Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 89

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 89
TÍMAVÉLIN 8922. nóvember 2019 var í námi á Akureyri og við flutt- um þangað með alla krakkana. Ég var heimavinnandi húsmóðir og vann hálfan daginn á sólbaðs- stofu. Mig langaði að gera eitt- hvað meira því mér leiðist hvers- dagsleikinn. Einn daginn sá ég auglýsingu um söngvarakeppni og að það þyrfti að skrá sig til leiks það kvöld, sem ég og gerði,“ sagði Inga um aðdraganda keppninnar í viðtali við Vísi árið 2017. Í við- talinu játaði hún að hún hafði ekki hugmynd um hvað karókí væri þegar hún skráði sig til leiks. „Fyrsta sem ég spurði um var hvaða hljómsveit væri að spila og hvaða lag ég gæti sungið. Þá fékk ég þau svör að ég gæti valið á milli tíu þúsund laga. Ha? hváði ég þá. Hvers konar hljómsveit er það. […] Ég skildi ekkert hvað ég var að gera. Ég fór bara, söng og varð fyrsti Íslandsmeistarinn í karókí.“ Í framhaldinu festi Inga kaup á karókígræjum sem hún ferðað- ist með á ýmsar skemmtanir og vakti fyrir það mikla athygli. Þó að karókí væri búið að slá rækilega í gegn voru enn einhverjir sem skildu ekki þessa nýju tækni. „Margir halda að karókí sé bara diskótek og á einni skemmt- un sem ég var á góndi fólk for- viða á mig þegar ég fór að syngja. Einnig kemur það mörgum á óvart hvað ég er með fjölbreytt lagaval og get spilað og sungið lög fyrir alla aldurshópa,““ sagði Inga í viðtali við Dag árið 1992. Heimsfrægur í karókí Það má segja að árið 1991 hafi verið gullár karókí á Íslandi. Ís- lendingar brugðust hratt og ör- ugglega við og þetta ár kom fyrsta, íslenska karókíhljómplatan út. Platan hét Syngdu með og var gefin út af Skífunni. „Og nú getur hvaða Jón Jónsson sem er sungið heima í stofu með gömul og góð lög, eins og Eina ósk og Skólaball, með uppruna- legum undirleik án þess að hin- ar stjörnurnar trufli,“ var sagt um plötuna í kynningu á henni í Tím- anum árið 1991. Íslendingar létu sér ekki nægja að þenja raddböndin á Ís- landi heldur héldu nokkrir Ís- lendingar út á stóra karókí keppni í Newcastle í Bretlandi. Bjarni Arason sigraði í karókí keppni útvarpsstöðvanna á Íslandi og fékk í framhaldinu að keppa í Newcastle ásamt fyrrnefndri Ingu Sæland. Bjarni söng My Way með Frank Sinatra og svo fór að hann bar sigur úr býtum í Bretlandi. Var það mál manna að Inga hefði endað í öðru sæti, þótt önnur sæti en það fyrsta hafi aldrei verið gefin upp. Bjarni Ara var hæstánægður með sigurinn í keppninni, en á þessum tíma hafði hann dregið sig aðeins úr tónlistarbransanum á Íslandi. „Það er náttúrlega allt öðruvísi en að syngja á sviði en mjög skemmti- legt. Þá uppgötvast ágætis söngv- araefni í karókí,“ sagði hann í viðtali við DV. Það var ferðaskrif- stofan Alísa sem stóð fyrir vinsæl- um karókíferðum til Newcastle á þessu gullaldartímabili japönsku sönglistarinnar. Karókípartí, -keppnir og -kvöld dúkkuðu upp um allar koppagrundir. Allir sem vettlingi gátu valdið spreyttu sig í karókí á fyrri hluta tíunda áratugar síð- ustu aldar. Karókí var tekið með trompi, eins og svo margar nýj- ungar sem rekur að ströndum Íslands. Raftækjaverslanir og vídeó leigur sáu sér leik á borði og brátt var farið að selja handhægar karókígræjur til einstaklinga og vídeóleigur buðu upp á leigu á slíkum græjum í heimahús. SingStar til bjargar Um miðbik áratugarins fór þó að- eins að halla undan karókífætin- um og nýjabrumið farið af þessari einstöku uppfinn- ingu. Var því oft haldið fram að karókí væri hall- ærislegt og úrelt, aðeins nokkrum árum eftir að það kom fyrst til lands- ins og dvínuðu vinsældirn- ar mjög. Hins vegar héldu fyrir tæki, útvarpsstöðvar og landsliðið í karókí áfram að blása til karókíkvölda og -keppna víðs vegar um landið þannig að sportið dó aldrei út. Árið 2004 setti Playsta- tion síðan tölvuleikinn SingStar á markað sem virkaði eins og nú- tíma karókívél. Tölvuleikurinn varð gríðarlega vinsæll á Íslandi og voru haldin SingStar-teiti víðs vegar um bæ og borg. Og hvað gerist þegar partíið er búið en gesti þyrstir enn í söng? Jú, þá var haldið í karókí. Það má því segja að SingStar hafi verið öflug drif- fjöður í endurkomu karókímenn- ingar á Íslandi. Þótt karókí sé ekki með vin- sælustu íþróttunum lengur hér á landi þá lifir það samt góðu lífi, bæði á Ölveri sem og í heimahús- um þar sem tækninni fleygir fram og lítið mál að standa fyrir karókíkeppni heima í stofu. Hvort að karókí deyi einhvern tí- mann endanlega er erfitt að spá um en ljóst er að þetta sport hefur skreytt skemmtanalíf Íslendinga mörgum litfjöðrum. n Mögnuð uppfinning Fyrsta fréttin um karókígræjuna á Ölveri. Stuð í Sjallanum Karaoke-keppni í Sjallanum á Akureyri. Flakkari Inga keypti sér farandgræju og skemmti fólki. Syngdu með Fyrsta íslenska karaoke-platan. Látúnsbarkinn Bjarni Ara var duglegur í karao ke. Hressileg auglýsing Videóljón- ið með tilboð á karókígræjuleigu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.