Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 47
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
Gullsmiðir Jens hafa frá stofnun fyrirtækisins árið 1964 verið þekktir fyrir
djarfa og framsækna hönnun.
Íslenskir náttúrusteinar hafa verið
einkennandi í skartgripum Jens en
nú starfar þriðja kynslóð gullsmiða
hjá fyrirtækinu og hefur vöruúrvalið
aukist mjög frá upphafi fyrirtækisins.
Þó svo að skartgripasmíði hafi ávallt
verið helsta afurð fyrirtækisins þá
býður Jens einnig upp á margs
konar gjafavöru.
„Á undanförnum árum höfum
við unnið ötullega að því að breikka
vöruúrval okkar,“ segir Ingibjörg
Snorradóttir, framkvæmdastjóri Jens.
„Gullsmiðum okkar þykir einstaklega
gaman að skapa nýja hluti.“
Viðskiptavinir hanna sitt eigið
hálsmen
Ein nýjasta viðbótin við
skartgripalínu Jens kallast Gárur.
Það sem gerir línuna sérstaka
er að þar fær fólk tækifæri til að
setja saman sitt eigið hálsmen.
„Algengt er að fólk tengi skartgripi
einhverju persónulegu. Innblástur
Gáru-línunnar er fenginn þaðan.
Gárurnar koma í fjórum stærðum
sem raðast hver inn í aðra. Allar
stærðir eru til í fjórum gerðum
málma og eru þær ýmist skreyttar
hjörtum, íslenskum náttúrusteinum,
safírum, rúbínum eða demöntum.
Þannig er t.d. hægt að gefa foreldri
tveggja barna tvær gárur, t.d.
eina miðstærð af gullgáru með
hjarta, og aðra minni úr rósagulli.
Möguleikarnir eru ótalmargir og
það er gaman að sjá viðskiptavini
leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín.“
Uppreisn gegn hefðbundnum gildum
Fyrir rúmlega 10 árum kynnti Jens
til leiks skartgripalínuna Uppsteyt.
Um er að ræða ródíum-húðaða
silfurskartgripi sem þýðir að það
fellur síður á skartgripina, líkt og
margir kannast við að gerist með
silfurskartgripi. „Uppsteyt-línan er
uppreisn gagnvart hefðbundnum
gildum í skartgripaframleiðslu.
Þarna er að finna grófari hluti í
bland við fíngerða, sem margir
hverjir státa af skínandi cubic
zirconia-steinum. Steinarnir fást
í mörgum litum og hafa ofsalega
fallegan glampa.“
Stálið
er málið
Ingibjörg segir fyrirtækið
vera farið að nýta stál
til smíði skartgripa og ýmissar
gjafavöru. Þá sé notað hágæða
eðalstál sem viðheldur gljáa vel.
„Stálinu fylgja ýmsir kostir. Um er að
ræða einstaklega harðgert efni. Stál
er í allt öðrum verðflokki en t.d. silfur,
og því getum við leikið okkur með að
útbúa stóra, glannalega hluti úr stáli
sem dýrt er að smíða úr silfri. Við
höfum útbúið armbönd, eyrnalokka,
nælur og erum sífellt að breikka
þessa vörulínu okkar. Jöklaskálar og
kökuhnífar úr eðalstáli hafa notið
mikilla vinsælda hjá okkur.“
Einstök úr frá Jens
„Nýlega settum við á markað
fyrstu Jens-úrin en um er að ræða
einstaklega vönduð úr. Þau státa
af svissnesku úrverki og eru búin
til úr hágæða stáli og safírgleri.
Aftan á þeim er stór flötur sem
kjörinn er til að láta áletra. En helsta
kennileiti þessara úra er skífan sem
er úr svartri perlumóður. Um er að
ræða lithverft efni sem þýðir að litur
skífunnar breytist eftir því
hvernig ljós fellur á hana.“
Skandinavísk hönnun frá
Georg Jensen
Jens tók nýlega við sölumumboði
á skartgripalínu Georg Jensen.
„Við erum stolt af því að vera eini
söluaðili skartgripa frá þessum
skandinavíska hönnunarrisa. Við
erum einnig með gott úrval úr
gjafavörulínu frá Georg Jensen,
meðal annars jólaóróanum, en
margir safna hlutum úr jólavörulínu
Georg Jensen.“
Lykiláhersla lögð á að veita góða
þjónustu
„Við leggjum okkur fram við að
kynnast þörfum viðskiptavina okkar
og veita þeim framúrskarandi
þjónustu. Í mörgum tilfellum leita
viðskiptavinir til okkar til að finna
gjöf handa einhverjum nákomnum.
Að fá að taka þátt í þessu ferli
er það sem gerir starf okkar svo
skemmtilegt. Það er gaman að
hjálpa fólki að gleðja aðra.“
Hlutur vefverslunar eykst stöðugt
Þótt lögð sé rík áhersla á
persónulega þjónustu hefur
fyrirtækið einnig haslað sér völl á
sviði vefverslunar. „Vefverslunin
okkar er í stöðugri þróun og hefur
umferð um hana aukist mjög á
undanförnum árum.“ Ingibjörg segir
algengt að viðskiptavinir skoði fyrst
úrvalið í vefversluninni áður en þeir
leggja leið sína í verslanir Jens.
„Margir kjósa að ganga frá kaupum
í vefversluninni, enda er það einfalt
ferli. Þá geta viðskiptavinir valið um
að fá gripinn sendan, eða sækja
hann í Jens-verslun að eigin vali.“
Hjá Jens má finna mikið úrval
skartgripa og gjafavöru. Fyrirtækið
rekur þrjár verslanir; í Kringlunni,
Smáralind og að Grandagarði 31, auk
vefverslunar á www.jens.is.
JENS.IS:
Við hjálpum þér að gleðja
nákomna