Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 70

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 70
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ Láran sokkin. Innsiglinarmerki tilbúið. Her er búið að dæla sjó af skipinu. Láran komin aftur í slipp. Sóttu stærsta gimstein á Íslandi af hafsbotni Köfunarþjónusta Sigurðar tekur að sér öll verkefni sem snúa að köfun. „Ég stofnaði þetta fyrir 21 ári síðan eða 1998 og hef verið að kafa alla daga síðan. Sjálfur leiddist ég út í þetta af einskærri ævintýramennsku eftir að hafa verið í björgunarsveit og starfað sem sjómaður og vélstjóri. Ég var alltaf heillaður af köfun sem unglingur og tel mig vera heppinn að geta starfað við köfun í dag,“ segir Sigurður Stefánsson, eigandi Köfunarþjónustu Sigurðar. Vandamálin eru ekki til „Við sjáum um allt milli sjávaryfirborðs og hafsbotns hvort sem það er björgun skipa af fjölbreyttri stærðargráðu eða viðhaldi hafnarmannvirkja svo sem á byggingum, flotbryggjum og fleiru. Einnig höfum við þjónustað kvikmynda- og auglýsingaiðnaðinn þar sem þarf að ná skotum neðansjávar og fleira. Þegar kemur að hafnarmannvirkjum erum við yfirleitt að kafa á 5-12 metra dýpi. Oft erum við svo að kafa á rétt undir 30 metra dýpi og svo einstaka sinnum höfum við farið undir 50 metrana. Okkar mottó er að það eru ekki til nein vandamál. Það eru bara verkefni sem þarf að leysa, og við gerum alltaf okkar besta til þess að leysa öll verkefni sem fljóta til okkar,“ segir Sigurður. Alltaf nóg að gera „Við erum allajafna sex sem störfum hjá Köfunarþjónustu Sigurðar og eigum það allir sameiginlegt að vera miklir ævintýramenn. Það sem er svo skemmtilegt við þessa vinnu er að maður veit ekkert hvað maður er að fara að gera þegar maður vaknar á morgnana. Það er alltaf nóg að gera hjá okkur enda er vinnusvæði okkar allt landið, hvort sem það eru Egilsstaðir, Raufarhöfn eða Vestmannaeyjar. Við erum annars allajafna staðsettir á Ásbrú. Þá má það koma fram að við erum að leita að fleiri köfurum til þess að starfa með okkur. Áhugasamir mega endilega hafa samband við okkur.“ Alveg eins og í Titanic Hver man ekki eftir Titanic, stórmyndinni sem skók heiminn árið 1997 og atriðinu þegar kafarinn kemur upp með öryggisskápinn sem átti að innihalda einn verðmætasta skartgrip veraldar, Hjarta hafsins? En það eina sem finnst í skápnum er teikning af fallegri konu með menið um hálsinn. Þeir sem hafa séð myndina vita að steinninn fór aldrei niður með skipinu heldur faldi aðalpersónan, Rose DeWitt Bukater skartgripinn á sér og kastaði svo í hafið á gamalsaldri. Því fannst gimsteinninn aldrei. Risastór perla á hafsbotni En er þetta eitthvað líkt þeim verkefnum sem þið hjá Köfunarþjónustunni hafið verið að starfa við? „Það má reyndar segja að við sóttum stærsta gimstein Íslandssögunnar af hafsbotni Reykjavíkurhafnar fyrir nokkrum árum síðan. Þá á ég ekki við raunverulegan gimstein, heldur sanddæluskip að nafni Perlan sem sökk í nóvember 2015. Við höfum tekið þátt í bæði litlum og stórum verkefnum þegar kemur að björgun skipa og var Perlan eitt verkefna okkar sem fékk hvað mesta umfjöllun í fjölmiðlum.“ Skipið sökk á hálftíma 2. nóvember í Reykjavíkurhöfn eftir að hafa verið sleppt úr slipp. „Röð óheppilegra mistaka varð til þess að skipið sökk og þar sem hátt í 12 þúsund lítrar af olíu voru í skipinu og 800 lítrar af glussa hófumst við handa, ásamt starfsmönnum Björgunar við að loka skipinu til að koma í veg fyrir að olía læki úr því og til að undirbúa að hægt yrði að lyfta því. Skipið lá svo á hafsbotni í tvær vikur áður en við náðum að dæla úr því sjó og ná því upp. Þegar svona stór verkefni koma á borð hjá okkur fáum við skipaverkfræðinga til þess að vinna með okkur og að þessu sinni unnum við með Navis til þess að reikna út stöðugleika skipsins.“ Mánudaginn 16. nóvember tókst að ná sanddæluskipinu Perlu af botni Reykjavíkurhafnar. Köfunarþjónusta Sigurðar er staðsett í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni dive4u.is og á Facebooksíðunni: Köfunarþjónusta Sigurðar ehf. Sími: 899-6345 Netpóstur: siggi@dive4u.is Björgun á 30 tonna beltagröfu í Kópavogi. Hér er kafari að vinna við uppsetningu innsiglingarmerkis í Sandgerði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.