Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Blaðsíða 12
kjörið tækifæri til að minna
á nauðsyn sem mestrar
samfélagslegrar þátttöku
fatlaðra. Sagði hugnæma
sögu um húsvörðinn gamla
sem hafði sett upp voldugt
jólatré með ótölulegum
fjölda Ijósa. Maður sem
mætti honum með stiga á
öxlinni spurði um ástæður
þess, en húsvörðurinn
gamli kvaðst þurfa að
skipta um eina peru á trénu
sem ekki logaði á. Mað-
urinn furðaði sig á þessu,
enda sá hann aðeins upp-
ljómað tréð, en mikið rétt,
betur að gáð var ein sem ekki lýsti og
ljómaði. Við erum öll Ijós í þessum
heimi og Guð vill að öll ljósin ljómi,
með því yrði veröldin bjartari, sagði
séra Svavar. Birta einnar mannssálar
er dýrmætust og mörg veik ljós gefa í
sameiningu frá sér mikla birtu. Flutti
fyrirbæn góða í lokin. Að lokinni
hugvekju var sungið jólalag. Þá léku
félagarnir Fróði, Egill og Maggi Jó.
hin tjörugustu jólalög sem allir tóku
undir af miklum móð. Það var svo
formaður svæðisráðs, Egill Olgeirs-
son sem þakkaði Öryrkjabandalagi
Islands fyrir þess ágæta framtak og
fallegt jólatré. Hann minnti á hinar
róttæku breytingar í búsetumálum
sem átt hefðu sér stað að undanförnu,
útskriftirnar af Sólborg og nýfram-
kvæmdir í kjölfarið: hæfingarstöð,
skammtímavistun og sambýli. Hann
kvað hina nýju stefnu í búsetumálum
fagnaðarefni og færði Hússjóði
Öryrkjabandalagsins beztu þakkir
fyrir framlag hans þar nyrðra, en á
Akureyri á Hússjóður 18 íbúðir. Egill
sagði hagsmunabaráttu fatlaðra halda
áfram af fullum þunga með áherzlum
á aukna þjónustu, betra aðgengi, átök
í atvinnumálum, úrræði fyrir geðfatl-
aða, eflda liðveizlu, stuðningsfjöl-
skyldukerfi sem allra virkast og um
leið vökula réttindagæzlu fatlaðra.
Minnti í lokin á hinn bjarta boðskap
jólanna og óskaði öllum innihalds-
ríkra jóla. í lokin leiddu félagar frá
Glerárkirkjukórnum söng: Hin fyrstu
jól. Það næddi allnapurt úti þó ekkert
væri frostið, en inni á sambýlinu þágu
menn góðar veitingar í yl og birtu og
úti lýsti jólatréð umhverfið og bjarm-
inn teygði sig út í skugga skamm-
degismyrkursins.
Að þessu loknu var farið til
heimkynna Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra að Glerárgötu þar
sem við áttum ágætan fund með fram-
kvæmdastjóranum og fríðu starfsliði
hans. Þar bar margt á góma og fengum
við fróðleik mikinn um starfsemina á
Akureyri sem og annars staðar í kjör-
dæminu og verður fátt eitt hér fram
talið. Þarna vinna 10 starfsmenn í 9
stöðugildum, þar af við ráðgjöf og
aðra slíka þjónustu í 6 stöðugildum.
Rætt var um hversu mál myndu skip-
ast eftir yfirtöku Akureyrarbæjar á
málefnum fatlaðra og taldi fram-
kvæmdastjórinn að starfsemin myndi
renna inn í þjónustukerfi bæjarins og
skiptast á milli einstakra deilda þar s.s.
eins og verndaðir vinnustaðir til at-
vinnumiðlunar, aðstoð við börn til
ráðgjafardeildarFélagsmálastofnunar
o.s.frv. Allmikið rætt um hversu sinna
skyldi austurhluta svæðisins s.s. áður
er fram komið. Sá möguleiki nefndur
að á Húsavík yrði eins konar svæðis-
skrifstofa í tengslum við aðra starf-
semi þar. 18 hús og íbúðir eru á svæð-
inu og frá byrjun janúar yrðu þar í
kringum 70 einstaklingar. Mest væru
5 í einni einingu og svo 6 íbúar í tví-
skiptu húsi sem áður er um getið.
Verndaðir vinnustaðir tveir - Iðju-
lundur og Bjarg en þar eru alls um 50
einstaklingar. Bjarg er rekið sem
starfshæfingarstaður þar sem er gegn-
umstreymi - 6 mánaða endurhæfing
en verkefni þess staðar sem áður raf-
lagnaframleiðsla. Dagdeildin á Sól-
borg verður flutt um áramótin.
Skammtímavistun er fyrir 5 - 6 - þjón-
ustan þar meginhluta ársins, en sum-
ardvöl væri ný starfsemi. Hins vegar
sagði Bjami að foreldrar yngri barna
kysu frekar stuðningsfjöl-
skyldur en skammtíma-
vistun. Hann kvað vandann
liggja m.a. í því að óvenju-
mörg fötluð börn hefðu
fæðzt sl. 5-6 ár. Fram komu
frekari upplýsingar um Sól-
borg og útskriftirnar þaðan,
sem sannarlega marka tíma-
mót.
ram kom að Sjálfs-
björg, félagi fatlaðra
þætti sem svæðisskrifstofa
hefði lítil afskipti af þeirra
fólki, en framkvæmdastjóri
kvað erfitt að fá nákvæm-
lega að vita hvað gera ætti. Nokkuð
var að frumkvæði formanns ÖBÍ rætt
um ferlimál og einstakar framkvæmd-
ir í því sambandi. Sem svar við fyrir-
spurn frá Asgerði kom fram að heyrn-
arlausir væru fáir á svæðinu. Hins
vegar vantaði sárlega úrræði fyrir
heilablóðfallsskaðaða sem byggju
margir við slæman kost heima. Bjarni
sagði þroskahefta sem hjá foreldrum
búa nýta sér vel þá miklu þjónustu
sem í boði væri. Hann nefndi sem
dæmi sextuga konu sem byggi hjá ald-
argömlum föður sínum og allt gengi
það ágætlega. Vaxandi vandamál
varða atferlis- og hegðunarvanda, sem
væri of lítið viðurkenndur af kerfinu
sem slíkur. I lokin nokkuð rætt um
hlutverk Öryrkjabandalagsins á lands-
vísu m.a. var komið inn á útgáfustarf-
semina. Fram kom að mönnum fynd-
ist Öryrkjabandalagið ætti að koma
meira að réttindagæzlu í víðastri
merking. A almennum fundahöldum
með fötluðum var ekki mikill áhugi
eða talið að verulegan árangur bæri.
Góðri heimsókn og lærdómsríkri
lauk svo um kvöldverðarleytið og
hópurinn hélt til höfuðborgarinnar og
alláliðið kvölds var þangað komið í
úrhelli miklu. Fundum við þá vel hve
við höfðum verið heppin með suð-
vestankaldann nyrðra, þurrviðrið með
stirndum himni og norðurljósalogi.
Alúðarþakkir eru færðar öllum er að
komu þar nyrðra og áttu með okkur
ánægjulega stund, einkum þó Bjarna
Kristjánssyni framkvæmdastjóra, sem
fylgdi okkur fótmál hvert og fræddi
um hvaðeina.Samstöðuhátíðin á Ak-
ureyri var eins og allar hinar hátíð í
beztu merkingu þess fallega orðs.
H.S.
12