Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 32
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ NÍTRÓ: Allt fyrir vetrarsportið Nítró er ein elsta mótorsportvöruverslun landsins, en þar er að finna allt sem viðkemur þessu áhugamáli, hvort sem er um sumar- eða vetrarsport að ræða. Verslunin hefur lengi verið þekkt á meðal mótorhjóla- og fjórhjólafólks en það eru kannski færri sem vita að Nítró sinnir einnig öllu sem viðkemur vetrarsporti. Fyrst er að nefna Arctic Cat-vélsleðana sem fást núna í Nítró, einnig er hægt að fá ýmsa slit- og aukahluti fyrir allar tegundir vélsleða t.d. rífara, nagla, meiða, karbíta, sleðahjól (dollies), hita í handföng og ýmislegt fleira, auk þess er hægt að sérpanta vélar- og varahluti í nær allar tegundir vélsleða. Nýjasta æðið í vetrarsportinu er svokölluð snjóhjól, en það eru torfæruhjól sem beltabúnaður og skíði eru sett undir. Í Nítró er að finna beltabúnað frá Yeti og Mototrax í nokkrum mismunandi útgáfum. Mikið úrval af vetrarfatnaði En það er ekki nóg að eiga góð tæki því það þarf líka að klæða sig rétt þegar kuldaboli bítur í kinnar. Í versluninni er að finna allan fatnað í vetrarsportið. Nítró er umboðsaðili fyrir FXR á Íslandi sem framleiðir gríðarlega breiða línu. Heilgalla, úlpur, buxur, skó, hanska, undirföt, gleraugu og hjálma, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, bæði börn og fullorðnir. Einnig er Nítró með fatnað frá Motorfist, sem framleiðir allan sinn fatnað með eVent-vatnsvörn og öndun þannig að þú ert viss um að vera þurr og ósveittur í fatnaði frá þeim. Flottustu sleðahjálmarnir á markaðnum í dag eru Titan-hjálmarnir frá CKX, en þeir eru sérhannaðir með vélsleðamenn í huga og koma með áföstum gleraugum sem er hægt að fá upphituð til þess að koma í veg fyrir móðu. Einnig framleiða þeir flotta vélsleða-kjálkahjálma sem hafa verið mjög vinsælir síðustu ár. Viðskipavinir geta komið, mátað og fengið ráðleggingar um val á fatnaði. Starfsfólkið hjá Nítró veitir viðskipavinum sínum góða ráðgjöf við val á vetrarfatnaði og hjálpar þeim að finna út hvað hentar best fyrir aðstæður hvers og eins. Í viðbót við þetta eru þeir svo með BCA-snjóflóðabakpoka, ýlur og snjóflóðastangir í miklu úrvali, en það er búnaður sem allir sem stunda vetrarsport ættu að eiga, enda aldrei of varlega farið á fjöllum. Verslunin og verkstæðið eru í 1.000 fermetra húsnæði að Urðarhvarfi 4 og þar er opið frá kl. 10.00–18.00 alla virka daga. Heimasíðan nitro. is er opin allan sólarhringinn en hún hefur verið mikið endurnýjuð og er enn í vinnslu, en þar er að finna alla vöruflokka sem verslunin selur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.