Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Þú finnur fleiri notaða á benni.is
Reykjavík
Vagnhöfða 27
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 10-18
Laugardaga 12-16
H
öfðabakki
V
agnhöfði
Tangarhöfði
Bíldshöfði
VIÐ
ERU
M
HÉR
SSANGYONG MUSSO
Dísel / Sjálfskiptur / Skráður: 6/2005
Ekinn: 165.000 km.
Verð: 990.000 kr.
MITSUBISHI PAJERO
Dísel / Sjálfskiptur / Skráningarár: 02/2007
Ekinn: 155.000 km.
Verð: 2.890.000 kr.
NISSAN PATROL GR
Dísel / Sjálfskiptur / Skráningarár: 10/2005
Ekinn: 159.000 km.
Verð: 2.590.000 kr.
NISSAN PATHFINDER SE
Dísel / Sjálfskiptur / Skráningarár: 6/2013
Ekinn: 83.000 km.
Verð: 5.990.000 kr.
NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Lög um Skógræktina samþykkt
− Fimm stofnanir renna saman í eina og umsjón Hekluskógaverkefnis að auki
Alþingi hefur samþykkt lög um
nýja stofnun, Skógræktina, þar
sem nokkrar stofnanir eru sam-
einaðar í eina.
Með samþykkt laganna renna
saman í eina stofnun Skógrækt
ríkisins og landshlutaverk-
efni í skógrækt. Verkefnin eru
Vesturlandsskógar, Skjólskógar á
Vestfjörðum, Norðurlandsskógar,
Héraðs- og Austurlandsskógar og
Suðurlandsskógar ásamt því að
umsjón með Hekluskógum flyst með
inn í nýja stofnun.
Kveðið er á um það í lögun-
um að hin nýja stofnun skuli heita
Skógræktin. Á næstu vikum verður
unnið að því að hanna útlit nýrrar
stofnunar, vefsíðu og nýtt merki.
Fljótlega verður skipurit stofnunar-
innar kynnt ráðherra ásamt stefnu-
skjölum og markmiðum. Einnig
verða lausar stjórnunarstöður aug-
lýstar til umsóknar. /VH
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Vatnsdælur,
háþrýstidælur
og rafstöðvar
Hjá Dynjanda færðu öflugar rafstöðvar, vatns-
og háþrýstidælur í mismunandi stærðum og gerðum.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Hafðu samband.
Sitkagreniskógur í Svartagili í Haukadal.
Ný löggjöf um heimagistingu tekur gildi 1. janúar:
Heimilt að leigja í 90
daga án rekstrarleyfis
Samkvæmt nýrri löggjöf um
heimagistingu verður einstak-
lingum heimilt að leigja út heimili
sitt og aðra fasteign sem hann/hún
hefur til persónulegra nota í allt
að 90 daga á ári án þess að þurfa
að sækja um rekstrarleyfi. Lögin
munu taka gildi 1. janúar 2017.
Helstu markmiðin með nýrri
löggjöf eru að bregðast við þróun
í gistiframboði hér á landi og
jafnframt að bregðast við miklum
fjölda leyfislausrar gistingar. Þá
eru í lögunum skýrð betur mörkin
milli gististarfsemi í atvinnuskyni og
tímabundinnar leigu af hálfu einstak-
linga gegnum deilihagkerfið.
Áhrif breytinganna munu sjást í
betri yfirsýn um gistiframboð, bættri
skráningu og skilum skatttekna af
gististarfsemi og einfaldara reglu-
verki fyrir rekstrarleyfi.
Nánar um nýju löggjöfina
Í nýju löggjöfinni eru flokkar gisti-
staða og mörk þeirra á milli skýrð
nánar.
Í fyrsta lagi eru gististaðir skil-
greindir sem staðir þar sem boðin er
gisting til að hámarki 30 daga sam-
fleytt í senn til sama aðila. Gisting til
lengri tíma en 30 daga fellur þá undir
húsaleigulög, nr. 36/1994.
Þá er gistiflokki heimagistingar
breytt þannig að hann nái til einstak-
linga sem hyggjast leigja út lögheim-
ili sitt og/eða eina aðra fasteign í
sinni eigu sem viðkomandi nýtir
persónulega. Heimilt verður að
leigja út viðkomandi eignir saman-
lagt í allt að 90 daga á ári hverju eða
þar til viðkomandi nær leigutekjum
sem nema brúttó tveimur milljónum
króna.
Rétt er að taka fram að samhliða
hefur verið samþykkt breyting
á lögum nr. 50/1988 um virðis-
aukaskatt. Þar er veltumörkum
skattskyldu og fjárhæðarmörkum
uppgjörstímabila breytt á þann hátt
að skylda til að innheimta virðis-
aukaskatt hefjist þegar tekjur ná
2.000.000 kr. í stað 1.000.000 kr.
í dag.
Skrá þarf eignir hjá Sýslumanni
Að auki felst í frumvarpinu að
einstaklingar sem ætla að bjóða
upp á heimagistingu samkvæmt
nýrri skilgreiningu þurfi að skrá sig
á vef sýslumanna og staðfesta að þeir
uppfylli ákveðnar kröfur um bruna-
varnir, ástand og samþykkt eignar
sem íbúðarhúsnæðis. Fyrir skráningu
verður greitt árgjald, 8000 kr. Þetta
er ætlað til að einfalda og bæta eft-
irlit með leyfislausri starfsemi.
Einstaklingar sem skrá sig þurfa
enn fremur að skila sýslumanni
árlega nýtingaryfirliti og/eða tekju-
yfirliti ásamt því að fá úthlutað
skráningarnúmeri sem ber að birta og
nota í allri markaðssetningu og eins
ber að merkja viðkomandi húsnæði
með númerinu. /VH