Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 75
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
KOMBUCHA ICELAND:
Byrjaði
að drekka
Kombucha
Iceland og fann
ótrúlegan mun!
Íþróttakonan Sædís Jónsdóttir er ein af þeim fjölmörgu góðu og heilbrigðu fyrirmyndum sem við
eigum hér á Íslandi. Einungis 24
ára gömul hefur hún unnið þrekvirki
í ýmsum íþróttakeppnum og meðal
annars tekið þátt í Ironman-keppni
í Svíþjóð, þar sem hún tók hálfan
járnkarl. Hún stefnir nú á að æfa
fyrir heilan Ironman. „Ég hef alltaf
verið mikið íþróttum frá því ég man
eftir mér. Núna er ég aðallega að
einbeita mér að sundi, hjólreiðum
og hlaupakeppnum. Þá keppi ég
oft í hverri íþrótt fyrir sig en myndi
þó segja að mín helsta íþrótt sé í
rauninni þríþraut. Þá er þessum
þremur greinum blandað saman
í eina keppni. Mjög fjölbreytt og
skemmtilegt!“ segir Sædís.
Sædís heyrði fyrst af kombucha
í gegnum vinkonur sínar sem voru
að búa þetta til sjálfar. Þær reyndu
að segja henni frá því hvað þetta
átti að vera hollt og gott, en eins
og með svo margt annað þá fór
boðskapurinn beint inn um annað
eyrað og út um hitt.
Ótrúlegt hvað ég fann mikinn mun
á stuttum tíma
„Það var ekki fyrr en ég fann áhrifin
af kombucha sjálf að ég fór að
kynna mér það betur. Ég var stödd
á Indlandi með matareitrun, sem
ruglaði alla þarmaflóruna mína og
sýrustigið í maganum. Ég gat ekkert
borðað í marga daga því maginn var
í svo miklu ójafnvægi að hann hélt
engu niðri. Ég hafði prófað ýmislegt
en fann ekkert sem virkaði. Vinkona
mín var með mér, einnig með svipuð
einkenni, og hún hafði áður sagt mér
frá kombucha. Þá lagði hún til að við
gæfum því séns. Innan við sólarhringi
síðar vorum við byrjaðar að geta
borðað á ný. Það var ótrúlegt hvað ég
fann mikinn mun og á stuttum tíma.“
Sædís er með mjólkur- og
glúteinóþol en hafði lengst af
ekki nokkra hugmynd um það.
„Ég var aldrei að glíma við nein
magavandamál og það var afar lítið
sem sagði mér að eitthvað væri að.
Líkaminn er svo magnaður. Ef hann
upplifir sama verkinn endurtekið,
fer hann að loka á taugaboðin sem
segja okkur að eitthvað sé að. Hann
heldur bara að við ætlum ekkert að
gera í vandamálinu. Sem barn hef
ég líklega upplifað óþægindi vegna
glútein- og mjólkurvara, en verið
of mikill óviti til þekkja orsökina og
því gerði ég ekkert í málinu. Með
tímanum byrjaði líkaminn að loka
á taugaboðin og eftir því sem ég
eltist, hætti ég að fá verki. Ég hafði
ekki hugmynd um að eitthvað væri
að. Í raun höfðu myndast þvílíkar
magabólgur í maganum á mér.
Þarmaflóran versnaði og versnaði
og því fylgdu aukaverkanir sem við
tengjum sjaldan við óheilbrigðan
meltingarveg.“
Kynntist loks Kombucha Iceland
„Eftir að ég kom heim frá Indlandi
fór ég að prófa mig áfram með þær
vörur sem eru seldar hérlendis. Mér
fannst erfitt að finna kombucha
sem var jafn „tært“ eða sterkt og á
Indlandi. Flest fannst mér of sætt og
ég fann lítinn mun við að drekka það.
Loks kynntist ég Kombucha Iceland-
drykkjunum og er búin að vera alveg
„húkkt“ á þeim síðan.“
Kombucha lagaði þarmaflóruna
„Þegar ég fór að drekka Kombucha
Iceland fóru gerlanir í drykknum að
vinna á magabólgunum og gera
þarmaflóruna heilbrigða á ný. Smám
saman fann ég fyrir gríðarlegum
orkumun á mér, sem ég skildi
ekkert í. Þegar ég leitaði útskýringa
komst ég að því að líkaminn hafði
verið að nota gífurlega orku í vinna
gegn magabólgunum. Þegar ég
var búin að laga magabólgurnar
og þarmaflóruna með kombucha
gat líkaminn loks notað orkuna í
dagleg störf. Núna í dag, þegar
meltingarvegurinn er heilbrigðari og
Kombucha Iceland er búið að laga
magabólgurnar sem voru til staðar,
þá finn ég strax mun þegar ég borða
eitthvað sem hefur slæm áhrif á
meltingarveginn.“
Járnkona, eða að minnsta kosti
hálf járnkona
Sædís tók þátt í Ironman 70.3 í
Svíþjóð í sumar, eða því sem kallað
er hálfur járnkall. „Keppnin var
samansett af 1,9 kílómetrum af
sundi, 90 kílómetrum á hjóli og svo
hálfu maraþoni. Ég veit í raun ekki
alveg hvar mörkin liggja á því að
vera kölluð járnkona en ég ætla
að leyfa þeim titli að koma þegar
ég klára heilan Ironman.“ Það má
fylgjast með afrekum Sædísar á
Instagram: @saedis95.
Kombucha hjálpar mér að ná
markmiðum mínum
„Það skiptir miklu máli hvað ég
set ofan í mig upp á að hafa sem
bestu orkuna og mesta kraftinn
á æfingunum. Allt heilsusamlegt
hjálpar mér að ná markmiðunum
mínum. Kombucha Iceland hjálpar
mér að halda þarmaflórunni góðri
og meltingarveginum heilbrigðum.
Það er ótrúlegt hvað óheilbrigð
þarmaflóra getur haft slæm áhrif
bæði á líkamann, þ.e. orkulega
séð, en einnig andlegu hliðina.
Þarmaflóran hefur mun meiri áhrif
en við gerum okkur grein fyrir.
Því er mikilvægt að passa upp á
hana og halda meltingarveginum
heilbrigðum. Sérstaklega í
nútímanum þar sem til er svo
ótrúlega mikið af unnum vörum og
jafnvel erfiðara að komast í hreinar
og náttúrulega vörur.
Ég er alltaf frekar til í Kombucha
Iceland en eitthvað annað. Það
er smá koffín í drykknum og ef
klukkan er orðin margt og mig
langar ekki í heilan kaffibolla, finnst
mér gott að drekka kombucha í
staðinn. Kombucha Iceland er líka
saðsamt og ef ég er í nammistuði
þá drepur kombucha sætuþörfina.
Mitt uppáhaldsbragð frá
Kombucha Iceland er engifer eða
rauðrófubragðið. Einnig er spirulínu-
og jarðarberjabragðið í miklu
uppáhaldi. Ég er líka mjög spennt að
prófa piparmintu.“
Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru
meðlimir í Kombucha Iceland-
fjölskyldunni
Krónan, Melabúðin, Fjarðarkaup,
Hagkaup, Brauð og co, 10-11, Bio
Borgari, Luna Flórens, Gló, Kaffi
Laugalækur, Háma, Hipster, Lamb
Street Food, Happ, Garðurinn,
Reykjavík Roasters, Kaktus
Expresso, Yndisauki, Tíu Sopar, Café
Roma og Fylgifiskar.
Einnig eru nokkrir sölustaðir
úti á landi: Hús Handanna á
Egilsstöðum, Hjá Höllu í Grindavík,
Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi,
Kaja Organic á Akranesi, Búðarnes
á Bolungarvík og Fisk Company á
Akureyri.
Nánari upplýsingar á kubalubra.is og
facebooksíðunni Kombucha Iceland