Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Qupperneq 21
22. nóvember 2019 FRÉTTIR 21 DV hafði samband við Verkalýðsfélag Snæfellinga og ræddi við Vigni Smára Maríasson sem staðfesti að Armindo væri í samskiptum við stéttarfélagið. Gat hann þó ekki tjáð sig um hvort og þá hve mörg önnur mál væru í vinnslu hjá þeim sem vörðuðu starfsmenn Hrauns veitingahúss. Varðandi kennitölubreytingu Hrauns sögðu þeir lítið hægt að gera þar sem fyrirhugaðar lagabreytingar til að koma í veg fyrir kennitöluflakk væru ekki komnar í gegn. „Það er ekki enn komin í gegn lagabreyting til að koma fyrir kennitöluflakk eða allavega hægja á því ef svo má segja, eins og hefur ver- ið sagt því ekki megi setja of íþyngj- andi lög. Þetta er bara svoleiðis. Nú er bara verið að lýsa kröfum í þrotabú fyrir starfsmenn í þeim gömlu málum sem voru. En nú er náttúrlega komið nýtt fyrirtæki.“ Atvinnurekendum beri ávallt skylda til að standa skil gagnvart starfsmönn- um á launaseðlum. Hins vegar tryggi kjarasamningar vissan frest til að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi. „Það er skylt að afhenda launaseðil, en nægj- anlegt að afhenda rafrænan launaseð- ill. Það er skylt að ganga frá skrifleg- um ráðningarsamningi innan tveggja mánaða. Samkvæmt kjarasamningum.“ En er ástæða til að óttast að at- vinnurekandi sem ítrekað verður upp- vís að sömu brotum gegn starfsmönn- um sínum muni ekki láta af háttsemi sinni? „Maður óttast það. En lengi skal manninn reyna.“ Blaðamaður spurði hvort mikið væri um að erlendir starfsmenn leituðu til félagsins vegna ágreinings við vinnu- veitendur. „Það er mjög algengt, og það er að aukast, að fólk er koma til að forvitnast um rétt sinn. Sem betur fer er fólk að verða meðvitaðra um það. Það er líka algengt að það komi og spyrji bara: Er þetta rétt? Það er líka algengt að atvinnurekendur hringi og spyrji: Á ég að gera þetta svona? Það er mjög ánægjulegt.“ En eru almennt að koma fleiri eða færri erindi inn á borð hjá ykkur um þessar mundir? „Þeim hefur fjölgað núna á þessu ári.“ Blaðamaður hafði samband við Jón Kristinn vegna máls Armindos, sem vildi upphaf- lega ekki tjá sig en vísaði ásökunum Armindos á bug. Ég er blaða- maður á DV og maður að nafni Armindo leit- aði hingað til okkar og segir farir sínar ekki sléttar og frásögn hans rímar við þær frásagnir sem bárust frá fyrrverandi starfsfólki þínu hér í janúar. Ég vildi því hafa samband og gefa þér kost á að koma þinni hlið á framfæri. „Ertu ekki að grínast? Hérna hefurðu nokkuð skoðað, nei þú hefur ekki … ehhh nei nei … ég vil ekkert segja um þetta nema bara þetta að Armindo vinn- ur ekki hjá okkur lengur og ekkert neitt frekar um það að segja.“ En er eitthvað til í því sem hann seg- ir, að hann hafi ekki fengið ráðningar- samning eða launaseðla? „Sko, hann er ekkert búinn að fá, maðurinn vann bara hjá okkur í nokkra daga. Hann er bara ekki búinn að fá launaseðil, hann fær bara borgað 1. des- ember eins og allir aðrir.“ En byrjaði hann ekki í október? „Við greiðum laun frá 20.–19. svo það er allt innan þess ramma. Hann er samt búinn að fá held ég 75 prósent af laununum sínum greidd fyrirfram. Svo- lítið skemmtilegt að það skuli hringja bjöllum hjá þér út af því sem gerðist í janúar út af því að það er sem sagt blaða- maður frá ykkur búinn að hringja í mig til að biðjast afsökunar á grein ykkar frá því í janúar, því hún var bara eins röng og hún gat mögulega orðið. Það mál endaði þannig að verkalýðsfélagið hér í Snæfellsbæ þurfti að borga flugfarið fyrir þennan mann sem mótmælti fyrir utan hjá mér, heim til sín, af því að hann var farinn að valda þeim vandræðum. Og þetta mál hafði sko svo mikil áhrif á fjölskylduna mína, vegna þess að þetta var bara hreinn viðbjóður, algjörlega út í gegn, og þið áttuð ykkar þátt í því sko. [innsk. blm. Blaðamaður þekkir ekki til þess að Jón hafi verið beðinn afsökunar og frétt DV af málinu var aldrei tekin úr birtingu] Það var líka greint frá málinu í Stundinni og í Fréttablaðinu. „Þeir áttu líka þátt í því enda eru allir nema Stundin búnir að hringja í mig og spyrja mig hvort ég hafi áhuga á því að þeir fjalli um málið aftur og leiðrétti þar minn hlut, en ég hef bara engan áhuga á því vegna þess að ég er búinn að sjá hvernig þessir hlutir virka. Það hefur enginn áhuga á að fjalla um sannleik- ann, þeir hafa bara áhuga á að segja að einhver gaur sé ljótur og þá skrifa allir einhver komment undir, sko.“ Og heldur þú að þessi umræða hafi haft áhrif á að fyrirtækið fór í þrot og þurfti að skipta um kennitölu? „Já, algjörlega. Ég er búinn að reka þetta fyrirtæki í sex ár og hef aldrei ver- ið undir áætlun í sölu nema í þessa fjóra mánuði eftir að þetta mál kom upp. Þetta er bara skólabókardæmi. Ég er ekki að segja að ég sé fullkominn, ég hef gert þúsund mistök en þetta voru bara ekkert mistök.“ Ókei, og þú segir að einhver frá, ókei … „Þessi Armindo er að reyna að hafa samband við verkalýðsfélagið hérna í Snæfellsbæ því verkalýðsfélag hans, Mat- vís, vill væntanlega, þú veist, hann vann náttúrlega bara hjá mér í nokkra daga svo það er ekki enn búið að greiða fyrir hann í verkalýðsfélagið en hann greiðir í Mat- vís þar sem hann er matreiðslumaður og hann er að reyna að fá verkalýðsfélagið hér eitthvað til að hjálpa sér því Matvís væntanlega vill það ekki. Við gerðum ná- kvæmlega ekki neitt rangt gagnvart þess- um gaur, það var bara vesen á honum, hann gat ekki unnið hjá okkur. Hann fær hverja einustu krónu sem hann vann sér inn hjá okkur greidda 1. desember. Ég þurfti sko að greiða fyrir hann bílaleigu- bíl eftir að ég sagði honum upp því bíla- leigan treysti honum ekki, svo endilega fjallið um þetta og þá gerum við bara eitthvað í þessu máli frá því í janúar.“ Var hann ráðinn inn hjá ykkur sem yfirkokkur? „Hann var bara ráðinn inn hjá mér til að prófa og það bara gekk ekki upp. Hann var bara ekki nógu góður.“ Máli sínu til stuðnings sýnir Armindo blaðamanni prófskírteini og leyfisbréf úr kokkaskóla, sem og ráðningarsamninga frá fyrrverandi vinnuveitendum sem gefa vissa hugmynd um þær launakröfur sem hann gerir. „Ég færi aldrei að semja um verri laun en ég hafði áður í starfi á Ís- landi.“ Í dag, aðeins skömmu eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Hrauni, er Armindo þegar komin í góða stöðu hjá fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Sýn- ir þetta að hans sögn fram á að það sé í raun og veru tiltölulega auðvelt fyrir mann með hans menntun og reynslu að fá vinnu með skömmum fyrirvara. „Ég byrjaði að vinna þarna [á Hrauni] um miðjan mánuð í október. Um mánaðamótin voru samstarfsfélaga mín- ir búnir að fá borgað, en ekki ég. Ég fer þá til Jóns Kristins og bið hann um að borga mér launin mín og hann svar- ar að hann geti reddað mér smá fyrir- fram. Ég vildi ekkert fá fyrirfram, ég vildi fá launin mín. Ég var búinn að vinna þarna yfir 300 klukkustundir á mjög skömmum tíma.“ Armindo sýnir blaða- manni tímaskráningu sem sýnir yfir 300 unnar klukkustundir og grófan útreikn- ing á brúttó launum fyrir það tímabil. Sú upphæð nam ríflega milljón. Hafði hann fengið 150 þúsund fyrirfram um það leyti sem hann tók við stöðunni, síðan hafði Jón Kristinn greitt bílaleigu- bíl fyrir Armindo, 78 þúsund og svo fékk hann 100 þúsund krónur um mánaða- mótin. Þessi upphæð var mun lægri en Armindo hafði reiknað með auk þess fylgdi útborgun enginn launaseðill og enginn sundurliðun á hvernig launin væru reiknuð út eða hvað væri dregið frá þeim. Armindo gekk hart á eftir ráðningar- samningi og launum sínum og telur að vegna þess hafi Jón Kristinn sagt honum upp störfum, en Jón hefði aðeins viku fyrir uppsögnina lýst yfir ánægju sinni með störf hans. Í kjölfarið leitaði hann til Verkalýðsfélags Snæfellinga og segir að þar hafi ekki virst koma nokkrum manni á óvart þegar hann nefndi hver vinnu- veitandi hans væri. „Þeir sögðu bara orðrétt: Herra Jón gerði það aftur.“ Armindo Segist ekki ætla að láta þetta yfir sig ganga og hefur leitað til verkalýðsfélagsins JÓN KRISTINN ÁSMUNDSSON: VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.