Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 60
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
ÍSLENSKI DRAUMURINN:
Byrjaði með fimm bíla fyrir níu árum
en er með yfir 2.000 bíla í dag
Í nýjasta þættinum af Íslenska drauminum fer Magnús Sverrir Þorsteinsson yfir ótrúlega
sögu sína og Blue Car Rental, en
bílaleigan hefur stækkað gríðarlega
hratt síðustu ár.
Íslenski draumurinn er hlaðvarp
sem þeir Sigurður Sindri Magnússon
og Eyþór Jónsson standa á bak
við, en í þáttunum tekur Sigurður
viðtöl við íslenska frumkvöðla og
viðskiptamenn og fer yfir þeirra feril.
Sigurður Sindri Magnússon er
stjórnandi og annar framleiðandi
þáttanna. Sigurður stofnaði sitt
fyrsta fyrirtæki árið 2013 og hefur
síðan verið í fyrirtækjarekstri ásamt
því að útskrifast sem viðmótsforritari
frá Vefskólanum árið 2017. Í dag
rekur hann ferðaþjónustufyrirtækið
Deluxe Iceland. Deluxe Iceland var
stofnað árið 2015 og sérhæfir sig
í prívat lúxusferðum um Ísland
með ferðamenn sem vilja upplifa
það besta af landinu á sem
þægilegastan hátt.
Sigurður Sindri Magnússon er
stjórnandi og annar framleiðandi
þáttanna
„Mér fannst vanta nánari innsýn
í heim þeirra aðila sem hafa
stofnað og rekið sitt eigið fyrirtæki
á Íslandi. Við fórum af stað með
fjóra viðtalsþætti þar sem ég vel
í þættina viðmælendur sem vekja
áhuga minn og hafa náð góðum
árangri á sínum viðskiptaferli.
En við munum einnig gefa út
umræðuþætti, þar sem við leggjum
áherslu á ákveðið umræðuefni og
fáum til okkar góða gesti til þess
að kafa dýpra í hvert umræðuefni
fyrir sig. Umræðuþættirnir eru um
allt sem tengist fyrirtækjarekstri,
hugarfari og hvernig þú getur
náð lengra í lífinu. Þetta er bara
byrjuninn,“ segir Sigurður.
Fer yfir söguna
Magnús Sverrir Þorsteinsson er
stofnandi og eigandi bílaleigunnar
Blue Car Rental og Blue Apartments.
Magnús fer yfir söguna, allt frá
fyrstu dögum í rekstri til þess hvernig
það er að reka eina stærstu bílaleigu
landsins.
Magnús, eða Maggi í Blue eins
og hann er stundum kallaður, fór
af stað með aðeins fimm bíla árið
2010 en síðan þá hefur bílaleigan
vaxið gríðarlega og telur bílaflotinn
yfir tvö þúsund bíla í dag, en það
gerir Blue Car Rental eina af stærstu
bílaleigum landsins.
Blue Car Rental var stofnað árið
2010 af Magnúsi og eiginkonu hans,
Guðrúnu Sædal Björgvinsdóttur.
Það má segja að vöxtur bílaleigurnar
hafi verið ævintýralegur en velta
fyrirtækisins tvöfaldaðist ár frá
ári og hefur bílaleigan alltaf skilað
hagnaði sem telst mikið afrek á
markaði sem svona gríðarlega mikil
samkeppni ríkir á.
Steinþór Jónsson – Eigandi Hótel
Keflavíkur og Diamond Suites sem
var í þætti númer tvö.
Hægt er að sjá alla næstu þætti
og lesa meira um viðmælendur
á síðunni islenskidraumurinn.
is, en Íslenska drauminn er einnig
hægt að nálgast á öllum helstu
streymisveitum.