Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 34
HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR: Besta gjöfin fer þangað sem þörfin er mest! Hjálparstarf kirkjunnar vinnur öflugt starf með fólki sem býr við fátækt hvort sem það er hér á Íslandi eða með fólki sem býr í einna fátækustu samfélögum heims. Til þess að veita þjónustuna aflar stofnunin fjár meðal annars með sölu gjafabréfa á vefsíðunni gjofsemgefur.is. Kristín Ólafsdóttir, upplýsinga- og fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, segir að gjafabréfin njóti mikilla vinsælda hjá fólki á öllum aldri, bæði hjá þeim sem gefa og þeim sem fá þau að gjöf. Gjöf sem heldur áfram að gefa „Gjafabréfin á vefsíðunni okkar, gjofsemgefur.is, hafa þann tvöfalda tilgang að veita fræðslu um starfið og afla fjár til þess um leið. Þau hafa verið mjög vinsæl til gjafa við ýmis tækifæri og þá sérstaklega til að gefa í jólagjöf,“ segir Kristín. „Fólk sem kemur á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar til þess að kaupa gjafabréf segir gjarnan við okkur að það hafi sjálft fengið gjöf sem gefur og verið hæstánægt með. Svo eru aðrir sem vilja gefa gjafabréf frá okkur vegna þess að sá sem á að fá það „eigi allt,“ segir Kristín. „Við finnum það sérstaklega núna þegar fólk er meðvitað um ofneyslu og mikilvægi umhverfisverndar að þá vill fólk frekar gefa – og fá – gjöf sem skiptir öllu máli fyrir þann sem virkilega þarf á gjöfinni að halda.“ Gjafabréfin á vefsíðunni gjofsemgefur.is eru 45 talsins og þau endurspegla margvíslega þætti í verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar svo sem í mannúðaraðstoð í kjölfar náttúruhamfara og vegna átaka og í þróunarsamvinnu í Eþíópíu og Úganda. Aðstoð við efnaminni fyrir jól Gjafabréfin fást á verðbilinu 1.500 til 260.000 krónur. Það ódýrasta, Undir jólatréð, kostar 1.500 krónur og endurspeglar þátt í starfinu hér heima en andvirði þess fer í jólagjöf fyrir barn á Íslandi. „Við erum einmitt núna að undirbúa sérstaka aðstoð við fólk sem býr við kröpp kjör hér á Íslandi fyrir jólin. Aðstoðin felst fyrst og fremst í því að fólkið fær inneignarkort í matvöruverslunum og jólagjafir fyrir börnin. En fólk getur líka komið hingað og fengið jólafatnað bæði fyrir börnin og fyrir sig sjálft, en fatnaðurinn hefur okkur verið gefinn og er vel með farinn, hreinn og heill,“ útskýrir Kristín. „Í desember 2018 leituðu 1.274 til Hjálparstarfs kirkjunnar og við eigum von á svipuðum fjölda umsókna fyrir komandi jól. Okkur reiknast þannig til að það séu um það bil 3.400 einstaklingar á bak við umsóknirnar,“ segir Kristín. „Fólk getur komið hingað fyrstu dagana í desember og sótt um aðstoð fyrir jólin en það eru félagsráðgjafar Hjálparstarfsins og sjálfboðaliðar sem taka á móti umsóknum frá þriðjudegi til fimmtudags, 3. til 5. desember, frá klukkan 11 til 15. Þjónusta veitt árið um kring „Fólk getur leitað til Hjálparstarfsins allt árið um kring en við leggjum sérstaka áherslu á að aðstoða barnafjölskyldur í upphafi skólaárs og yfir veturinn svo börnin geti stundað íþróttir, tónlistarnám og tekið þátt í frístundastarfi með vinum sínum og jafnöldrum,“ útskýrir Kristín. „Ungmenni sem búa við erfiðar aðstæður og eru í framhaldsskóla geta líka leitað til okkar um styrki fyrir námsgögnum eða jafnvel skólagjöldum.“ Kristín segir valdeflingu stóran þátt í starfinu innanlands. „Félagsráðgjafarnir okkar greina vandann með fólkinu sem hingað leitar, veita því félagslega ráðgjöf og efnislegan stuðning. En við skipuleggjum líka valdeflandi verkefni í síauknum mæli. Saumaverkefni fyrir konur af erlendum uppruna er eitt þessara verkefna. Yfir fimmtíu konur hittast nú einu sinni í viku og sauma alls kyns poka og fleira úr efni sem við höfum fengið gefins. Konurnar taka þannig þátt í umhverfisvernd um leið og þær fá félagsskap hver af annarri og komast út úr félagslegri einangrun.“ Geitin vinsælust Geitin er langvinsælasta gjafabréfið á gjafabréfasíðunni gjofsemgefur. is. Andvirði þess, 3.200 krónur, rennur til aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar við börn í sveitinni í Rakai- og Lyantonde-héruðum í Úganda. Börnin hafa misst foreldri úr alnæmi og búa við örbirgð. Þau fá meðal annars geitur til að hefja geitarækt til að tryggja fæðuöflun og fæðuval. Vatn og valdefling Unglingar í fátækrahverfum Kampala í Úganda fá tækifæri til mannsæmandi lífs með ársnámi í iðngrein og lífsleikni í smiðjum sem Hjálparstarf kirkjunnar fjármagnar. Að námi loknu fær unga fólkið sem hefur lagt stund á sauma saumavél í útskriftargjöf. Saumavélin fæst á gjofsemgefur.is og kostar 11.500 krónur. Sá sem fær gjafabréfið að gjöf veit að í hans nafni hefur unglingur í neyð fengið tækifæri til að láta draum sinn rætast. Gjafabréfið Hreint vatn fyrir 20 manns kostar 6.000 krónur en andvirði þess rennur til aðstoðar við íbúa á miklum þurrkasvæðum í Eþíópíu. Falleg gjöf Gjafabréf Hjálparstarfs kirkjunnar fást á vefsíðunni gjofsemgefur. is. Fólk skrifar persónulega kveðju á efri hluta gjafabréfsins en á neðri hluta eru upplýsingar um gjöfina sjálfa. Hægt er að prenta gjafabréfið út heima eða senda það með tölvupósti til viðtakanda. Þá er einnig hægt að biðja um að fá gjafabréfið útprentað og sent í pósti eða sækja sjálfur á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar að Háaleitsbraut 66 í Reykjavík. Stóra jólablaðið KYNNINGARBLAÐ 22. nóvember 2019 Yfir fimmtíu konur af erlendu bergi brotnar njóta nú samveru hver með annarri fyrir hádegi á mánudögum á meðan þær sauma innkaupapoka og fleira úr afgangsefni og leggja þannig sitt af mörkum til umhverfisverndar. Nýjasta gjafabréfið á gjofsemgefur.is heitir einmitt „Taupoki með tilgang“ en andvirði þess, 2.000 krónur, rennur til verkefnisins. Geitin er langvinsælasta gjafabréfið á gjafabréfasíðunni gjofsemgefur.is. Andvirði þess, 3.200 krónur, rennur til aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar við börn í sveitinni í Rakai- og Lyantonde-héruðum í Úganda. Börnin hafa misst foreldri úr alnæmi og búa við örbirgð. Þau fá meðal annars geitur til að hefja geitarækt til að tryggja fæðuöflun og fæðuval.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.