Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 32
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
NÍTRÓ:
Allt fyrir vetrarsportið
Nítró er ein elsta mótorsportvöruverslun landsins, en þar er að finna
allt sem viðkemur þessu áhugamáli,
hvort sem er um sumar- eða
vetrarsport að ræða.
Verslunin hefur lengi verið þekkt á
meðal mótorhjóla- og fjórhjólafólks
en það eru kannski færri sem vita
að Nítró sinnir einnig öllu sem
viðkemur vetrarsporti. Fyrst er að
nefna Arctic Cat-vélsleðana sem
fást núna í Nítró, einnig er hægt
að fá ýmsa slit- og aukahluti fyrir
allar tegundir vélsleða t.d. rífara,
nagla, meiða, karbíta, sleðahjól
(dollies), hita í handföng og
ýmislegt fleira, auk þess er hægt
að sérpanta vélar- og varahluti í
nær allar tegundir vélsleða. Nýjasta
æðið í vetrarsportinu er svokölluð
snjóhjól, en það eru torfæruhjól
sem beltabúnaður og skíði eru sett
undir. Í Nítró er að finna beltabúnað
frá Yeti og Mototrax í nokkrum
mismunandi útgáfum.
Mikið úrval af vetrarfatnaði
En það er ekki nóg að eiga góð
tæki því það þarf líka að klæða sig
rétt þegar kuldaboli bítur í kinnar. Í
versluninni er að finna allan fatnað
í vetrarsportið. Nítró er umboðsaðili
fyrir FXR á Íslandi sem framleiðir
gríðarlega breiða línu. Heilgalla,
úlpur, buxur, skó, hanska, undirföt,
gleraugu og hjálma, þannig að allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,
bæði börn og fullorðnir. Einnig er
Nítró með fatnað frá Motorfist, sem
framleiðir allan sinn fatnað með
eVent-vatnsvörn og öndun þannig
að þú ert viss um að vera þurr og
ósveittur í fatnaði frá þeim. Flottustu
sleðahjálmarnir á markaðnum í dag
eru Titan-hjálmarnir frá CKX, en þeir
eru sérhannaðir með vélsleðamenn
í huga og koma með áföstum
gleraugum sem er hægt að fá
upphituð til þess að koma í veg fyrir
móðu. Einnig framleiða þeir flotta
vélsleða-kjálkahjálma sem hafa
verið mjög vinsælir síðustu ár.
Viðskipavinir geta komið, mátað
og fengið ráðleggingar um val á
fatnaði. Starfsfólkið hjá Nítró veitir
viðskipavinum sínum góða ráðgjöf
við val á vetrarfatnaði og hjálpar
þeim að finna út hvað hentar best
fyrir aðstæður hvers og eins. Í
viðbót við þetta eru þeir svo með
BCA-snjóflóðabakpoka, ýlur og
snjóflóðastangir í miklu úrvali, en
það er búnaður sem allir sem stunda
vetrarsport ættu að eiga, enda
aldrei of varlega farið á fjöllum.
Verslunin og verkstæðið eru í 1.000
fermetra húsnæði að Urðarhvarfi
4 og þar er opið frá kl. 10.00–18.00
alla virka daga. Heimasíðan nitro.
is er opin allan sólarhringinn en hún
hefur verið mikið endurnýjuð og er
enn í vinnslu, en þar er að finna alla
vöruflokka sem verslunin selur.