Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 60
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ ÍSLENSKI DRAUMURINN: Byrjaði með fimm bíla fyrir níu árum en er með yfir 2.000 bíla í dag Í nýjasta þættinum af Íslenska drauminum fer Magnús Sverrir Þorsteinsson yfir ótrúlega sögu sína og Blue Car Rental, en bílaleigan hefur stækkað gríðarlega hratt síðustu ár. Íslenski draumurinn er hlaðvarp sem þeir Sigurður Sindri Magnússon og Eyþór Jónsson standa á bak við, en í þáttunum tekur Sigurður viðtöl við íslenska frumkvöðla og viðskiptamenn og fer yfir þeirra feril. Sigurður Sindri Magnússon er stjórnandi og annar framleiðandi þáttanna. Sigurður stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki árið 2013 og hefur síðan verið í fyrirtækjarekstri ásamt því að útskrifast sem viðmótsforritari frá Vefskólanum árið 2017. Í dag rekur hann ferðaþjónustufyrirtækið Deluxe Iceland. Deluxe Iceland var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í prívat lúxusferðum um Ísland með ferðamenn sem vilja upplifa það besta af landinu á sem þægilegastan hátt. Sigurður Sindri Magnússon er stjórnandi og annar framleiðandi þáttanna „Mér fannst vanta nánari innsýn í heim þeirra aðila sem hafa stofnað og rekið sitt eigið fyrirtæki á Íslandi. Við fórum af stað með fjóra viðtalsþætti þar sem ég vel í þættina viðmælendur sem vekja áhuga minn og hafa náð góðum árangri á sínum viðskiptaferli. En við munum einnig gefa út umræðuþætti, þar sem við leggjum áherslu á ákveðið umræðuefni og fáum til okkar góða gesti til þess að kafa dýpra í hvert umræðuefni fyrir sig. Umræðuþættirnir eru um allt sem tengist fyrirtækjarekstri, hugarfari og hvernig þú getur náð lengra í lífinu. Þetta er bara byrjuninn,“ segir Sigurður. Fer yfir söguna Magnús Sverrir Þorsteinsson er stofnandi og eigandi bílaleigunnar Blue Car Rental og Blue Apartments. Magnús fer yfir söguna, allt frá fyrstu dögum í rekstri til þess hvernig það er að reka eina stærstu bílaleigu landsins. Magnús, eða Maggi í Blue eins og hann er stundum kallaður, fór af stað með aðeins fimm bíla árið 2010 en síðan þá hefur bílaleigan vaxið gríðarlega og telur bílaflotinn yfir tvö þúsund bíla í dag, en það gerir Blue Car Rental eina af stærstu bílaleigum landsins. Blue Car Rental var stofnað árið 2010 af Magnúsi og eiginkonu hans, Guðrúnu Sædal Björgvinsdóttur. Það má segja að vöxtur bílaleigurnar hafi verið ævintýralegur en velta fyrirtækisins tvöfaldaðist ár frá ári og hefur bílaleigan alltaf skilað hagnaði sem telst mikið afrek á markaði sem svona gríðarlega mikil samkeppni ríkir á. Steinþór Jónsson – Eigandi Hótel Keflavíkur og Diamond Suites sem var í þætti númer tvö. Hægt er að sjá alla næstu þætti og lesa meira um viðmælendur á síðunni islenskidraumurinn. is, en Íslenska drauminn er einnig hægt að nálgast á öllum helstu streymisveitum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.