Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Síða 34
Ásgerður Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri:
Ráðstefna um samstarf Evrópuþjóða
í málefnum fatlaðra
Hinn 7. febrúar hélt félags-
málaráðuneytið ráðstefnu
sem bar yfirskriftina: Sam-
starf Evrópuþjóða í málefnum fatlaðra
HELIOS II.
Tveir erlendir gestafyrirlesarar
voru á ráðstefnunni þeir Bernhard
Wehrens, framkvæmdastjóri í mál-
efnum fatlaðra Helios II og Philippe
Lamoral framkvæmdastjóri sérfræði-
skrifstofu Helios II.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, setti ráðstefnuna með nokkrum
velvöldum orðum og drap lítillega á
verkefni Helios II og reglur Sam-
einuðu þjóðanna um málefni fatlaðra
og sagði hann að Islendingar væru
ekki illa á vegi staddir með tilliti til
þessara tveggja málefna.
Bemhard Wehrens ræddi síðan um
stefnu Evrópusambandsins í
málefnum fatlaðra, starfsáætlun og
uppbyggingu Helios II. Wehrens
sagði að 37 milljónir fatlaðra væru
innan Evrópusambandsins. Sagði
hann að ný hjálpartæki hefðu mikil
áhrif, einnig væri meira hugað að
aðgengi en áður og fatlaðir hafðir
meira með í ráðum - meira hugað að
grasrótinni.
Starfsemi Helios II sagði hann að
byrjað hefði 1993 og væri það fjög-
urra ára áætlun. Sagðist hann vonast
til að þegar þeim lyki myndi margt
hafa breyst til batnaðar og hefði þegar
gert.
“Við lifum á tímum mikilla breyt-
inga”, sagði Wehrens, “og mikilvægt
er að Evrópusambandið fylgi vel eftir,
ekki síst í málefnum fatlaðra”.
Hann sagði að ekki væri hægt að
breyta lögum þátttökulandanna en
reynt að hafa áhrif.
Aðspurður um P-merkin sagði
hann að unnið væri að samræmingu
þeirra milli Evrópulanda og ætti það
að auðvelda fötluðum notkun þeirra
utan heimalands síns.
Að loknu kaffihléi talaði Philippe
Lamoral, framkvæmdastjóri.
Ásgerður Ingimarsdóttir.
Hann ræddi um markmið og sam-
vinnu Helios II við samtök fatlaðra í
Evrópu og önnur samtök og kynning-
ar- og upplýsingastarf sem fram færi
í tengslum við það. Notaði hann glær-
ur máli sínu til útskýringar og ræddi
markmið, afmörkun, greiningu og
skilgreiningu á aðgerðum sem þjóna
sama tilgangi. Sagði hann eitt af aðal-
markmiðum Helios II að miðla þekk-
ingu og verkkunnáttu milli þátttöku-
ríkja.
Reka þyrfti mikla upplýsingastarf-
semi í tengslum við það, einnig væri
samstarf við samtök fatlaðra mikil-
vægt. Nauðsynlegt væri að vekja at-
hygli almennings á málefnum fatl-
aðra. Þá væru upplýsingar um hjálp-
artæki og tæknilega aðstoð afar mikil-
væg en þær er að fá á svokölluðu
handynet-kerfi.
Upplýsti Lamoral síðan um skipt-
ingu þeirra 60 þemahópa sem miða
að samskiptum og rniðlun upplýsinga
á vegum Helios II. Sagði hann einnig
frá námskeiðum á vegum Helios sem
haldin verða á nokkrum stöðum í
Evrópu á þessu ári.
Björk Pálsdóttir ræddi síðan um
handynet-upplýsingakerfið
varðandi hjálpartæki fyrir fatlaða en
hún er fulltrúi Islands í nefnd er fjallar
um hjálpartæki og tæknilega aðstoð.
Sagði hún Tryggingastofnun vera
miðstöð handynet-kerfisins á íslandi
og byggðust upplýsingarnar upp á
ákveðinni flokkun, sem síðan væri
notuð til að finna upplýsingar í
kerfinu. Lýsti hún síðan hvemig hægt
væri að finna upplýsingamar.
Sagði hún að hægt væri að spyrja
frá hvaða landi menn vildu fá upp-
lýsingar og hvort nota ætti tækið á
heimili eða inni á stofnun, í sambandi
við skóla eða vinnu eða til að létta
daglegar athafnir. Hvort það væri
langtímaþörf eða skammtímaþörf og
hverjar væm reglur viðkomandi lands.
Sagði hún vera til um 26 þúsund
hjálpartæki og 14 þúsund framleiðslu-
aðila og væru um 300 myndrænar
lýsingar að finna á handynet-kerfinu.
Björk sagði að búist væri við að
handynet-kerfið héldi áfram að vera
til en engin ákvörðun hefði verið tekin
um dreifingu eða sölu á því og væru
það helst þeir sem tengdust Helios
sem hefðu aðgang að því.
Að loknu hádegishléi ræddi Helgi
Hróðmarsson, sem er fulltrúi
ÖBI á þessum vettvangi, um hlutverk
ráðgjafamefndar samtaka fatlaðra og
skipulag samskipta og miðlunar þekk-
ingar innan aðildarríkja Helios II.
Urdráttur úr erindi hans verður birtur
síðar í blaðinu svo ég fjölyrði ekki um
það. Einungis það að erindi Helga var
skýrt og skilmerkilegt og gaf glöggt
yfirlit um þessi mál, sem eru einn
frumskógur að vinna sig í gegnum.
Enginn á okkar vegum hefur sett sig
almennt eins vel inn í þessi mál og
Helgi.
Þá ræddi Kolbrún Gunnarsdóttir,
deildarstjóri, um blöndun fatlaðra í
almenna skóla.
Sagði Kolbrún markmið Islands og
Evrópusambandsins vera það sama í
skólastefnu. Sagði hún dæmi vera um
foreldra sem teldu sig fá betra náms-
tilboð í öðmm löndum en heimalandi
sínu. Kolbrún sagði því miður ekki
vera til hvorki grunnskóla-eða leik-
skólalög á ensku en verið væri að taka
34