Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Side 25
ÁSKORUNMS FÉLAGSINS
TIL ALÞINGISMANNA
Kæri alþingismaður.
Stjórn MS félagsins skor-
ar á þig að beita þér fyr-
ir því að lögum verði breytt
þannig að tekjutrygging öryrkja
verði ekki skert
vegna þeirra
tekna sem makar
þeirra eða sam-
býlingar kunna
að afla sér.
Lítill eða eng-
inn ágreiningur
er um að í flest-
um tilvikum,
einkum í hópi
hinna lægst laun-
uðu, þarf tvær
fyrirvinnur til að
standa undir út-
gjöldum fjöl-
skyldunnar.
Gildandi lögum
er hins vegar
þannig háttað að
tekjutrygging öryrkja, sem að
hámarki getur náð kr. 24.439,-,
byrjar að skerðast um leið og mán-
aðarlaun maka hans fara fram yfir
kr. 36.220. Það þarf varla að lýsa
því hvílík áhrif svona lög hafa á
möguleika öryrkja til sambúðar og
hjónabands. Þeir sem eitthvað
þekkja til málefna öryrkja vita líka
að núgildandi lög stuðla verulega
að þeirri einangrun og einsemd sem
er hlutskipti alltof margra öryrkja
á íslandi. Til að halda reisn og
sjálfsvirðingu í samskiptum við
hugsanlegan maka mætti ætla að kr.
24.439,- væru algert lágmark þess
sem öryrkinn geti komist af með.
Hins vegar gera gildandi
lög ráð fyrir því að öryrkjar
taki ekki upp sambúð með öðrum
en þeim sem eiga kost á og eru
reiðubúnir til að taka þá algerlega
á sitt framfæri, fæða þá og klæða
eins og um böm sé að ræða.
Hin hliðin á þessu máli er auð-
vitað fólkið sem er í hjónabandi eða
sambúð þegar heilsutjónið á sér
stað. Ein og sér veldur örorkan oft
miklu álagi á fjölskylduna, ekki síst
makann, sem gjarnan þarf að sjá
einn um allt það sem áður var verk
beggja, heimilið, börnin og allar
útréttingar, auk þess að sinna
öryrkjanum sjálfum. Vegna hinna
lágu bóta sem öryrkinn fær þarf
makinn í ofanálag að bæta við sig
verulegri vinnu til að fjölskyldan
eigi fyrir sameiginlegum útgjöld-
um. Þessi viðbótarvinna verður í
flestum tilfellum til að svipta
öryrkjann allri tekjutryggingu.
Skerðingarákvæðin verða því
gjarnan til að kippa grundvellinum
endanlega undan hjónabandinu,
binda enda á þær framtíðarvonir
sem fólk gerði sér í góðri trú. Með
skilnaðinum verður makinn betur
settur og öryrkinn fær aftur sína
tekjutryggingu og þær uppbætur
sem einstæðingar eiga rétt á.
Verstir eru þessir skilnaðir þegar
öryrkinn þarf einnig að flytja frá
börnum sínum.
Engum kæmi til hugar að skerða
eða fella niður atvinnuleysisbætur
fólks vegna tekna sem maki þeirra
eða sambýlingur aflar sér, enda er
það ekki gert. Hins vegar hefur
ekki enn verið komið í veg fyrir að
löggjöfin fari allt öðruvísi með þá
sem eru atvinnulausir vegna heilsu-
tjóns, jafnvel þótt tekjutrygging
þeirra sé meira en helmingi lægri
en atvinnuleys-
isbætur hinna
fullfrísku. Er
tekjutap vegna
örorku ekki jafn
alvarlegt og það
atvinnuley si
sem e.t.v. varir
aðeins tíma-
bundið? Eðaer-
um við enn á því
menningarstigi
að álíta fatlaða
ekki hafa sömu
þarfir og annað
fólk þegar kem-
ur að hjónabandi
og fjölskyldu-
lífi?
Stjórn MS félagsins vonar að
þú sjáir þér fært að beita þér
fyrir því að öryrkjar sem eru í eða
hyggja á sambúð haldi að minnsta
kosti tekjutryggingu sinni, þótt
áfram missi þeir nokkurs í upp-
bóturn sem þeir ættu rétt á sem
einstæðingar. Það félagslega böl
sem stöðugt hlýst af núgildandi
lögum er eðli málsins samkvæmt
afar viðkvæmt, sársaukafullt og
niðurlægjandi, og af því tagi að ekki
er auðvelt fyrir þolendur að ræða
allar hliðar þess á opinberum vett-
vangi.
Með virðingu og þakklæti,
Stjórn MS félagsins
Es: Þessi áskorun MS félagsins
var birt í Morgunblaðinu á liðnu
ári. Hún á hins vegar fullt erindi
til lesenda og um leið ætti efni
hennar að vera brýnt baráttu-
mál svo bæta mætti.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25