Gríma - 01.09.1942, Blaðsíða 78
7.
Skrímslasögur.
a. Nikurtjörn á Þorgeirshöfða.
[Handrit Theódórs Friðrikssonar rithöf. 1907. Sögn Steinvarar
Björnsdóttur á Botni í Þorgeirsfirði.]
Munnmæli herma, að nykur sé í tjörn þeirri,
sem er uppi á höfðanum milli Þorgeirsfjarðar og
Hvalvatnsfjarðar nyrðra. Hafa menn það fyrir satt,
að þegar tjörnina leggur á vetrum, þá bresti oft svo
hátt í ísnum, að vel heyrist til næstu bæja, Þöngla-
bakka og Brekku. Ungir og kjarkgóðir piltar hafa
stöku sinnum reynt að ganga fram á tjarnarísinn að
gamni sínu, þegar hann hefur verið orðinn alinnar
þykkur eða svo, en alltaf hefur farið á sömu leið;
þegar þeir hafa verið komnir svo sem fjóra eða fimm
faðma fram á ísinn, hefur þeim fundizt hann ætla að
brotna undan þeim og brakið og brestirnir orðið svo
miklir, að hann hefur allur kross-sprungið undir fót-
um þeirra. Hafa þeir því forðað sér í land aftur hið
skjótasta. Telja menn, að nykur sá, er í tjörninni býr,
valdi kynjum þessum. Stundum hafa menn einnig
þótzt sjá stórgrip þar við tjörnina; líkist hann mest
hesti, en í seinni tíð hefur enginn gerzt svo djarfur,
að hafa hendur á honum eða koma honum á bak.
Veldur því saga sú, er hér fer á eftir.
Fyrir langalöngu var á Kaðalsstöðum í Hvalvatns-