Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 47
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ Gullsmiðir Jens hafa frá stofnun fyrirtækisins árið 1964 verið þekktir fyrir djarfa og framsækna hönnun. Íslenskir náttúrusteinar hafa verið einkennandi í skartgripum Jens en nú starfar þriðja kynslóð gullsmiða hjá fyrirtækinu og hefur vöruúrvalið aukist mjög frá upphafi fyrirtækisins. Þó svo að skartgripasmíði hafi ávallt verið helsta afurð fyrirtækisins þá býður Jens einnig upp á margs konar gjafavöru. „Á undanförnum árum höfum við unnið ötullega að því að breikka vöruúrval okkar,“ segir Ingibjörg Snorradóttir, framkvæmdastjóri Jens. „Gullsmiðum okkar þykir einstaklega gaman að skapa nýja hluti.“ Viðskiptavinir hanna sitt eigið hálsmen Ein nýjasta viðbótin við skartgripalínu Jens kallast Gárur. Það sem gerir línuna sérstaka er að þar fær fólk tækifæri til að setja saman sitt eigið hálsmen. „Algengt er að fólk tengi skartgripi einhverju persónulegu. Innblástur Gáru-línunnar er fenginn þaðan. Gárurnar koma í fjórum stærðum sem raðast hver inn í aðra. Allar stærðir eru til í fjórum gerðum málma og eru þær ýmist skreyttar hjörtum, íslenskum náttúrusteinum, safírum, rúbínum eða demöntum. Þannig er t.d. hægt að gefa foreldri tveggja barna tvær gárur, t.d. eina miðstærð af gullgáru með hjarta, og aðra minni úr rósagulli. Möguleikarnir eru ótalmargir og það er gaman að sjá viðskiptavini leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín.“ Uppreisn gegn hefðbundnum gildum Fyrir rúmlega 10 árum kynnti Jens til leiks skartgripalínuna Uppsteyt. Um er að ræða ródíum-húðaða silfurskartgripi sem þýðir að það fellur síður á skartgripina, líkt og margir kannast við að gerist með silfurskartgripi. „Uppsteyt-línan er uppreisn gagnvart hefðbundnum gildum í skartgripaframleiðslu. Þarna er að finna grófari hluti í bland við fíngerða, sem margir hverjir státa af skínandi cubic zirconia-steinum. Steinarnir fást í mörgum litum og hafa ofsalega fallegan glampa.“ Stálið er málið Ingibjörg segir fyrirtækið vera farið að nýta stál til smíði skartgripa og ýmissar gjafavöru. Þá sé notað hágæða eðalstál sem viðheldur gljáa vel. „Stálinu fylgja ýmsir kostir. Um er að ræða einstaklega harðgert efni. Stál er í allt öðrum verðflokki en t.d. silfur, og því getum við leikið okkur með að útbúa stóra, glannalega hluti úr stáli sem dýrt er að smíða úr silfri. Við höfum útbúið armbönd, eyrnalokka, nælur og erum sífellt að breikka þessa vörulínu okkar. Jöklaskálar og kökuhnífar úr eðalstáli hafa notið mikilla vinsælda hjá okkur.“ Einstök úr frá Jens „Nýlega settum við á markað fyrstu Jens-úrin en um er að ræða einstaklega vönduð úr. Þau státa af svissnesku úrverki og eru búin til úr hágæða stáli og safírgleri. Aftan á þeim er stór flötur sem kjörinn er til að láta áletra. En helsta kennileiti þessara úra er skífan sem er úr svartri perlumóður. Um er að ræða lithverft efni sem þýðir að litur skífunnar breytist eftir því hvernig ljós fellur á hana.“ Skandinavísk hönnun frá Georg Jensen Jens tók nýlega við sölumumboði á skartgripalínu Georg Jensen. „Við erum stolt af því að vera eini söluaðili skartgripa frá þessum skandinavíska hönnunarrisa. Við erum einnig með gott úrval úr gjafavörulínu frá Georg Jensen, meðal annars jólaóróanum, en margir safna hlutum úr jólavörulínu Georg Jensen.“ Lykiláhersla lögð á að veita góða þjónustu „Við leggjum okkur fram við að kynnast þörfum viðskiptavina okkar og veita þeim framúrskarandi þjónustu. Í mörgum tilfellum leita viðskiptavinir til okkar til að finna gjöf handa einhverjum nákomnum. Að fá að taka þátt í þessu ferli er það sem gerir starf okkar svo skemmtilegt. Það er gaman að hjálpa fólki að gleðja aðra.“ Hlutur vefverslunar eykst stöðugt Þótt lögð sé rík áhersla á persónulega þjónustu hefur fyrirtækið einnig haslað sér völl á sviði vefverslunar. „Vefverslunin okkar er í stöðugri þróun og hefur umferð um hana aukist mjög á undanförnum árum.“ Ingibjörg segir algengt að viðskiptavinir skoði fyrst úrvalið í vefversluninni áður en þeir leggja leið sína í verslanir Jens. „Margir kjósa að ganga frá kaupum í vefversluninni, enda er það einfalt ferli. Þá geta viðskiptavinir valið um að fá gripinn sendan, eða sækja hann í Jens-verslun að eigin vali.“ Hjá Jens má finna mikið úrval skartgripa og gjafavöru. Fyrirtækið rekur þrjár verslanir; í Kringlunni, Smáralind og að Grandagarði 31, auk vefverslunar á www.jens.is. JENS.IS: Við hjálpum þér að gleðja nákomna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.