Bændablaðið - 05.10.2017, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Hafsteinn Ólafsson, yfirkokkur
á veitingastaðnum Sumac Grill +
Drinks á Laugavegi í Reykjavík,
bar sigur úr býtum í keppninni
Kokkur ársins 2017 sem haldin
var í Hörpu laugardaginn 23.
september.
Eftirfarandi fimm matreiðslu-
menn kepptu til úrslita:
• Hafsteinn Ólafsson (1. sæti)
Sumac Grill + Drinks
• Garðar Kári Garðarsson (2. sæti)
Deplar Farm/Strikið
• Víðir Erlingsson (3. sæti)
Bláa Lónið
• Bjarni Viðar Þorsteinsson
Sjávargrillið
• Rúnar Pierre Heriveaux
Grillið Hótel Saga
Fyrirkomulagið á keppninni var
þannig að faglærðir matreiðslu-
menn sendu uppskrift í keppnina
ásamt mynd af réttinum. Valnefnd
skipuð fimm faglærðum dómurum
völdu nafnlaust þær 12 uppskriftir
sem þóttu lofa góðu þar sem tekið var
mið af frumleika, nýtingu á hráefni
og útliti réttar. Það voru síðan fimm
sterkustu keppendurnir sem komust
áfram í úrslitakeppnina í Hörpu.
Þriggja rétta matseðill
úr leynikörfu
Keppendur elduðu þar þriggja rétta
matseðil úr svokallaðri leynikörfu,
sem hulunni var svipt af deginum
áður. Þar kom í ljós að í forrétt skyldi
nota heilan skötusel, fersk ígulker og
ferska hörpuskel. Í aðalrétt þurftu
keppendur að útfæra sína útgáfu af
klassíska réttinum „Önd orange“.
Keppendur fengu tvær heilar franskar
Barberie-endur sem skylduhráefni. Í
eftirrétt voru frosin íslensk aðalblá-
ber, Cacao Barry mjólkursúkkulaði
(38%) og grísk jógúrt. Aðalatriðið í
eftirréttinum varð að vera borið fram
heitt.
Hafsteinn, sem er landsliðsmaður
í kokkalandsliðinu, hafði þrjú síðustu
árin lent í öðru sæti áður en kom að
sigri í fjórðu tilraun. Hann mun keppa
fyrir Íslands hönd í „Nordic Chef Of
The Year“ í Danmörku á næsta ári.
Fjölskipuð dómnefnd valdi sigur-
vegara. Hún fylgdi eftir vinnubrögð-
um keppenda í þaula og smakkaði
allan matinn. Yfirdómari var Krister
Dahl frá Svíþjóð.
Hinrik og Steinbjörn
matreiðslunemar ársins
Matreiðslunemakeppnin var deg-
inum á undan, föstudaginn 22.
september, auk þess sem fram-
leiðslunemar kepptu sín á milli.
Hinrik Lárusson, mat-
reiðslunemi á Radisson Blu Hótel
Sögu, og Steinbjörn Marvin
Björnsson, matreiðslunemi í Hörpu,
voru útnefndir matreiðslunemar
ársins 2017.
Verkefni matreiðslunema var
að matreiða forrétt, aðalrétt og
eftirrétt fyrir níu manns.
Í forrétt var íslenskt haust-
grænmeti. Rétturinn mátti ekki
innihalda mjólkurafurðir eða hnet-
ur, en hann var framreiddur af fati.
Í aðalrétt var kjúklingur og risottó
ásamt heitri sósu.
Aðalréttur var framreiddur á
fati og í eftirrétt voru jarðarber,
marens og heit sósa. Eftirrétturinn
var framreiddur á diskum.
Sigurður Borgar og Axel Árni
framleiðslunemar ársins
Sigurður Borgar, framleiðslunemi
á Radisson Blu Hótel Sögu, og
Axel Árni Herbertsson, fram-
leiðslunemi í Bláa Lóninu, voru
útnefndir framleiðslunemar ársins
2017.
Verkefni framreiðslunemanna
voru skriflegt próf um fagtengd
málefni, blöndun áfengra og
óáfengra drykkja, eldsteiking,
fyrirskurð á heilum kjúklingi,
sérvettubrot, kvöldverðarupp-
dekkning fyrir fjóra rétti ásamt
blómaskreytingu og framreiðsla á
fjórum réttum ásamt vínum.
Nemarnir öðlast þátttökurétt
í Norrænu nemakeppninni sem
fram fer í Kaupmannahöfn dagana
20.–21. apríl á næsta ári. /smh
Hafsteinn kokkur ársins 2017
– Matreiðslu- og framleiðslunemar ársins einnig útnefndir
FRÉTTIR
Hafsteinn Ólafsson fagnar með þá Garðar Kára Garðarsson (t.v.) og Víði Erlingsson við hlið sér.
Myndir / Sigurjón Sigurjónsson
Réttirnir þrír sem Hafsteinn bauð upp á: fyrst skötuselur, þá öndin og loks íslensk aðalbláber og grísk jógúrt.
Nýr rektor Landbúnaðarháskóla Íslands tekinn við:
Efling hagnýtra búvísinda-
og umhverfisrannasókna
– í auknu samstarfi við bændur og hagsmunasamtök þeirra
Þann 1. október síðastliðinn tók
Sæmundur Sveinsson við stöðu
rektors Landbúnaðarháskóla
Íslands (LbhÍ) af Birni
Þorsteinssyni. Sæmundur er settur
í stöðuna til eins árs.
„Ég vil frekar tala um þær áherslur
sem ég ætla að leggja upp með og þá
þætti sem ég vil efla í starfi skólans,
heldur en einstaka verkefni sem bíða
mín. Enda er ég nýtekinn við stofnun
sem sinnir geysilega viðamiklum og
fjölbreyttum verkefnum. Hún sinnir
kennslu á tveimur skólastigum með
margþættum rannsóknaverkefnum,“
segir Sæmundur spurður um verkefnin
sem bíða nýs rektors.
Áhugi á auknu samstarfi
við bændur
Eitt af því sem Sæmundur hefur áhuga
á að efla í skólastarfinu eru tengingar
við bændur og samstarf við þá. „Mörg
verkefni sem skólinn sinnir eru unnin í
nánu samstarfi við bændur, til dæmis
kornkynbótaverkefni skólans sem ég
kom heilmikið að á síðustu þrem-
ur árum. Kornræktin á Íslandi á sér
margra áratuga langa sögu þar sem
brautryðjendur börðust hetjulega við
að sanna að hún gæti gengið hér á landi.
En sá mikli áhugi sem er hjá bændum
núna er tilkominn vegna átaks sem
var samstillt af RALA – sem var einn
forvera LbhÍ – ráðunautaþjónustunni
og bændum. Ég tel að það megi gera
enn betur í þeim efnum og vinna fleiri
rannsóknaverkefni í þessum anda. Ég
vil sjá að bændur upplifi sig sem liðs-
menn skólans og sjái að LbhÍ sé að
vinna fyrir bændur og byggðir lands-
ins. Ég geri því ráð fyrir að ferðast um
landið til að heyra hljóðið í bændum og
ráðunautum þeirra varðandi hvað þeir
telji betur megi fara í starfi skólans.“
Góð fjárhagsstaða skólans
Sæmundur segir rekstur skólans í
góðu standi og hann taki við virki-
lega góðu búi. „Fjárhagsleg staða
Landbúnaðarháskóla Íslands hefur
sjaldan verið betri. Enda hefur
rekstur skólans verið mjög aðhalds-
samur og tryggur undanfarin ár. Það
bíða hins vegar afar mörg knýjandi
verkefni á sviði rannsókna og
viðhaldi húsakynna skólans.
Varðandi skólastarfið þá er
heilmargt sem huga þarf að. Ég
tel í fyrsta lagi að skólinn þurfi að
stórauka samstarf við aðra innlenda
háskóla og stofnanir. Það eru víða
sérfræðingar dreifðir á öðrum stofn-
unum sem eru að vinna að svipuð-
um verkefnum og mér finnst mjög
mikilvægt að við eflum samstarf á
þeim sviðum. Ég hef enn fremur
áhuga á því að efla hagnýtar land-
búnaðarrannsóknir. Skólinn stendur
mjög framarlega í þeim efnum en
ég tel að við þurfum að gera enn
betur. Forsenda þess að við getum
sótt hér fram er tryggt styrkjaum-
hverfi í landbúnaðarrannsóknum,“
segir Sæmundur.
Öflugar umhverfisrannsóknir
„Það var í umræðunni fyrir nokkrum
misserum að stofna ætti nýjan rann-
sóknasjóð, þar sem lögð yrði áhersla
á hvernig megi auka virði landbún-
aðarafurða. Ég tel að slíkur sjóður
myndi verða mikil lyftistöng fyrir
íslenskar búvísindarannsóknir. Ég
vil enn fremur leggja áherslu á að
samhliða hefðbundnum búvísinda-
rannsóknum þarf LbhÍ að halda
áfram að sinna öflugum umhverfis-
rannsóknum, því það er nauðsyn-
legt að skilja þær umhverfisaf-
leiðingar sem landnýting hefur í
för með sér. Við þurfum að halda
áfram að sækja fram í rannsókn-
um til að skilja vistfræðilega ferla
á svæðum sem við erum að nýta
með einhverjum hætti, svo sem
til sauðfjárbeitar, túnræktar eða
skógræktar. Enn fremur er aukin
þekking í ferlum í kolefnishringrás
jarðvegs gríðarlega þýðingarmikil
fyrir okkur Íslendinga, sérstaklega
á gróðurlitlum svæðum og í fram-
ræstu votlendi,“ segir Sæmundur.
Samanburður norrænna
kynbótalína
Sæmundur lauk BS-prófi frá líf-
fræðideild Háskóla Íslands í júní
2007. Hann lauk mastersprófi
frá sömu deild sumarið 2009. Í
mastersnámi kannaði Sæmundur
skyldleika ýmissa meltegunda
(Leymus) með frumuerfðafræði-
legum aðferðum.
Hann varði doktorsritgerð sína frá
grasafræðideild háskólans í Bresku
Kólumbíu í Vancouver í Kanada árið
2014. Doktorsritgerð Sæmundar ber
titilinn Þróun plöntuerfðamengja
könnuð með næstu kynslóðar rað-
greiningartækni.
Sæmundur var aðstoðarkennari
við grasafræðideild háskólans í
Bresku Kólumbíu í Vancouver í
Kanada á árunum 2010 til 2014.
Eftir doktorsnám starfaði hann sem
sérfræðingur við auðlindadeild
Landbúnaðarháskóla Íslands og
vann meðal annars við byggrann-
sóknir í samnorrænu PPP (Public
Private Partnership) verkefni.
Snerust þær um að bera saman
norrænar kynbótalínur af byggi
og kanna erfðafræðilegan fjöl-
breytileika þeirra.
Sæmundur hefur einnig kennt í
Háskóla Íslands, Landgræðsluskóla
Háskóla Sameinuðu þjóðanna
og Landbúnaðarháskólanum.
Hann hefur setið í erfðanefnd
landbúnaðarins fyrir hönd
Landbúnaðarháskóla Íslands frá
árinu 2015. /smh
Sæmundur Sveinsson er nýr rektor
LbhÍ. Mynd / Áskell Þórisson