Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Blaðsíða 17

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Blaðsíða 17
taki fyrir verkefni tengd alnæmi til ritgerðar- vinnslu - í framhalds- skólum eða Háskóla íslands. Talið barst að atvinnuástandi og okkur voru nefnd tvö dæmi um HlV-jákvæða einstakl- inga, sem voru látnir hætta störfum, þegar greining hafði verið gefin upp. I þessu sambandi nefndu þau að fræðsla til stofnana og fyrirtækja væri mjög mikilvæg. Þau ræddu allnokkuð um hina ólíku þróun sjúkdómsins hjá fólki, margir gætu t.d. greinzt HlV-jákvæðir án þess nokkuð frekara gerðist í fleiri ár, án þess nokkuð sæist athugavert. Greiningin væri hins vegar ljóst aðvörunaratriði, hversu sem um þróun færi. au sögðu skrifstofuna gegna ótvíræðu og mikilvægu hlutverki, þangað kæmu margir til að leita sér andlegs styrks, kæmu jafnvel - eða hefðu kornið hvern dag. Eins væri alltaf allnokkuð um það að veikir einstakl- ingar hringdu, þeir sem ekkert kæmust og slíkt samband væri þeim oft mikils virði. í framhaldi af því var svo rætt um þann draum manna að myndaður yrði hópur fólks sem ynni sem sjálfboðaliðar, fólk sem heimsækti þá sem ekki kæmust að heiman, dýrmæt hjálp og stuðningur samkenndarinnar um leið. Þau voru öll á einu máli um það að samtökunum hefði verið mikill styrkur af samstarfi góðu við Samtökin 78 og margt mætagott af því leitt. Húsnæði samtakanna er á tveim hæðum og um það má segja að “þar sem hjartarúm er þar er húsrúm”. En í lokin á heimsókn okkar fóru þau með okk- ur í skoðunarferð um kjallarann undir húsinu og sögðu frá áformum sínum um nýtingu hans til hinna þörfustu hluta s.s. saunabaðs og svo langaði þau til að útbúa þar litla íbúð fyrir fólk utan af landi, sem hingað kærni til dvalar. I kjallaranum er mikið verk óunnið en þó búið að hreinsa þar út. Það má til með að skjóta því hér inn í að með framkvæmd nýju laganna urn samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar opnaðist nýr möguleiki þeim sem hana kjósa heldur en hina beinu refsivist og það voru einmitt tveir slíkir sem með heiðri og sóma hreinsuðu út úr kjallaranum. Góðri heimsókn og okkur gagnlegri mjög var lokið og eftir það eitt að þakka afar vel fyrir okkur, afbragðsgóðar veitingar og ærinn fróðleik af ýmsu tagi, sem tíunda hefði þurft enn betur. Alnæmissamtökunum á Islandi árnum við allra heilla í sínu dýrmæta starfi í stríði við mikinn og voldugan vágest. H.S. Guðni Baldursson gjaldkeri Alnæmissamtakanna tekur við 1 milljón 3. des. úr hendi Kristjáns Sturlusonar skrifst.stj. R.K.I. HLERAÐI HORNUM Maður einn raupaði mjög af ættgöfgi sinni og tíundaði látna merkismenn í löngum bunum. Frænku hans ofbauð þetta og sagði: “Já, Jón minn, þetta er eins og með kartöflumar, allt það bezta er í moldinni”. Unga nýgifta konan var að segja vinkonu sinni frá því að þau hjónin svæfu í sitt hvoru herberginu, en hefðu samið um það að ef eiginmaðurinn vildi fá hana yfir til sín þá flautaði hann hátt og hvellt. Vinkonan spurði þá nýgiftu þá hvað gerðist nú, ef hann flautaði ekki en hún vildi nú koma til hans. “Ekkert mál. Þá fer ég yfir til hans og spyr hann að því hvort hann hafi nokkuð verið að flauta”. Fyrr á öldinni var Islendingur einn að nemalyfjafræðiútiíNoregi. Honum þótti sopinn góður. Einu sinni fékk hann það verkefni að búa til lyf nokkurt og fékk til gnótt ýmissa efnisfanga m.a. allnokkuð af óblönd- uðum spíra. Hann ræddi við félaga sína um það hvílík sóun á verðmætum þetta væri á eðalvökva og skyldu þeir kanna í apótekinu hvort ekki myndi unnt að fá þar lyf það er manninum hafði verið gert að skila. í apótekinu fékkst lyfið ekki en sagt var að það væri von á því alveg á næstunni. I trú á þetta slógu þeir félagar upp veglegri drykkjuveizlu. Svo leið tíminn og alltaf voru sömu svörin í apótekinu að lyfið væri örugglega alveg að koma. Þegar leið að verkefnisskilum nemandans fór hann að hafa þungar áhyggjur og eftir sama svarið einu sinni enn hjá apótekinu fór hann og ræddi við apótekarann og innti hann eftir því hverju þessi bið sætti. Apótekarinn tók Islendingnum vel og sagðist strax fara í málið enda langt um liðið frá því prófessor við háskól- ann hefði sagt sér að hann hefði sett nemanda sínum það verkefni að laga lyfið og það yrði ekki lengi gert. Segir ekki frekar hér af. ** Tvíburafaðir einn, sem átti drengina Adda og Kalla var spurður að því hvernig honum gengi að þekkja þá í sundur. “Jú, það er nógu snúið, en ef ég sting nú fingrinum upp í Adda og hann bítur, þá er það Kalli.” ** íslenzki bóndinn var með laxveiðiá til leigu og þar voru stórlaxar erlendir oft í veiði. Einu sinni kom bóndinn að Texasbúa sem veiddi vel og spurði bónda um leið hversu stórt land hann ætti. Bóndi benti til sjávar og upp til fjalla og útskýrði víðerni lands síns sem bezt hann gat. Texasbúinn lét sér fátt urn finnast og sagði sitt land svo víðáttumikið að þó hann legði af stað á jeppanum sínum um sólarupprás þá kæmist hann ekki kringum land sitt þó hann æki til sólarlags. Þá sagði íslenzki bóndinn: “En undarlegt. Eg átti nefnilega einu sinni líka svona jeppa”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS 17

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.