Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 45
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
REFOCUS:
Endurheimtu orku og einbeitingu
með fæðubótarefni sem hannað
er fyrir Íslendinga
REFOCUS er glænýtt íslenskt fæðubótarefni með viðbættu járni og D-vítamíni og hannað
fyrir huga og orku. Refocus er
sérstaklega sniðið að námsmönnum
og fólki sem er í krefjandi starfi og vill
auka orkuna og bæta einbeitinguna.
Járn- og D-vítamínskortur er
algengasti næringarskortur fólks
um allan heim. D-vítamínskortur er
sérstaklega viðvarandi á Íslandi og
víðar á Norðurlöndunum þar sem fólk
býr við skert sólarljós marga mánuði á
ári. Hann getur í öfgakenndum tilfellum
leitt til beinþynningar og beinkramar.
Einnig er hann algengur hjá þeim
sem þjást af depurð og þunglyndi
og jafnvel vefjagigt. Þess má geta
að á meðan flest D-vítamín er unnið
úr dýraafurðum þá er D-vítamínið
í Refocus 100% vegan. Járnskortur
getur einnig valdið fölva, þreytu og
minna úthaldi. Refocus hentar afar
breiðum hópi fólks og er fullkomið
fæðubótarefni fyrir Íslendinga.
Kísill fyrir heilsuna
Refocus er í grunninn kísilsteinefni
sem þróað var af GeoSilica og er með
viðbættu vegan D 3-vítamíni og járni.
Kísillinn er í öllum vörum GeoSilica en
kísill er afar góður og getur stutt við
æðakerfið, bein, vöðva, liði, húð, hár og
neglur. Hann getur einnig stutt vel við
ónæmiskerfið og hjálpar til við upptöku
á öðrum steinefnum. Við fæðumst öll
með ákveðið magn af kísil í líkamanum
sem minnkar svo eftir því sem við
eldumst. Kísill er því eitthvað sem við
ættum öll að huga að því að taka inn.
5 fæðubótarefni fyrir aukin áhrif
GeoSilica hefur áður komið með fjórar
aðrar vörur á markað. Það eru Pure,
sem er 100% hreint kísilsteinefni,
Renew, sem er kísilsteinefni með
viðbættu sinki og kopar fyrir húð, hár
og neglur, Repair, kísilsteinefni með
viðbættu mangan fyrir bein og liði,
og svo Recover, kísilsteinefni með
viðbættu magnesíum fyrir vöðva
og taugar. Þeir sem hafa innleitt
fæðubótarefnin frá GeoSilica í daglega
rútínu sína hafa allir gott eitt að segja
um vörurnar. Fæðubótarefni er ekki
töfralausn, en flestir sem hafa byrjað
að nota vörurnar frá GeoSilica finna
mun á sér eftir fyrstu flöskuna.
,,Ég hef sjálf verið með járn- og
D-vítamínskort sem er afar algengt
um allan heim og sérstaklega
á Norðurlöndunum þar sem við
búum við skert sólarljós hluta árs.
Ég á sjálf erfitt með að taka töflur
yfirhöfuð og veit að það er lítið
framboð á steinefnum af þessu tagi
í vökvaformi. Það lá fyrir að fara í
þróun á hágæða fæðubótarefni sem
inniheldur steinefni og vítamín sem
flestir íslendingar þurfa á að halda.
Varan hefur vakið mikla athygli hér
heima og erlendis, sérstaklega vegna
þess að það eru fáar vörur á markaði
sem innihalda D-vítamín og járn og eru
veganvottaðar,“ segir Fida Abu Libdeh,
framkvæmdastýra GeoSilica.
Íslensk framleiðsla og hugvit
Allar vörur frá GeoSilica eru algerlega
lausar við öll skaðleg aukaefni,
innihaldsefni eru fá og örugg og
vörurnar eru allar veganvottaðar.
Vörurnar eru framleiddar á Íslandi og
unnar úr íslensku jarðhitavatni. Þær
eru í vökvaformi og því auðveldar
í inntöku. Til dæmis má bæta
fæðubótarefninu út í safa, hristinga,
kaffi eða taka eitt og sér, allt eftir því
hvað hentar. Renew, Repair, Recover
og nú nýjast á markaðnum, Refocus,
eru sérsniðin fæðubótarefni sem
henta nútímamanninum á þann
hátt að viðbættu efnin styrkja það
sem hver og einn er að leita eftir.
Eitt fæðubótarefni fyrir aukna virkni.
Pure og Repair eru svo til bragðlaus,
Renew er með geláferð, Recover er
súrt en bragðið kemur af viðbættu
magnesíum sítrat og Refocus
einkennist af mildu járnbragði sem
kemur frá viðbættum steinefnum og
vítamíni.
Fæðubótarefnin frá GeoSilica:
n Fyrir ónæmiskerfið, bein, vöðva, liði,
húð, hár og neglur
n Geta hjálpað til við upptöku á
öðrum steinefnum
n Fá innihaldsefni
n Laus við skaðleg aukaefni
n Unnin úr íslensku jarðhitavatni
n Framleidd á Íslandi
n Veganvottuð
n Auðveld til inntöku
n Eru í vökvaformi sem getur stuðlað
að góðri upptöku
Yfir 120 sölustaðir um land allt
Vörurnar frá GeoSilica fást á yfir
hundrað sölustöðum um allt land,
meðal annars í matvöruverslununum
Nettó, Fjarðarkaupum og Hagkaupum,
öllum helstu apótekum og ýmsum
heilsuvöruverslunum. Einnig er hægt
að panta vörurnar beint á vefsíðu
GeoSilica, geosilica.com.
Nánari upplýsingar má nálgast á
geosilica.com.