Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 71
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
VETRARPARADÍS Í SKÓGINUM:
Komdu og upplifðu
Jólamarkað í Heiðmörk
Hinn sívinsæli og dásamlegi Jólamarkaður í Heiðmörk verður opnaður um helgina.
Markaðurinn er haldinn ár hvert af
Skógræktarfélagi Reykjavíkur. „Við
bjóðum gestum að njóta með okkur
ljúfrar og notalegrar jólastemningar
í bland við stórskemmtilega
markaðsstemningu og fjölbreytta,
framsækna og áhugaverða
menningardagskrá. Þetta verður
sannkölluð vetrarparadís þar
sem fólk getur komið og fundið
ró inni í skóginum,“ segir Sara,
Jólamarkaðsstjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur.
Á handverksmarkaði
Jólamarkaðarins úir og grúir
af fallegum listaverkum,
handverksmunum og góðgæti
sem gaman er að skoða og gæða
sér á í aðdraganda jólanna. Hér
má auðveldlega finna fallegar og
einstakar jólagjafir handa vinum
og vandamönnum. „Vörurnar eru
unnar úr náttúrulegum efnivið.
Handverksfólkið og listamennirnir
eru að selja sjálfir og því má kynnast
þessu hæfileikaríka fólki og jafnvel
hlýða á skemmtilegar sögur á bak
við munina.“ Félagið rekur einnig
notalega kaffistofu. Verðlagið
verður hagstætt svo að flestir geti
fengið sér kakó eða kaffisopa í
fjölskyldufaðmi.
Einstakar vörur á markaðnum
Markaðurinn er síbreytilegur.
„Langflestir söluaðilar eru litlir
framleiðendur sem eru með bás hjá
okkur yfir aðeins eina helgi. Einstaka
aðilar eru þó allar helgarnar.
Þar má t.d. nefna Ytri Hólm sem
vinnur hangilæri eins og þau voru
upprunalega framleidd hér áður fyrr.
Engin saltsprautun eða ónauðsynleg
uppfylliefni, bara gamla góða
hangilærið.“ Meðal söluaðila má til
dæmis nefna Hraundísi og Íslenska
Hollustu. Nældu þér í dásamlega
fallegar jólagjafir sem unnar eru
af innlendu handverksfólki sem og
einstakar íslenskar sælkeravörur
sem fást alls ekki í hvaða búð sem er.
Sjálfbær og vistvæn ræktun
Á markaðnum verða að sjálfsögðu
til sölu gullfalleg jólatré. „Þó
svo að jólatrén okkar hjá
skógræktarfélögunum séu aðeins
dýrari en hjá samkeppnisaðilum
eru kostirnir við að kaupa frá okkur
fjölmargir. Jólatrén koma beinustu
leið úr skóginum okkar og með því
að versla við skógræktarfélög eru
viðskiptavinir að kolefnisjafna sitt
spor á árinu. Fyrir hvert tré sem er
hoggið gróðursetjum við fimmtíu ný
tré. Einnig eru þetta íslensk tré og
því enginn innflutningur eða olíuslóð
á bak við þau. Þetta eru einfaldlega
falleg og umhverfisvæn jólatré fyrir
kröfuharða Íslendinga.“
Óbeisluð náttúran heima í stofu
Þá verða einnig í boði Einstök jólatré.
„Þetta eru ekki þessi hefðbundnu,
þríhyrningslaga jólatré, heldur koma
þau í allskonar stærðum, gerðum,
formum og tegundum. Grenitré eru
svo ótrúlega fjölbreytt og ein tegund,
eitt útlit og ein gerð hentar ekki
öllum. Einstök tré eru margskonar
alveg eins og mannfólkið. Þau eru
löng og mjó fyrir litlar íbúðir, stór
og villt fyrir þá sem hafa pláss, og
margt fleira. Þetta er pínu eins og
að hafa villta náttúru á stofugólfinu
heima hjá sér, en sjálfri finnst mér
þessi tré bera trjáskrautið jafnvel
betur en hefðbundnu jólatrén.
Á hverju ári bjóðum við
myndlistarmanni að skreyta
markaðstréð okkar. Í ár hefur Elín
Hansdóttir tekið það að sér og hefur
hún fullkomið listrænt frelsi til þess
að gera tréð að sínu.“
Fjölbreytt skemmtiatriði, menning
og notalegar fjölskyldustundir
Jólamarkaðsstemningunni
lýkur ekki hér. „Hingað koma
fjölbreyttir listamenn, rithöfundar
og tónlistarmenn sem halda
stemningunni uppi með upplestrum,
tónlistaratriðum og ýmsu fjöri. Fyrir
hverja helgi birtum við dagskrána
á Fabebook-síðu markaðarins,
Jólamarkaður í Heiðmörk.“
Notaleg fjölskyldustund með
varðeldi
Upplestur barnabóka hefst klukkan
14.00 alla dagana. „Þá kemur vel
valinn barnabókarhöfundur og les
upp fyrir börnin. Upplesturinn fer
fram í útikennslustofunni okkar,
Rjóðrinu, sem er inni í skóginum. Þá
er kveikt upp í varðeldi og allir sitja
kringum eldinn og hlýða á höfundinn.
Þarna skapast alveg himnesk
og notaleg kúrekastemning þar
sem krakkarnir gleyma sér alveg í
sögunni. Svo ryðst jólasveinninn inn í
Rjóðrið og tekur orðið. Krakkarnir eru
þá lei+ddir út á markaðstorgið þar
sem dansað er í kringum jólatréð.“
Jólamarkaðurinn við Elliðaárbæ
í Heiðmörk er haldinn allar
aðventuhelgar fram að jólum frá
kl. 12–17.
30.nóvember–1. desember
07.–08. desember
14.–15. desember
21.–22. desember.
Jólaskógurinn á Hólmsheiði
verður opnaður 7. desember
2019 en þar er hægt að höggva
sjálfur jólatré þrjár síðustu
aðventuhelgarnar fyrir jól.
Skógarmannakaffi mun krauma
allan liðlangan daginn og
Jólaskógakaffivagninn selur
kakó með rjóma, kö kur og annað
gotterí. Opið frá 11–16.
7.–8. desember OPNUN
14.–15. desember
21.–22. desember