Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Blaðsíða 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Blaðsíða 13
• • / Haukur Þórðarson, varaform. OBI: Alþj óðaendurhæfingarsambandið Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra stofnaði til aukaað- ildar að Alþjóðaendurhæfing- arsambandinu árið 1960. Það átti ekki kost á fullri aðild vegna þess að lög sambandsins kveða á um að einungis heildarsamtök í hverju landi eigi kost á slíkri aðild. Öryrkjabandalag Islands var stofnað árið 1961 og sótti fljótlega um og fékk inngöngu í Alþjóðaendur- hæfingarsambandið með fullri aðild. Ekki eru við hendina nákvæmar upp- lýsingar um ártalið en þetta mun hafa verið á árunum 1964 - 1966. í lögum Alþjóðaendurhæfingarsambandsins eru ákvæði um að hvert aðildarland tilnefni landsfulltrúa (National Secre- tary) og sinnti Guðmundur Löve því hlutverki frá upphafi og þar til hann lést árið 1978. Eftir það var Sigríður Ingimarsdóttir landsfulltrúi til ársins 1989 en þá tók Asgerður Ingimars- dóttir við og gegnir starfinu enn. Ætlunin er að gera hér í stuttu máli grein fyrir Alþjóðaendurhæfingar- sambandinu. Stofnun sambandsins og breytingar á heiti þess Sambandið var stofnað árið 1922 í Bandaríkjum Norður-Ameríku og hefur alla tíð haft höfuðstöðvar sínar þar, lengst af í New York borg. Nafn sambandsins hefur tekið breytingum í áranna rás og end- urspegla þær að nokkru leyti viðhorf manna til fötlunar. Þegar sambandið var stofnað hét það Alþjóðlegur félags- skapur fyrir fötluð börn (International Society for Crippled Children). Árið 1939 var heitinu breytt í Alþjóðlegur félags- skapur fötluðum til velfarnaðar (Interna- tional Society for the Welfare of the Crip- ples). Árið 1960 er nafninu enn breytt í átt að því sem síðar Haukur Þórðarson. varð, Alþjóðlegur félagsskapur fyrir endurhæfingu fatlaðra (International Society for Rehabilitation of Disa- bled) og árið 1972 var þetta langa nafn stytt. Ber sambandið nú heitið Reha- bilitation International, orðrétt þýtt Alþjóðleg endurhæfing. Heimsþingin Allt frá árinu 1929 hefur Alþjóða- endurhæfingarsambandið beitt sér fyrir heimsþingum. Það ár var fyrsta heimsþingíð haldið í Genf í Sviss- landi. Fjögur slík þing voru haldin næsta áratuginn, það fjórða árið 1939 í London skömmu áður en síðari heimsstyrjöldin skall á. Þráðurinn var tekinn upp aftur árið 1951 og voru heimsþing haldin á þriggja ára fresti fram að 1972 en síðan á fjögurra ára fresti. Síðasta heimsþingið var haldið árið 1992 í Kenya en þingið 1996 verður haldið í Nýja Sjálandi. Aðeins einu sinni hefur heimsþingið verið haldið á Norðurlöndum, í Kaup- mannahöfn árið 1963. Nú áforma Norðmenn að bjóðast til að halda heimsþingið árið 2000 og vonandi hlotnast frændum okkar sá heiður en töluverð keppni er um að fá til sín þinghald þetta. Heimshlutadeildir Á vettvangi endurhæfingar eru verkefni og aðstæður í heiminum mjög breytilegar og þarfir fatlaðra og þjóða mjög margvíslegar á þessu sviði. Af þeim sökum hefur þótt eðli- legt að greina Alþjóðaendurhæfing- arsambandið í heimshlutadeildir. Aðalbækistöðin er í New York borg eins og áður segir en aðsetur heims- hlutadeildanna færist til eftir búsetu- landi þar til kjörins formanns viðkom- andi heimshlutadeildar. I dag eru heimshlutadeildirnar sjö talsins sem eru: Evrópudeild, Afríkudeild, Araba- deild, Asíu-Kyrrahafsdeild, Suður- Ameríkudeild, Norður-Ameríkudeild og að lokum er til á blaði svokölluð Karíbadeild, sem nær til eyjanna í Karíbahafinu, en allt bendir til þess að sú deild sé að lognast út af. Stjórnunarkerfið Miðað við um- fangið er stjórnun- arkerfi Alþjóðaend- urhæfingarsam- bandsins tiltölulega einfalt: Haldinn er aðalfundur árlega og þar hafa rétt til setu öll aðildarlönd- in en þau lönd ein hafa atkvæðisrétt sem eru skuldlaus við Alþjóðaendur- hæfingarsamband- ið. Á síðasta aðal- fundi, árið 1995, FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.