okkur.“
Gullfallegt útsýni
Kolabrautin er staðsett á efstu
hæð í tónlistarhúsinu Hörpu og
er þar af leiðandi með eitt besta
útsýnið í bænum. „Staðurinn
hentar sérlega vel fyrir stóra
sem smáa hópa. Einnig hefur
það færst í aukana hjá okkur að
vera með móttöku fyrir hópa og
fyrirtæki fyrir framan barinn hjá
okkur á fjórðu hæðinni, þar sem
boðið er upp á skemmtilegan og
fjölbreyttan jólapinnamat
fyrir jólaviðburði. Þá
er sama
jólahlaðborð í boði fyrir hópa og
fyrirtæki í veitingasölum Hörpu.
Fyrirspurnir um jólahlaðborð fyrir
hópa og fyrirtæki má senda á
catering@khveitingar.is.“
Fjöldi skemmtilegra viðburða
er í boði í Hörpu svo sem
sinfóníutónleikar, ópera og
jólatónleikar. „Við munum að
sjálfsögðu vera með tilboð fyrir
tónleika- og viðburðargesti
Hörpunnar sem ætla að gera sér
glaðan dag í Hörpu um jólin.“
Borðapantanir fara í gegnum vefsíðu
Kolabrautarinnar: kolabrautin.is, í
síma 519-9700 eða í vefpósti: info@
kolabrautin.is
Fyrirspurnir um jólahlaðborð fyrir
hópa og fyrirtæki berist til catering@
khveitingar.is
Kolabrautin er staðsett á 4. hæð í
Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.