Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 43
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ AMAN.IS: Eðalvín og humlaður hipsterabjór, allt bruggað heima Upp á síðkastið hefur bjórbruggun og víngerð farið vaxandi á Íslandi enda eru þær vörur sem notaðar eru í heimabruggun og víngerð í sífelldri þróun. „Í dag er hægt að koma sér upp frábærri heimaaðstöðu með tiltölulega lágum stofnkostnaði sem gefur af sér sérlega bragðgóð vín og bjór. Enn fremur er hægt að eyða aðeins meira í tækjabúnað sem gefur kost á að brugga bjór og vín sem stenst fullkomlega gæðalegan samanburð við það sem fæst keypt úti í búð,“ segir Magnús Axelsson, framkvæmda- og rekstrarstjóri Ámunnar ehf. Heimabruggið er vagga víngerðarinnar Bjórbruggun og víngerð er stórskemmtilegt áhugamál fyrir byrjendur sem lengra komna. „Fyrstu rituðu heimildir um víngerð eru um 3.500 ára gamlar og komnar frá Grikkjum. Heimildir um framleiðslu á áfengum drykkjum, svo sem miði, öli og sýrðum drykkjum eru þeim mun eldri. Hér er í öllum tilfellum verið að ræða um heimagert vín og bjór eða skylda drykki og því má með sanni segja að heimabruggið sé vagga víngerðarinnar.“ Til hvers að brugga eigin bjór eða gera eigið vín? „Margir eru að leita að hagkvæmum lausnum fyrir ýmsa viðburði svo sem brúðkaup, afmæli og veislur þar sem margt er um manninn. Aðkeypt drykkjarföng geta hlaupið á tugum ef ekki hundruðum þúsunda og þegar upp er staðið er mun skemmtilegra að bjóða gestum upp á heimagerðan bjór eða vín. Í brúðkaupsveislum er t.d. vinsælt að nefna tvo mismunandi bjóra eða víntunnur eftir brúðhjónunum eftir því hvað þeim þykir bragðbetra. Svo drekka gestir bókstaflega til heiðurs brúðhjónunum.“ Einnig er stór hópur áhugamanna og kvenna sem bruggar eigin bjór frá grunni. „Menn verða fljótlega sérfræðingar og sumir verða bjórmeistarar heima hjá sér. Allir geta búið til bjór og vín ef þeir vilja og hafa áhuga.“ Humlandi góður bjór Í bjórbruggun er hægt að fara nokkrar misflóknar leiðir sem gefa af sér afar ólíka útkomu en koma ætíð skemmtilega á óvart. Með lágum stofnkostnaði, einföldum hætti og á stuttum bruggunartíma geta byrjendur bruggað bragðgóðan bjór sem kitlar bragðlaukana og hentar t.d. vel í stórar veislur. Þegar kemur að því að brugga bjór frá grunni er stofnkostnaðurinn orðinn meiri, en þessi aðferð gefur möguleika á mun fjölbreyttari bjór og persónulegri nálgun. „Bjórbruggun frá grunni er ekki flókin í sjálfu sér, en til hennar þarf ákveðið bjórger, malt/korn og humla. Þá þarf að meskja við ákveðið hitastig, sjóða virtan sem fæst úr meskingunni, kæla, gerja og svo framvegis. Tíminn frá því að bjórgerð hefst og drykkurinn er settur á flöskur er um tvær vikur. Með þessari aðferð má prófa sig áfram og nota mismunandi humla, ger og korn til þess að ná fram ólíku bragði og áferð,“ segir Magnús. Bjórgerðarbúnaður fyrir bjórmeistarana (á heimavelli) Minibrew gerir byrjendum sem og lengra komnum bjórgerðarmeisturum kleift að brugga dýrindis eðalbjór heima. Hvort sem þú vilt dökkan stout, ferskan saison eða gullfallegan IPA, þá er Minibrew með efnið, tækin og búnaðinn fyrir þig. Hægt er að nota fyrirframgerðar uppskriftir eða þróa sínar eigin. Prófaðu þig áfram í heimi bjórgerðarlistarinnar og vertu alvöru bjórmeistari heima í stofu. Auðvelt að þrífa. Minibrew er nýtt á Íslandi og fæst í verslun Ámunnar. Víngerðin heillar marga Eins og bjórbruggunin er víngerðin heillandi og skemmtilegt tómstundagaman. Þeir sem byrja að gera sín eigin vín uppgötva fljótt hvað þau eru holl, bragðgóð og oft mildari og ferskari en verksmiðjuframleidd vín. Bilið á milli besta heimavínsins og hinna svokölluðu eðaltegunda minnkar óðum. Framboð af nýjum tegundum og betri efnum eykst líka stöðugt sem gerir það að verkum að heimavínið er fyllilega sambærilegt við borðvín frá frægum vínræktarlöndum. Kosturinn við heimavíngerð er að hún er einföld og þægileg auk þess að vera ódýr kostur. Lítið pláss þarf á heimilinu fyrir víngerðina og henni fylgir nánast engin lykt. Vínið er mjög vandað og bragðgott og þrúgurnar og víngerðarlíkin eru fyrsta flokks. Bruggaðu þína eigin belju! Það hefur aldrei verið jafnauðvelt að brugga sitt eigið vín. DIY My Wine Co. er nýtt á Íslandi og fæst í Ámunni sem og hjá flestum endursöluaðilum Ámunnar. Í átta einföldum skrefum ertu komin/nn með bragðgott drykkjarvín og gæðin koma skemmtilega á óvart. Áman flytur inn og selur vörur til bjór- og víngerðar og er með smásölu, netverslun og endursöluaðila víða um land. Allar vörur eru keyptar af viðurkenndum fyrirtækjum, víðs vegar að úr heiminum t.d. Kanada, Bretlandi, Danmörku, Ítalíu, Svíþjóð og Þýskalandi. Hægt að skrá sig í Ámuklúbbinn á www.aman.is þar sem í boði eru alls kyns tilboð, fróðleikur og fréttir. Myndir: Eyþór Árnason
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.