Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 65
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
LEITIN AÐ VORINU:
Æsispennandi þríleikur eftir
nýjan höfund!
Í tilbúinni veröld Norðurheims hafa íbúar sívaxandi áhyggjur af því að veturinn virðist ætla
að verða endalaus eitt árið. Tvær
ólíklegar hetjur, Húgó og Alex,
veljast til að reyna að komast því
hvernig standi á þessu. Þær þurfa
að leggja á sig langt og erfitt
ferðalag, berjast við kynjaskepnur
og skrímsli og sigrast á ýmsum
vanda. Ævintýrinu lýkur þó ekki í
bráð því Leitin að vorinu er aðeins
sú fyrsta af þremur í sagnabálkinum
Ferðin á heimsenda.
Ævintýri fyrir nútímabörn
Höfundurinn Sigrún Elíasdóttir er
líka móðir tveggja nútímabarna
sem hafa úr miklu magni
afþreyingarefnis að velja. Ef
athygli þeirra er ekki náð á fyrstu
blaðsíðunum, fara þau bara að
gera eitthvað annað. „Synir mínir
hafa kennt mér hvað sé mikilvægast
í barnabók; hröð atburðarás, húmor
og nóg af skrímslum. Aðallega þetta
með skrímslin samt.“ Báðir synirnir
eru miklir lestrarhestar og hafa
lagt sitthvað til málanna við skrif
bókaflokksins.
Norrænar þjóðsögur
Í bókinni er að finna margar
furðuskepnur sem sumar eru
hannaðar af eldri syni höfundar en
aðrar eru byggðar á þjóðsögum
eða goðsögulegum fyrirbærum
í Norðurheimi. Höfundur leitaði
í sagnabrunn Grænlendinga,
Orkneyja, Norðmanna og ekki síst
Íslendinga til að fá hugmyndir að
ólíkum verum þó að sumum þeirra
hafi verið breytt töluvert.
Aldrei nóg af myndum
Myndskreyttar íslenskar barnabækur
áttu verulega undir högg að sækja á
tímabili vegna kostnaðar. En vegna
átaks hins opinbera til að fá íslenska
teiknara til að skreyta íslenskar bækur,
hefur þeim sem betur fer fjölgað á ný.
Leitin að vorinu státar af frábærum
myndskreytingum eftir hinn
hæfileikaríka Sigmund Breiðfjörð. „Því
miður hef ég aldrei hitt Sigmund
en hann las söguna yfir og gerði
tillögur að myndum. Þær voru svo
merkilega líkar því sem ég hafði
séð fyrir mér að það var eiginlega
ótrúlegt. Það er ómetanlegt að hafa
aðgang að svona hæfileikafólki,“
segir Sigrún um
samvinnu hennar
við myndskreyti
bókarinnar.
Fátt skemmtilegra
en að lesa fyrir
börnin sín
„Það er fátt
skemmtilegra en að
lesa skemmtilegar
bækur fyrir
börnin sín. Gæði
bóka skipta ekki
aðeins máli
fyrir börnin sem hlusta, heldur
líka fyrir foreldrana sem
þurfa að lesa þær. Í góðum
fjölskyldubókmenntum er gott
að hafa undirliggjandi boðskap
til að skapa góðar umræður milli
barna og fullorðinna. Furðusögur
með sína tilbúnu heima, samfélög
og leikreglur eru tilvaldar til að
setja hversdagslega hluti í örlítið
annað samhengi en við erum vön
að sjá dagsdaglega. Þá verður
misskipting eða óréttlæti svo
fráleitt að við getum ekki annað en
fordæmt það,“ segir höfundur.
Enginn getur allt
Aðalpersónurnar eru ekki
dæmigerðar hetjur heldur líka
meingallaðar hvor á sinn hátt.
Allir ættu alltaf að hafa í huga
að enginn getur allt en allir geta
eitthvað. Það sem einum gæti þótt
galli á manneskju, gæti líka reynst
vera hennar stærsti kostur. Það er
nokkuð sem á alls staðar við, hvort
sem er í ævintýrum eða raunheimi.
Fæst í öllum helstu bókabúðum og
matvöruverslunum sem selja bækur.