Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 94
94 FÓKUS 22. nóvember 2019
R
oyal-búðingur er senni-
lega sá eftirréttur sem fylgt
hefur þjóðinni hvað lengst.
Upphaf búðingsins hér á
landi má rekja til breskra togara-
sjómanna sem sigldu um íslensk
mið.
„Agnar Ludvigsson er fyrir-
tækið á bak við Royal,“ segir Sig-
urður F. Kristjánsson, verkstjóri
John Lindsey, heildsölunnar sem
keypti fyrirtækið Agnar Ludvigs-
son fyrir tveimur áratugum.
„Þetta var bresk heildsala sem sá
aðallega um að sinna bresku tog-
urunum. Framleiðsla á Royal-
búðingi hófst hér á landi 1954
og fagnar því 65 ára afmæli sínu
í ár. Upphaflega framleiðslan var
í verksmiðju við Nýlendugötu en
við erum nú komin í nýtt hús-
næði að Klettagörðum. Það var
í raun fyrir sakir gjaldeyrishafta
að framleiðslan hófst hér á landi
því á þessu tímabili gekk erfið-
lega að fá vörur hingað til lands.
Það var því auðveldara að flytja
inn vélar og sjá um framleiðsluna
hér heima. Í kjölfarið var ráðist í
þessa framkvæmd, allt svo bresku
togarasjómennirnir lifðu af hér á
miðunum okkar – og við höfum
notið þess síðan.“
Karamellan sigurstranglegust
Sigurður er sem fyrr segir verk-
smiðjustjóri Lindsey en hann sér
jafnframt um innkaup og fram-
leiðslu á búðingnum.
„Ég fann það um leið og
ég opnaði hér dyrnar fyrir tólf
árum að hér átti ég heima. Ég
bara vissi að þetta starf steinlá.
Andinn var góður og Royal-búð-
ingurinn er svo sterkur í vitund-
inni, sem krakki var maður mik-
ill aðdáandi. Þetta er, eins og ég
segi alltaf, fyrsti „maturinn“ sem
krakkarnir læra að elda.“
Sjálfur sér Sigurður til þess
að lagerinn sé ávallt sneisafullur
en hann gæðaprófar sömuleiðis
framleiðsluna og segir að þar
skipti nákvæm vinnubrögð sköp-
um enda þekkja neytendur vör-
una afar vel.
„Bragðið hefur haldist óbreytt
í öll þessi á en bragðtegundum
hefur fækkað um eina. Upphaf-
lega voru þær fimm; karamella,
súkkulaði, vanillu, jarðarberja og
sítrónu en sú síðastnefnda hélt
ekki velli,“ segir Sigðurður og úti-
lokar um leið ekki að fleiri bragð-
tegundir muni líta dagsins ljós.
„Karamellan hefur í gegnum
árin alltaf verið sigurstrangleg-
asta bragðtegundin en súkkulað-
ið fylgir fast á hæla henni. En hver
veit hvort við verðum djörf og
komum með fleiri bragðtegund-
ir í náinni framtíð, það er aldrei
að vita. Staðreyndin er samt sú að
fólk heldur tryggð við þessa vör-
ur og Íslendingar vilja hafa Royal-
búðinginn sinn alveg eins og
hann hefur alltaf verið.“
Óbreyttar umbúðir
Athygli vekur að umbúðirnar hafa
jafnframt haldist óbreyttar frá
upphafi.
„Já, umbúðirnar eru ekki síð-
ur mikilvægur partur, en þær
hafa verið eins síðan á sjötta ára-
tugnum og framkalla óneitan lega
ákveðna fortíðarþrá í íslensku
þjóðarsálinni. Umbúðirnar eru
prentaðar í Kassagerðinni af lit-
filmum og því reynist erfitt að
breyta þeim þar sem þær eru á
ensku en með íslenskum leið-
beiningum.
Mér finnst alltaf jafn gaman
þegar nýútskrifaðir, grafískir
hönnuðir koma og skoða þetta
og segja svo: „nei, þessu má alls
ekki breyta“. Það er skemmtilegt
og sennilega ein af ástæðum þess
að þetta heldur sér enn. Fólk er
jafnframt að nota útlit umbúð-
anna í ýmiss konar listaverk og
við höfum fengið sendar mynd-
ir af bæði teikningum og annari
list sem sprottið hefur frá Royal.
Einu sinni fengum við mynd frá
konu sem hafði gert jólatré úr
umbúðunum heima hjá sér. Það
er verið að nota þetta í alls konar
listsköpun og það er frábært, en
það er akkúrat það að þetta er svo
sterkt vörumerki í höfðinu á okk-
ur og ekkert nema heiður að fá að
njóta þess.“ n
Fortíðarþrá í íslensku þjóðarsálinni
n Óbreyttar umbúðir n Karamellan vinsælust n Útiloka ekki fleiri bragðtegundir
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
M
Y
N
D
IR
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
„Markmið
Royal er
að láta öllum
finnast þeir eiga
það skilið að fá
konuglega þjón-
ustu – breyttu
heimili þínu í
höll og veittu
fólkinu þínu
konunglega
þjónustu