Bændablaðið - 09.06.2016, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Kvistar í Reykholti:
Dumbrauð, bústin og safarík kirsuber
Það er alla jafna ekki mikið
svigrúm til að njóta íslenskra,
dumbrauðra, þrýstinna og safa-
ríkra kirsuberja, hvorki í tíma né
rúmi. Kirsuberjatíminn stendur
reyndar nú yfir og ræktunarstað-
urinn er á Garðyrkjustöðinni
Kvistum í Reykholti í Biskups-
tungum. Aðeins ein önnur stöð
selur kirsuber og það er Engi í
Laugarási, en ber eru ekki farin
í sölu þaðan.
Hjónin Hólmfríður Geirsdóttir
garðyrkjufræðingur og Steinar Á.
Jensen rafvélavirki reka Kvista.
Hólmfríður segir að hún sé nú með
fjórar berjategundir í ræktun; jarðar-
ber, hindber, kirsuber og brómber.
Byrjað hafi verið á jarðarberjarækt-
uninni, síðan komu hindberin, þá
brómberin og loks kirsuberin – en
þegar blaðamaður var þar á ferð í
lok maí voru brómberin um það bil
að berast á markað.
Upphaflega eingöngu
skógarplöntustöð
Stöðin var reyndar upphaflega
skógarplöntustöð þegar hún var
stofnuð árið 2000, þar sem eingöngu
voru framleiddar skógarplöntur í
fjölpottabökkum. Síðan þróaðist
framleiðslan yfir í ýmsar tegundir
garð- og skógarplantna; ýmist ung-
plöntur í bökkum eða eldri plöntur í
pottum. Þá hefur stöðin séð lands-
hlutabundnu skógræktarverk-
efnunum fyrir plöntum; svo sem
Suðurlandsskógum, Vesturlands-
skógum og Hekluskógum. Hún
sérhæfir sig líka í því að þjónusta
sumarhúsaeigendur og leiðbeina
þeim með val í þeirra lönd.
Hreinleikinn verðmætur
Hólmfríður segir að í berjaræktun-
inni sé ekki notast við nein varn-
arefni. Þar sé notast við lífrænar
varnir eingöngu og það sé ómetan-
legt að geta státað af því og hreina
vatninu sem sé notað í ræktunina.
Hindberjatíminn stendur svo yfir
frá maíbyrjun og út ágúst og hvetur
Hólmfríður fólk til að njóta ferskra
berjanna á meðan hægt er. /smh
Til að halda smáfuglunum frá berj-
unum, einkum skógarþrestinum,
er notast við þessa fuglafælu frá
Fuglavörnum.
Sölubásinn á Kvistum var fallegur þegar blaðamaður var þar á ferð. Bróm-
berin eru væntanleg á allra næstu dögum.
Á Kvistum eru einnig til sölu sultutegundir úr hind- og jarðarberjunum.
Nokkur falleg og fullþroska gómsæt brómber fundust.
Hólmfríður Geirsdóttir í kirsuberjahúsinu. Myndir / smh
Garðyrkjubændur!
Verslun og markaður á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir samstarfi við garðyrkjubændur
Kartöflur − blóm − grænmeti
Nánari upplýsingar veittar í síma 899-5128