Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 70
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
Láran sokkin.
Innsiglinarmerki tilbúið.
Her er búið að dæla sjó
af skipinu.
Láran komin aftur í slipp.
Sóttu stærsta gimstein
á Íslandi af hafsbotni
Köfunarþjónusta Sigurðar tekur að sér öll verkefni sem snúa að köfun. „Ég stofnaði þetta fyrir 21
ári síðan eða 1998 og hef verið að kafa
alla daga síðan. Sjálfur leiddist ég út í
þetta af einskærri ævintýramennsku
eftir að hafa verið í björgunarsveit og
starfað sem sjómaður og vélstjóri.
Ég var alltaf heillaður af köfun sem
unglingur og tel mig vera heppinn
að geta starfað við köfun í dag,“
segir Sigurður Stefánsson, eigandi
Köfunarþjónustu Sigurðar.
Vandamálin eru ekki til
„Við sjáum um allt milli sjávaryfirborðs
og hafsbotns hvort sem það
er björgun skipa af fjölbreyttri
stærðargráðu eða viðhaldi
hafnarmannvirkja svo sem á
byggingum, flotbryggjum og
fleiru. Einnig höfum við þjónustað
kvikmynda- og auglýsingaiðnaðinn
þar sem þarf að ná skotum
neðansjávar og fleira.
Þegar kemur að hafnarmannvirkjum
erum við yfirleitt að kafa á 5-12 metra
dýpi. Oft erum við svo að kafa á rétt
undir 30 metra dýpi og svo einstaka
sinnum höfum við farið undir 50
metrana. Okkar mottó er að það eru
ekki til nein vandamál. Það eru bara
verkefni sem þarf að leysa, og við
gerum alltaf okkar besta til þess að
leysa öll verkefni sem fljóta til okkar,“
segir Sigurður.
Alltaf nóg að gera
„Við erum allajafna sex sem störfum
hjá Köfunarþjónustu Sigurðar og
eigum það allir sameiginlegt að
vera miklir ævintýramenn. Það
sem er svo skemmtilegt við þessa
vinnu er að maður veit ekkert hvað
maður er að fara að gera þegar
maður vaknar á morgnana. Það er
alltaf nóg að gera hjá okkur enda er
vinnusvæði okkar allt landið, hvort
sem það eru Egilsstaðir, Raufarhöfn
eða Vestmannaeyjar. Við erum
annars allajafna staðsettir á Ásbrú.
Þá má það koma fram að við erum
að leita að fleiri köfurum til þess að
starfa með okkur. Áhugasamir mega
endilega hafa samband við okkur.“
Alveg eins og í Titanic
Hver man ekki eftir Titanic,
stórmyndinni sem skók heiminn árið
1997 og atriðinu þegar kafarinn kemur
upp með öryggisskápinn sem átti að
innihalda einn verðmætasta skartgrip
veraldar, Hjarta hafsins? En það eina
sem finnst í skápnum er teikning af
fallegri konu með menið um hálsinn.
Þeir sem hafa séð myndina vita að
steinninn fór aldrei niður með skipinu
heldur faldi aðalpersónan, Rose
DeWitt Bukater skartgripinn á sér og
kastaði svo í hafið á gamalsaldri. Því
fannst gimsteinninn aldrei.
Risastór perla á hafsbotni
En er þetta eitthvað líkt
þeim verkefnum sem þið hjá
Köfunarþjónustunni hafið verið að
starfa við? „Það má reyndar segja
að við sóttum stærsta gimstein
Íslandssögunnar af hafsbotni
Reykjavíkurhafnar fyrir nokkrum árum
síðan. Þá á ég ekki við raunverulegan
gimstein, heldur sanddæluskip að
nafni Perlan sem sökk í nóvember
2015. Við höfum tekið þátt í bæði litlum
og stórum verkefnum þegar kemur
að björgun skipa og var Perlan eitt
verkefna okkar sem fékk hvað mesta
umfjöllun í fjölmiðlum.“ Skipið sökk á
hálftíma 2. nóvember í Reykjavíkurhöfn
eftir að hafa verið sleppt úr slipp.
„Röð óheppilegra mistaka varð til
þess að skipið sökk og þar sem hátt í
12 þúsund lítrar af olíu voru í skipinu
og 800 lítrar af glussa hófumst
við handa, ásamt starfsmönnum
Björgunar við að loka skipinu til að
koma í veg fyrir að olía læki úr því og
til að undirbúa að hægt yrði að lyfta
því. Skipið lá svo á hafsbotni í tvær
vikur áður en við náðum að dæla úr
því sjó og ná því upp. Þegar svona
stór verkefni koma á borð hjá okkur
fáum við skipaverkfræðinga til þess
að vinna með okkur og að þessu
sinni unnum við með Navis til þess
að reikna út stöðugleika skipsins.“
Mánudaginn 16. nóvember tókst að
ná sanddæluskipinu Perlu af botni
Reykjavíkurhafnar.
Köfunarþjónusta Sigurðar er staðsett í
Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar má nálgast
á vefsíðunni dive4u.is og á
Facebooksíðunni: Köfunarþjónusta
Sigurðar ehf.
Sími: 899-6345
Netpóstur: siggi@dive4u.is
Björgun á 30 tonna beltagröfu í Kópavogi.
Hér er kafari að vinna við uppsetningu
innsiglingarmerkis í Sandgerði.