Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 65

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 65
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ LEITIN AÐ VORINU: Æsispennandi þríleikur eftir nýjan höfund! Í tilbúinni veröld Norðurheims hafa íbúar sívaxandi áhyggjur af því að veturinn virðist ætla að verða endalaus eitt árið. Tvær ólíklegar hetjur, Húgó og Alex, veljast til að reyna að komast því hvernig standi á þessu. Þær þurfa að leggja á sig langt og erfitt ferðalag, berjast við kynjaskepnur og skrímsli og sigrast á ýmsum vanda. Ævintýrinu lýkur þó ekki í bráð því Leitin að vorinu er aðeins sú fyrsta af þremur í sagnabálkinum Ferðin á heimsenda. Ævintýri fyrir nútímabörn Höfundurinn Sigrún Elíasdóttir er líka móðir tveggja nútímabarna sem hafa úr miklu magni afþreyingarefnis að velja. Ef athygli þeirra er ekki náð á fyrstu blaðsíðunum, fara þau bara að gera eitthvað annað. „Synir mínir hafa kennt mér hvað sé mikilvægast í barnabók; hröð atburðarás, húmor og nóg af skrímslum. Aðallega þetta með skrímslin samt.“ Báðir synirnir eru miklir lestrarhestar og hafa lagt sitthvað til málanna við skrif bókaflokksins. Norrænar þjóðsögur Í bókinni er að finna margar furðuskepnur sem sumar eru hannaðar af eldri syni höfundar en aðrar eru byggðar á þjóðsögum eða goðsögulegum fyrirbærum í Norðurheimi. Höfundur leitaði í sagnabrunn Grænlendinga, Orkneyja, Norðmanna og ekki síst Íslendinga til að fá hugmyndir að ólíkum verum þó að sumum þeirra hafi verið breytt töluvert. Aldrei nóg af myndum Myndskreyttar íslenskar barnabækur áttu verulega undir högg að sækja á tímabili vegna kostnaðar. En vegna átaks hins opinbera til að fá íslenska teiknara til að skreyta íslenskar bækur, hefur þeim sem betur fer fjölgað á ný. Leitin að vorinu státar af frábærum myndskreytingum eftir hinn hæfileikaríka Sigmund Breiðfjörð. „Því miður hef ég aldrei hitt Sigmund en hann las söguna yfir og gerði tillögur að myndum. Þær voru svo merkilega líkar því sem ég hafði séð fyrir mér að það var eiginlega ótrúlegt. Það er ómetanlegt að hafa aðgang að svona hæfileikafólki,“ segir Sigrún um samvinnu hennar við myndskreyti bókarinnar. Fátt skemmtilegra en að lesa fyrir börnin sín „Það er fátt skemmtilegra en að lesa skemmtilegar bækur fyrir börnin sín. Gæði bóka skipta ekki aðeins máli fyrir börnin sem hlusta, heldur líka fyrir foreldrana sem þurfa að lesa þær. Í góðum fjölskyldubókmenntum er gott að hafa undirliggjandi boðskap til að skapa góðar umræður milli barna og fullorðinna. Furðusögur með sína tilbúnu heima, samfélög og leikreglur eru tilvaldar til að setja hversdagslega hluti í örlítið annað samhengi en við erum vön að sjá dagsdaglega. Þá verður misskipting eða óréttlæti svo fráleitt að við getum ekki annað en fordæmt það,“ segir höfundur. Enginn getur allt Aðalpersónurnar eru ekki dæmigerðar hetjur heldur líka meingallaðar hvor á sinn hátt. Allir ættu alltaf að hafa í huga að enginn getur allt en allir geta eitthvað. Það sem einum gæti þótt galli á manneskju, gæti líka reynst vera hennar stærsti kostur. Það er nokkuð sem á alls staðar við, hvort sem er í ævintýrum eða raunheimi. Fæst í öllum helstu bókabúðum og matvöruverslunum sem selja bækur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.