Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Side 8
Evrópusamstarf og samvinnu-
nefnd Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalagsins var svo næst á dag-
skránni og flutti Helgi Hróðmarsson
skýrslu þar um.
Hann lýsti í upphafi aðkomu
Öryrkjabandalagsins að Helios II -
verkefni á vegum Evrópusam-
bandsins að markmiðinu: full þátttaka
fatlaðs fólks í samfélaginu. Margar
nefndir og vinnuhópar eru þarna að
störfum og höfum við eftir föngum
tekið þar þátt s.s. í samráðsnefnd
ríkisstjórnarfulltrúa, samráðsnefnd
heildarsamtaka fatlaðra og nefndum
um atvinnumál, menntamál, íþróttir,
ferðaþjónustu og ferðalög. 26
íslendingar valdir í verkefnahópa
ýmiss konar. Styrkur fæst til ráð-
stefnuhalds hér í nóvember - ferðalög
fyrir alla. Helios II stendur út þetta
ár og ekki er að fullu frágengið hvert
framhaldið verður, en ljóst að svo
verður þó. Þá vék Helgi að samvinnu-
nefnd Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalagsins en í henni sitja: Guð-
mundur Ragnarsson, Ingibjörg Auð-
unsdóttir og Jóhann Arnfinnsson frá
Þroskahjálp og Ólöf Ríkarðsdóttir,
Haukur Þórðarson og Jóhannes
Ágústsson frá Öryrkjabandalaginu.
Framkvæmdastjórar samtakanna eiga
sæti á fundum einnig. Helgi nefndi
nokkur samvinnuverkefni: reiðnám-
skeið, útilífsskóla og hvers kyns
kynningarverkefni. Einnig að öðru
unnið s.s. tilfærslu málaflokks fatlaðra
frá ríki til sveitarfélaga, endurskoðun
laga um málefni fatlaðra og varnar-
baráttu gegn skerðingum stjórnvalda.
Helgi óskaði þess í lokin að hin
erlendu verkefni mættu skila hagnýt-
um árangri.
á var komið að drögum að stefnu-
skrá bandalagsins, en í fjarveru
formanns stefnumótunarnefndar
Emils Thóroddsen greindi Haukur
Þórðarson frá aðdraganda og starfi
stefnumótunarhópsins, en að því verki
komu fulltrúar frá öllum aðildar-
félögum bandalagsins. Stefnumótun-
in er í 5 aðalköflum:
A. Framtíðarsýn
B. Markmið
C. Tilgangur
D. Helztu verkefni og áherzlur
E. Grundvallaratriði önnur.
Nokkrar ábendingar komu fram
og skyldu til greina teknar. Drögin
að stefnuskrá með verðandi breyting-
um framkomnum samþykkt sam-
hljóða. Stefnuskráin annars birt hér í
blaðinu.
Sigurrós M. Sigurjónsdóttirfjallaði
síðan um störf trygginganefndar
bandalagsins þar sem hún á sæti ásamt
Helga Seljan og Jóhannesi Ágústs-
syni. Nefndin hefur haldið allmarga
fundi og rætt fjölmörg atriði. Örorku-
matið hefur mjög til umræðu verið og
áherzla á læknisfræðilega hlið þess.
Hin óeðlilegu kjör og réttindi 65%
öryrkja eru alls óviðunandi. Einföld-
un bótagreiðslna og sameining bóta-
flokka rædd talsvert. Nefndin benti á
mikið bótalegt ranglæti gagnvart ein-
stæðum öryrkjum með barn eða börn
á framfæri. Sömuleiðis hefur nefndin
eðlilega rætt skerðingar þær sem að
undanförnu hafa yfir dunið. Nefndin
mun starfa áfram og leggja niðurstöð-
ur sínar fyrir stjórn Öryrkjabanda-
lagsins.
á fóru fram kosningar í fram-
kvæmdastjórn. Ur stjórn skyldu
ganga varaformaður, ritari og með-
stjórnandi svo og skyldi kjósa vara-
menn í framkvæmdastjórn. Sam-
hljóða voru hin sömu endurkjörin:
Haukur Þórðarson varaformaður,
Þórey V. Ólafsdóttir ritari og Ólafur
H. Sigurjónsson meðstjórnandi. Til
vara voru þær kjörnar: Elísabet Á.
Möller, Valgerður Auðunsdóttir og
Dagfríður Halldórsdóttir.
Endurskoðendur voru endurkjörn-
ir: Vigfús Gunnarsson og Jóna
Sveinsdóttir.
Alyktanir aðalfundar voru því
næst á dagskrá. Ásgerður Ingi-
marsdóttir kynnti 9 ályktanir og gerði
góða grein fyrir efni sem aðdraganda.
Að fenginni einni breytingartillögu
voru allar ályktanirnar samhljóða
samþykktar, en þær eru birtar hér í
blaðinu. Sjálfsbjörg - landssamband
lagði fram þá tillögu að Öryrkja-
bandalagið hefði hagfræðing á sínum
snærum, sem gæti unnið vissa saman-
burðarvinnu fyrir bandalagið varðandi
kjör öryrkja og annarra þjóðfélags-
hópa svo og verið bandalaginu og
félögum þess til ráðgjafar um ýmis
mál. Að fengnum jákvæðum undir-
tektum var samþykkt að vísa málinu
til framkvæmdastjórnar bandalagsins
til frekari athugunar.
íslenzkri getspá var sent hlýlegt
heillaskeyti í tilefni 10 ára afmælisins
og tóku fulltrúar undir með lófataki.
• •
Onnur mál voru svo í lokin. I
fastanefndir bandalagsins næsta
starfsár voru þessi kjörin. Laganefnd:
Haukur Þórðarson, Þórey V. Ólafs-
dóttir, Emil Thóroddsen.
Trygginganefnd: Helgi Seljan,
Sigurrós M. Sigurjónsdóttir og
Jóhannes Ágústsson.
Atvinnumálanefnd: Þorsteinn Jó-
hannsson, Hafliði Hjartarson og Val-
gerður Auðunsdóttir.
Skipulagsnefnd: Björn Hermanns-
son, Ólafur H. Sigurjónsson og Helgi
Seljan.
Ragnar R. Magnússon minnti á 15.
október - Dag hvíta stafsins. Björn
Hermannsson velti upp spurningunni
um réttmæti þjónustusamninga milli
8