Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 21
22. nóvember 2019 FRÉTTIR 21
DV hafði samband við Verkalýðsfélag
Snæfellinga og ræddi við Vigni Smára
Maríasson sem staðfesti að Armindo
væri í samskiptum við stéttarfélagið.
Gat hann þó ekki tjáð sig um hvort og
þá hve mörg önnur mál væru í vinnslu
hjá þeim sem vörðuðu starfsmenn
Hrauns veitingahúss.
Varðandi kennitölubreytingu
Hrauns sögðu þeir lítið hægt að gera
þar sem fyrirhugaðar lagabreytingar til
að koma í veg fyrir kennitöluflakk væru
ekki komnar í gegn. „Það er ekki enn
komin í gegn lagabreyting til að koma
fyrir kennitöluflakk eða allavega hægja
á því ef svo má segja, eins og hefur ver-
ið sagt því ekki megi setja of íþyngj-
andi lög. Þetta er bara svoleiðis. Nú er
bara verið að lýsa kröfum í þrotabú fyrir
starfsmenn í þeim gömlu málum sem
voru. En nú er náttúrlega komið nýtt
fyrirtæki.“
Atvinnurekendum beri ávallt skylda
til að standa skil gagnvart starfsmönn-
um á launaseðlum. Hins vegar tryggi
kjarasamningar vissan frest til að ganga
frá skriflegum ráðningarsamningi. „Það
er skylt að afhenda launaseðil, en nægj-
anlegt að afhenda rafrænan launaseð-
ill. Það er skylt að ganga frá skrifleg-
um ráðningarsamningi innan tveggja
mánaða. Samkvæmt kjarasamningum.“
En er ástæða til að óttast að at-
vinnurekandi sem ítrekað verður upp-
vís að sömu brotum gegn starfsmönn-
um sínum muni ekki láta af háttsemi
sinni?
„Maður óttast það. En lengi skal
manninn reyna.“
Blaðamaður spurði hvort mikið væri
um að erlendir starfsmenn leituðu til
félagsins vegna ágreinings við vinnu-
veitendur. „Það er mjög algengt, og
það er að aukast, að fólk er koma til að
forvitnast um rétt sinn. Sem betur fer er
fólk að verða meðvitaðra um það. Það
er líka algengt að það komi og spyrji
bara: Er þetta rétt? Það er líka algengt
að atvinnurekendur hringi og spyrji:
Á ég að gera þetta svona? Það er mjög
ánægjulegt.“
En eru almennt að koma fleiri eða
færri erindi inn á borð hjá ykkur um
þessar mundir?
„Þeim hefur fjölgað núna á þessu
ári.“
Blaðamaður hafði
samband við Jón
Kristinn vegna
máls Armindos,
sem vildi upphaf-
lega ekki tjá sig en
vísaði ásökunum
Armindos á bug.
Ég er blaða-
maður á DV og
maður að nafni
Armindo leit-
aði hingað til okkar og segir farir sínar
ekki sléttar og frásögn hans rímar við
þær frásagnir sem bárust frá fyrrverandi
starfsfólki þínu hér í janúar. Ég vildi
því hafa samband og gefa þér kost á að
koma þinni hlið á framfæri.
„Ertu ekki að grínast? Hérna hefurðu
nokkuð skoðað, nei þú hefur ekki …
ehhh nei nei … ég vil ekkert segja um
þetta nema bara þetta að Armindo vinn-
ur ekki hjá okkur lengur og ekkert neitt
frekar um það að segja.“
En er eitthvað til í því sem hann seg-
ir, að hann hafi ekki fengið ráðningar-
samning eða launaseðla?
„Sko, hann er ekkert búinn að fá,
maðurinn vann bara hjá okkur í nokkra
daga. Hann er bara ekki búinn að fá
launaseðil, hann fær bara borgað 1. des-
ember eins og allir aðrir.“
En byrjaði hann ekki í október?
„Við greiðum laun frá 20.–19. svo
það er allt innan þess ramma. Hann er
samt búinn að fá held ég 75 prósent af
laununum sínum greidd fyrirfram. Svo-
lítið skemmtilegt að það skuli hringja
bjöllum hjá þér út af því sem gerðist í
janúar út af því að það er sem sagt blaða-
maður frá ykkur búinn að hringja í mig
til að biðjast afsökunar á grein ykkar frá
því í janúar, því hún var bara eins röng
og hún gat mögulega orðið. Það mál
endaði þannig að verkalýðsfélagið hér
í Snæfellsbæ þurfti að borga flugfarið
fyrir þennan mann sem mótmælti fyrir
utan hjá mér, heim til sín, af því að hann
var farinn að valda þeim vandræðum.
Og þetta mál hafði sko svo mikil áhrif á
fjölskylduna mína, vegna þess að þetta
var bara hreinn viðbjóður, algjörlega út
í gegn, og þið áttuð ykkar þátt í því sko.
[innsk. blm. Blaðamaður þekkir ekki til
þess að Jón hafi verið beðinn afsökunar
og frétt DV af málinu var aldrei tekin úr
birtingu]
Það var líka greint frá málinu í
Stundinni og í Fréttablaðinu.
„Þeir áttu líka þátt í því enda eru allir
nema Stundin búnir að hringja í mig og
spyrja mig hvort ég hafi áhuga á því að
þeir fjalli um málið aftur og leiðrétti þar
minn hlut, en ég hef bara engan áhuga
á því vegna þess að ég er búinn að sjá
hvernig þessir hlutir virka. Það hefur
enginn áhuga á að fjalla um sannleik-
ann, þeir hafa bara áhuga á að segja að
einhver gaur sé ljótur og þá skrifa allir
einhver komment undir, sko.“
Og heldur þú að þessi umræða hafi
haft áhrif á að fyrirtækið fór í þrot og
þurfti að skipta um kennitölu?
„Já, algjörlega. Ég er búinn að reka
þetta fyrirtæki í sex ár og hef aldrei ver-
ið undir áætlun í sölu nema í þessa fjóra
mánuði eftir að þetta mál kom upp.
Þetta er bara skólabókardæmi. Ég er ekki
að segja að ég sé fullkominn, ég hef gert
þúsund mistök en þetta voru bara ekkert
mistök.“
Ókei, og þú segir að einhver frá, ókei …
„Þessi Armindo er að reyna að hafa
samband við verkalýðsfélagið hérna í
Snæfellsbæ því verkalýðsfélag hans, Mat-
vís, vill væntanlega, þú veist, hann vann
náttúrlega bara hjá mér í nokkra daga svo
það er ekki enn búið að greiða fyrir hann
í verkalýðsfélagið en hann greiðir í Mat-
vís þar sem hann er matreiðslumaður og
hann er að reyna að fá verkalýðsfélagið
hér eitthvað til að hjálpa sér því Matvís
væntanlega vill það ekki. Við gerðum ná-
kvæmlega ekki neitt rangt gagnvart þess-
um gaur, það var bara vesen á honum,
hann gat ekki unnið hjá okkur. Hann fær
hverja einustu krónu sem hann vann sér
inn hjá okkur greidda 1. desember. Ég
þurfti sko að greiða fyrir hann bílaleigu-
bíl eftir að ég sagði honum upp því bíla-
leigan treysti honum ekki, svo endilega
fjallið um þetta og þá gerum við bara
eitthvað í þessu máli frá því í janúar.“
Var hann ráðinn inn hjá ykkur sem
yfirkokkur?
„Hann var bara ráðinn inn hjá mér
til að prófa og það bara gekk ekki upp.
Hann var bara ekki nógu góður.“
Máli sínu til stuðnings sýnir Armindo
blaðamanni prófskírteini og leyfisbréf úr
kokkaskóla, sem og ráðningarsamninga
frá fyrrverandi vinnuveitendum sem gefa
vissa hugmynd um þær launakröfur sem
hann gerir. „Ég færi aldrei að semja um
verri laun en ég hafði áður í starfi á Ís-
landi.“
Í dag, aðeins skömmu eftir að hafa
verið sagt upp störfum hjá Hrauni, er
Armindo þegar komin í góða stöðu hjá
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Sýn-
ir þetta að hans sögn fram á að það sé
í raun og veru tiltölulega auðvelt fyrir
mann með hans menntun og reynslu að
fá vinnu með skömmum fyrirvara.
„Ég byrjaði að vinna þarna [á Hrauni]
um miðjan mánuð í október. Um
mánaðamótin voru samstarfsfélaga mín-
ir búnir að fá borgað, en ekki ég. Ég fer
þá til Jóns Kristins og bið hann um að
borga mér launin mín og hann svar-
ar að hann geti reddað mér smá fyrir-
fram. Ég vildi ekkert fá fyrirfram, ég vildi
fá launin mín. Ég var búinn að vinna
þarna yfir 300 klukkustundir á mjög
skömmum tíma.“ Armindo sýnir blaða-
manni tímaskráningu sem sýnir yfir 300
unnar klukkustundir og grófan útreikn-
ing á brúttó launum fyrir það tímabil.
Sú upphæð nam ríflega milljón. Hafði
hann fengið 150 þúsund fyrirfram um
það leyti sem hann tók við stöðunni,
síðan hafði Jón Kristinn greitt bílaleigu-
bíl fyrir Armindo, 78 þúsund og svo fékk
hann 100 þúsund krónur um mánaða-
mótin. Þessi upphæð var mun lægri en
Armindo hafði reiknað með auk þess
fylgdi útborgun enginn launaseðill og
enginn sundurliðun á hvernig launin
væru reiknuð út eða hvað væri dregið frá
þeim.
Armindo gekk hart á eftir ráðningar-
samningi og launum sínum og telur að
vegna þess hafi Jón Kristinn sagt honum
upp störfum, en Jón hefði aðeins viku
fyrir uppsögnina lýst yfir ánægju sinni
með störf hans. Í kjölfarið leitaði hann til
Verkalýðsfélags Snæfellinga og segir að
þar hafi ekki virst koma nokkrum manni
á óvart þegar hann nefndi hver vinnu-
veitandi hans væri.
„Þeir sögðu bara orðrétt: Herra Jón
gerði það aftur.“
Armindo Segist
ekki ætla að láta
þetta yfir sig ganga
og hefur leitað til
verkalýðsfélagsins
JÓN KRISTINN ÁSMUNDSSON:
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ