Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Qupperneq 52
Ljósaböð, suðlæg sól og Bláa lónið
gefa besta raun í baráttunni
við psoriasis og exem
SPOEX- Samtök psoriasis- og exemsjúklinga - var
stofnað 15. nóvember 1972. Markmið samtakanna
er að fræða félagsmenn um báða þessa sjúkdóma og
auka skilning á þeim meðal almennings og eyða for-
dómum um þá. Barátta fyrir ýmsum hagsmunamál-
um sjúklinganna er einnig ofarlega á verkefnaskrá
félagsins. Félagsmenn nú nálgast 1.500.
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra eru með psoriasis, en
exemsjúklingar losa 100.
Psoriasis er talinn hrjá 2-4% jarðarbúa. Ekki er vitað
nákvæmlega um útbreiðslu sjúkdómsins á íslandi en
yíirleitt er talið að sjúklingar hér séu eigi færri en
6.000. Fjöldi exemsjúklinga er enn meira á reiki,
þótt hlutfallið 10%-12% sé oft nefnt, en afbrigðin af
sjúkdómnum eru fjölmörg og menn
mismunandi illa haldnir af hans völd-
um. Það á líka við um psoriasis að af-
brigði sjúkdómsins eru mörg og ólík,
en öll þróast þau á þann hátt að
hraður frumuvöxtur í efsta lagi húðar-
innar myndar hrúður sem getur orðið
allt að 3ja mm þykkur skrápur. Þá
getur psoriasis valdið gigt og er talið
að hún komi fram hjá um 7% sjúkl-
inganna. Dæmi eru þess að sjúkdómur-
inn valdi örorku.
Engin lækning er til við þessum sjúk-
dómum en ýmis lyf og meðferðir eru
til að halda einkennum niðri. Einna
áhrifaríkastar meðferðir eru ljósaböð
og sólböð, einkum í sól og sjó á suð-
lægum slóðum þar sem geislun sólar-
innar er mun meiri og lækningarmátt-
urinn þar af leiðandi meiri, og svo-
nefnd Bláalónsmeðferð sem felst í böð-
un í Bláa lóninu í eina klukkustund og
ljós að því loknu.
Göngudeild með sérhönnuðum ljósum
íyrir psoriasis- og exemsjúklinga opn-
aði SPOEX fyrir réttum 5 árum. Mynd-
irnar hér til hliðar eru af sjúklingi í
ljósameðferð, fótleggir sýndir fyrir og
eftir meðferð, frá Bláa lóninu, frá hóp-
meðferð í suðrænni sól.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma
göngudeildar 588 9620 og á skrifstofu
félagsins sama stað í síma 588 9666.