Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 14
14 22. nóvember 2019FRÉTTIR
ÁSDÍS RÁN FLÆKT Í ALÞJÓÐLEGAN FJÁRSVIKAHRING
n Besta vinkonan horfin með tæpa þúsund milljarða n Ásdís Rán flaug heimshorna á milli í boði svikamyllunnar
Í
slenska fyrirsætan og
athafnakonan Ásdís Rán
Gunnarsdóttir er flækt í
eitt stærsta fjársvikamál
síðari ára sem teygir sig til 175
landa. Samkvæmt bandarísku
alríkislögreglunni, FBI, náði
besta vinkona Ásdísar Ránar,
búlgarska athafnakonan Ruja
Ignatova, að svíkja út tæpa
þúsund milljarða íslenskra króna
á heimsvísu áður en hún hvarf
sporlaust í október árið 2017.
Ekkert hefur spurst til hennar
síðan þá og hafa lögregluyfirvöld
víðs vegar í heiminum reynt að
hafa uppi á henni, líkt og vinkona
hennar Ásdís Rán en hún er
andlit fyrirtækisins sem talið er
að standi að baki svikamyllunni.
Loftbóla sem sprakk
Um er að ræða hina meintu
rafmynt OneCoin sem var
kynnt til sögunnar árið 2014
sem arftaki Bitcoin, vinsælustu
rafmyntar í heimi. Fyrirtækið,
sem enn ber nafn OneCoin
í nokkrum löndum, átti
höfuðstöðvar í Búlgaríu og voru
fjárfestar laðaðir að verkefninu
með loforðum um gríðarlegan
hagnað þegar rafmyntin færi á
almennan markað. Samkvæmt
bandarískum dómskjölum var
svikamyllan sett upp sem nokkurs
konar píramídasvindl. Fjárfestar
sem keyptu sig inn í „verkefnið“
gátu þannig fengið meira fyrir
peninginn, fleiri rafmyntir, ef þeir
gátu selt öðrum hugmyndina.
Bandaríska alríkislögreglan
segir þó að aldrei hafi nein
raunveruleg rafmynt legið að baki
OneCoin. Fyrirtækið hafi verið
rekið á lygum og blekkingum frá
upphafi. Uppblásin loftbóla sem
á endanum sprakk.
Svo virðist sem OneCoin hafi
ekki tekist að ná fótfestu hér á
landi en samkvæmt heimildum
DV gengu sölumenn á vegum
fyrirtækisins í hús hér á landi
á síðasta ári og buðu fólki að
fjárfesta í OneCoin. DV hefur
undir höndum tölvupóst sem
sendur var á kaupendur þar sem
þeir áttu að geta fundið svör við
væntanlegum spurningum.
Hin meinta rafmynt fékk
ævintýralega góðar viðtökur úti um
allan heim og það var ekki síst fyrir
tilstilli eigandans, hinnar heillandi
og sprenglærðu Ruja Ignatova,
sem tugir þúsunda einstaklinga,
fyrirtækja og félagasamtaka
tóku þátt og fjárfestu. Ruja flaug
þannig heimshorna á milli og
hélt glæsilegar veislur fyrir ríka
og fræga fólkið á sama tíma
og hún kynnti rafmyntina. Sú
sem skipulagði flestar þessar
veislur, var kynnir í þeim flestum,
starfsmaður OneCoin og andlit
fyrirtækisins var Ásdís Rán.
Íslenska athafnakonan segist þó
ekkert hafa starfað fyrir fyrirtækið
frá því vinkona hennar hvarf árið
2017.
„Ég veit ekki hvort hún sé
dáin eða ekki. Ég vil trúa því að
hún hafi þurft að láta sig hverfa
af einhverjum ástæðum og sé
vonandi á einhverri eyðieyju
einhvers staðar og sé að bíða eftir
því að sannleikurinn komi í ljós,“
segir Ásdís Rán, en hún trúir því
ekki að um píramídasvindl sé að
ræða.
„Þetta er ekki einhver
fjársvikamylla. Þetta er bara
blásið upp eins og Bitcoin á
sínum tíma. Það er alveg á
línunni hvort þetta sé löglegt eða
ólöglegt, en því hefur verið haldið
fram að þetta sé löglegt og það
má alveg deila um það. Það sama
á við um mörg píramídafyrirtæki
yfirhöfuð.“ Hún vill ekki svara
því hvort hún hafi sjálf fjárfest í
ævintýrinu.
Ásdís og Ruja
hafa verið
áberandi í
sviðsljósinu
í Búlgaríu.
Ljósmynd/
Inlife.bg.
Ásdís Rán birti þessa mynd af þeim
stöllum rúmlega tveimur mánuðum áður
en Ruja hvarf. Ekkert hefur sést til hennar
síðan. Ljósmynd/Facebook
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is