Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 34
HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR:
Besta gjöfin
fer þangað sem
þörfin er mest!
Hjálparstarf kirkjunnar vinnur öflugt starf með fólki sem býr við fátækt
hvort sem það er hér á Íslandi
eða með fólki sem býr í einna
fátækustu samfélögum heims. Til
þess að veita þjónustuna aflar
stofnunin fjár meðal annars með
sölu gjafabréfa á vefsíðunni
gjofsemgefur.is. Kristín Ólafsdóttir,
upplýsinga- og fræðslufulltrúi
Hjálparstarfs kirkjunnar, segir að
gjafabréfin njóti mikilla vinsælda
hjá fólki á öllum aldri, bæði hjá
þeim sem gefa og þeim sem fá
þau að gjöf.
Gjöf sem heldur áfram að gefa
„Gjafabréfin á vefsíðunni okkar,
gjofsemgefur.is, hafa þann
tvöfalda tilgang að veita fræðslu
um starfið og afla fjár til þess um
leið. Þau hafa verið mjög vinsæl
til gjafa við ýmis tækifæri og þá
sérstaklega til að gefa í jólagjöf,“
segir Kristín.
„Fólk sem kemur á skrifstofu
Hjálparstarfs kirkjunnar til þess að
kaupa gjafabréf segir gjarnan við
okkur að það hafi sjálft fengið gjöf
sem gefur og verið hæstánægt
með. Svo eru aðrir sem vilja gefa
gjafabréf frá okkur vegna þess
að sá sem á að fá það „eigi allt,“
segir Kristín. „Við finnum það
sérstaklega núna þegar fólk er
meðvitað um ofneyslu og mikilvægi
umhverfisverndar að þá vill fólk
frekar gefa – og fá – gjöf sem
skiptir öllu máli fyrir þann sem
virkilega þarf á gjöfinni að halda.“
Gjafabréfin á vefsíðunni
gjofsemgefur.is eru 45 talsins og
þau endurspegla margvíslega þætti
í verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar
svo sem í mannúðaraðstoð í kjölfar
náttúruhamfara og vegna átaka
og í þróunarsamvinnu í Eþíópíu og
Úganda.
Aðstoð
við
efnaminni
fyrir jól
Gjafabréfin fást á
verðbilinu 1.500 til 260.000
krónur. Það ódýrasta, Undir jólatréð,
kostar 1.500 krónur og endurspeglar
þátt í starfinu hér heima en andvirði
þess fer í jólagjöf fyrir barn á Íslandi.
„Við erum einmitt núna að
undirbúa sérstaka aðstoð við
fólk sem býr við kröpp kjör hér á
Íslandi fyrir jólin. Aðstoðin felst
fyrst og fremst í því að fólkið fær
inneignarkort í matvöruverslunum
og jólagjafir fyrir börnin. En fólk
getur líka komið hingað og fengið
jólafatnað bæði fyrir börnin og fyrir
sig sjálft, en fatnaðurinn hefur okkur
verið gefinn og er vel með farinn,
hreinn og heill,“ útskýrir Kristín.
„Í desember 2018 leituðu 1.274 til
Hjálparstarfs kirkjunnar og við eigum
von á svipuðum fjölda umsókna fyrir
komandi jól. Okkur reiknast þannig
til að það séu um það bil 3.400
einstaklingar á bak við umsóknirnar,“
segir Kristín. „Fólk getur komið
hingað fyrstu dagana í desember
og sótt um aðstoð fyrir jólin en það
eru félagsráðgjafar Hjálparstarfsins
og sjálfboðaliðar sem taka á
móti umsóknum frá þriðjudegi til
fimmtudags, 3. til 5. desember, frá
klukkan 11 til 15.
Þjónusta veitt árið um kring
„Fólk getur leitað til Hjálparstarfsins
allt árið um kring en við leggjum
sérstaka áherslu á að aðstoða
barnafjölskyldur í upphafi skólaárs
og yfir veturinn svo börnin geti
stundað íþróttir, tónlistarnám og
tekið þátt í frístundastarfi með
vinum sínum og jafnöldrum,“
útskýrir Kristín. „Ungmenni sem
búa við erfiðar aðstæður og eru í
framhaldsskóla geta líka leitað til
okkar um styrki fyrir námsgögnum
eða jafnvel skólagjöldum.“
Kristín segir valdeflingu stóran
þátt í starfinu innanlands.
„Félagsráðgjafarnir okkar greina
vandann með fólkinu sem hingað
leitar, veita því félagslega ráðgjöf
og efnislegan stuðning. En við
skipuleggjum líka valdeflandi
verkefni í síauknum
mæli.
Saumaverkefni
fyrir konur af
erlendum uppruna er eitt
þessara verkefna. Yfir fimmtíu konur
hittast nú einu sinni í viku og sauma
alls kyns poka og fleira úr efni sem við
höfum fengið gefins. Konurnar taka
þannig þátt í umhverfisvernd um leið
og þær fá félagsskap hver af annarri
og komast út úr félagslegri einangrun.“
Geitin vinsælust
Geitin er langvinsælasta gjafabréfið
á gjafabréfasíðunni gjofsemgefur.
is. Andvirði þess, 3.200 krónur,
rennur til aðstoðar Hjálparstarfs
kirkjunnar við börn í sveitinni í Rakai-
og Lyantonde-héruðum í Úganda.
Börnin hafa misst foreldri úr alnæmi
og búa við örbirgð. Þau fá meðal
annars geitur til að hefja geitarækt
til að tryggja fæðuöflun og fæðuval.
Vatn og valdefling
Unglingar í fátækrahverfum
Kampala í Úganda fá tækifæri til
mannsæmandi lífs með ársnámi í
iðngrein og lífsleikni í smiðjum sem
Hjálparstarf kirkjunnar fjármagnar.
Að námi loknu fær unga fólkið sem
hefur lagt stund á sauma saumavél
í útskriftargjöf. Saumavélin fæst á
gjofsemgefur.is og kostar 11.500
krónur. Sá sem fær gjafabréfið
að gjöf veit að í hans nafni hefur
unglingur í neyð fengið tækifæri til
að láta draum sinn rætast.
Gjafabréfið Hreint vatn fyrir 20
manns kostar 6.000 krónur en andvirði
þess rennur til aðstoðar við íbúa á
miklum þurrkasvæðum í Eþíópíu.
Falleg gjöf
Gjafabréf Hjálparstarfs kirkjunnar
fást á vefsíðunni gjofsemgefur.
is. Fólk skrifar persónulega kveðju
á efri hluta gjafabréfsins en á
neðri hluta eru upplýsingar um
gjöfina sjálfa. Hægt er að prenta
gjafabréfið út heima eða senda
það með tölvupósti til viðtakanda.
Þá er einnig hægt að biðja um að
fá gjafabréfið útprentað og sent í
pósti eða sækja sjálfur á skrifstofu
Hjálparstarfs kirkjunnar að
Háaleitsbraut 66 í
Reykjavík.
Stóra jólablaðið KYNNINGARBLAÐ 22. nóvember 2019
Yfir fimmtíu konur af erlendu
bergi brotnar njóta nú samveru
hver með annarri fyrir hádegi
á mánudögum á meðan þær
sauma innkaupapoka og fleira úr
afgangsefni og leggja þannig sitt
af mörkum til umhverfisverndar.
Nýjasta gjafabréfið á
gjofsemgefur.is heitir einmitt
„Taupoki með tilgang“
en andvirði þess,
2.000 krónur, rennur til
verkefnisins.
Geitin er
langvinsælasta
gjafabréfið á
gjafabréfasíðunni
gjofsemgefur.is. Andvirði
þess, 3.200 krónur, rennur
til aðstoðar Hjálparstarfs
kirkjunnar við börn í sveitinni í
Rakai- og Lyantonde-héruðum
í Úganda. Börnin hafa misst
foreldri úr alnæmi og búa við
örbirgð. Þau fá meðal annars
geitur til að hefja geitarækt til að
tryggja fæðuöflun og fæðuval.