Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 75

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 75
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ KOMBUCHA ICELAND: Byrjaði að drekka Kombucha Iceland og fann ótrúlegan mun! Íþróttakonan Sædís Jónsdóttir er ein af þeim fjölmörgu góðu og heilbrigðu fyrirmyndum sem við eigum hér á Íslandi. Einungis 24 ára gömul hefur hún unnið þrekvirki í ýmsum íþróttakeppnum og meðal annars tekið þátt í Ironman-keppni í Svíþjóð, þar sem hún tók hálfan járnkarl. Hún stefnir nú á að æfa fyrir heilan Ironman. „Ég hef alltaf verið mikið íþróttum frá því ég man eftir mér. Núna er ég aðallega að einbeita mér að sundi, hjólreiðum og hlaupakeppnum. Þá keppi ég oft í hverri íþrótt fyrir sig en myndi þó segja að mín helsta íþrótt sé í rauninni þríþraut. Þá er þessum þremur greinum blandað saman í eina keppni. Mjög fjölbreytt og skemmtilegt!“ segir Sædís. Sædís heyrði fyrst af kombucha í gegnum vinkonur sínar sem voru að búa þetta til sjálfar. Þær reyndu að segja henni frá því hvað þetta átti að vera hollt og gott, en eins og með svo margt annað þá fór boðskapurinn beint inn um annað eyrað og út um hitt. Ótrúlegt hvað ég fann mikinn mun á stuttum tíma „Það var ekki fyrr en ég fann áhrifin af kombucha sjálf að ég fór að kynna mér það betur. Ég var stödd á Indlandi með matareitrun, sem ruglaði alla þarmaflóruna mína og sýrustigið í maganum. Ég gat ekkert borðað í marga daga því maginn var í svo miklu ójafnvægi að hann hélt engu niðri. Ég hafði prófað ýmislegt en fann ekkert sem virkaði. Vinkona mín var með mér, einnig með svipuð einkenni, og hún hafði áður sagt mér frá kombucha. Þá lagði hún til að við gæfum því séns. Innan við sólarhringi síðar vorum við byrjaðar að geta borðað á ný. Það var ótrúlegt hvað ég fann mikinn mun og á stuttum tíma.“ Sædís er með mjólkur- og glúteinóþol en hafði lengst af ekki nokkra hugmynd um það. „Ég var aldrei að glíma við nein magavandamál og það var afar lítið sem sagði mér að eitthvað væri að. Líkaminn er svo magnaður. Ef hann upplifir sama verkinn endurtekið, fer hann að loka á taugaboðin sem segja okkur að eitthvað sé að. Hann heldur bara að við ætlum ekkert að gera í vandamálinu. Sem barn hef ég líklega upplifað óþægindi vegna glútein- og mjólkurvara, en verið of mikill óviti til þekkja orsökina og því gerði ég ekkert í málinu. Með tímanum byrjaði líkaminn að loka á taugaboðin og eftir því sem ég eltist, hætti ég að fá verki. Ég hafði ekki hugmynd um að eitthvað væri að. Í raun höfðu myndast þvílíkar magabólgur í maganum á mér. Þarmaflóran versnaði og versnaði og því fylgdu aukaverkanir sem við tengjum sjaldan við óheilbrigðan meltingarveg.“ Kynntist loks Kombucha Iceland „Eftir að ég kom heim frá Indlandi fór ég að prófa mig áfram með þær vörur sem eru seldar hérlendis. Mér fannst erfitt að finna kombucha sem var jafn „tært“ eða sterkt og á Indlandi. Flest fannst mér of sætt og ég fann lítinn mun við að drekka það. Loks kynntist ég Kombucha Iceland- drykkjunum og er búin að vera alveg „húkkt“ á þeim síðan.“ Kombucha lagaði þarmaflóruna „Þegar ég fór að drekka Kombucha Iceland fóru gerlanir í drykknum að vinna á magabólgunum og gera þarmaflóruna heilbrigða á ný. Smám saman fann ég fyrir gríðarlegum orkumun á mér, sem ég skildi ekkert í. Þegar ég leitaði útskýringa komst ég að því að líkaminn hafði verið að nota gífurlega orku í vinna gegn magabólgunum. Þegar ég var búin að laga magabólgurnar og þarmaflóruna með kombucha gat líkaminn loks notað orkuna í dagleg störf. Núna í dag, þegar meltingarvegurinn er heilbrigðari og Kombucha Iceland er búið að laga magabólgurnar sem voru til staðar, þá finn ég strax mun þegar ég borða eitthvað sem hefur slæm áhrif á meltingarveginn.“ Járnkona, eða að minnsta kosti hálf járnkona Sædís tók þátt í Ironman 70.3 í Svíþjóð í sumar, eða því sem kallað er hálfur járnkall. „Keppnin var samansett af 1,9 kílómetrum af sundi, 90 kílómetrum á hjóli og svo hálfu maraþoni. Ég veit í raun ekki alveg hvar mörkin liggja á því að vera kölluð járnkona en ég ætla að leyfa þeim titli að koma þegar ég klára heilan Ironman.“ Það má fylgjast með afrekum Sædísar á Instagram: @saedis95. Kombucha hjálpar mér að ná markmiðum mínum „Það skiptir miklu máli hvað ég set ofan í mig upp á að hafa sem bestu orkuna og mesta kraftinn á æfingunum. Allt heilsusamlegt hjálpar mér að ná markmiðunum mínum. Kombucha Iceland hjálpar mér að halda þarmaflórunni góðri og meltingarveginum heilbrigðum. Það er ótrúlegt hvað óheilbrigð þarmaflóra getur haft slæm áhrif bæði á líkamann, þ.e. orkulega séð, en einnig andlegu hliðina. Þarmaflóran hefur mun meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir. Því er mikilvægt að passa upp á hana og halda meltingarveginum heilbrigðum. Sérstaklega í nútímanum þar sem til er svo ótrúlega mikið af unnum vörum og jafnvel erfiðara að komast í hreinar og náttúrulega vörur. Ég er alltaf frekar til í Kombucha Iceland en eitthvað annað. Það er smá koffín í drykknum og ef klukkan er orðin margt og mig langar ekki í heilan kaffibolla, finnst mér gott að drekka kombucha í staðinn. Kombucha Iceland er líka saðsamt og ef ég er í nammistuði þá drepur kombucha sætuþörfina. Mitt uppáhaldsbragð frá Kombucha Iceland er engifer eða rauðrófubragðið. Einnig er spirulínu- og jarðarberjabragðið í miklu uppáhaldi. Ég er líka mjög spennt að prófa piparmintu.“ Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í Kombucha Iceland- fjölskyldunni Krónan, Melabúðin, Fjarðarkaup, Hagkaup, Brauð og co, 10-11, Bio Borgari, Luna Flórens, Gló, Kaffi Laugalækur, Háma, Hipster, Lamb Street Food, Happ, Garðurinn, Reykjavík Roasters, Kaktus Expresso, Yndisauki, Tíu Sopar, Café Roma og Fylgifiskar. Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi: Hús Handanna á Egilsstöðum, Hjá Höllu í Grindavík, Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi, Kaja Organic á Akranesi, Búðarnes á Bolungarvík og Fisk Company á Akureyri. Nánari upplýsingar á kubalubra.is og facebooksíðunni Kombucha Iceland
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.