Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Síða 9
félaga fatlaðs fólks og hins opinbera.
Helgi Hjörvar lagði áherzlu á að fatlað
fólk talaði fyrir sig sjálft. Blindra-
félagið hefði þá reglu íheiðri. Blindir
vildu vinna með fólki en ekki að unnið
væri fyrir þá. Olöf sagði mikilvægt
að fatlað fólk og ófatlað ynni sem bezt
saman og auðvitað ætti fatlað fólk að
vinna að eigin málum.
Að loknum aðalfundarstörfum þá
tók til máls forstjóri Trygginga-
stofnunarríkisins Karl Steinar Guðna-
son, en hann hafði verið beðinn að
flytja erindi um tryggingamál. Var
gerður afar góður rómur að erindi
hans afar fróðlegu og á mörgu þar
tekið, og hér að því helzta vikið. Karl
Steinar kom víða við í máli sínu og
verður hér aðeins minnt á nokkur
atriði: Hann minnti á sögu og tilurð
Tryggingastofnunar ríkisins sem varð
60 ára á þessu ári, andstöðuna gegn
slíkri samhjálp fyrr á öldinni og nauð-
syn þess að halda vel vöku sinni.
Hann lagði áherzlu á að innan veggja
stofnunarinnar ríkti hlýtt hugarfar,
frumkvæði og fagmennska í öllum
afgreiðslum. Hann greindi frá samn-
ingnum við Háskóla Islands, þar sem
TR kostar nú stöðu rannsókna-
prófessors við háskólann, læknadeild
til að kanna orsakir örorku og fötlunar.
Benti á að öryrkjum fjölgaði um 7,3%
árlega sem þyrfti rannsóknar við.
Karl Steinar vék þessu næst að hinu
vandasama hlutverki lækna varðandi
vottorðagjöf til TR. Minnti á að
menntun og færni íslenzkra lækna
væri mikil, en í vottorðagjöf væru þeir
ekki óskeikulir fremur en aðrir. Vektu
stundum falskar vonir, gæfu einnig
vottorð sem hvergi tækju á megin-
máli, undantekningar vissulega en
væru þó til því miður. Hann sagði frá
námskeiðum fyrir lækna sem trygg-
ingayfirlæknir mótaði og stýrði,
læknahandbók væri í undirbúningi og
bráðlega yrði í notkun tekið nýtt
tölvukerfi í læknadeild. Karl Steinar
greindi frá ráðningu félagsráðgjafa
sem einkum sinnti sjúkum og fötl-
uðum börnum.
Starfsfólk verður sent á námskeið
til að læra táknmál svo samskipti
við heymarlausa megi sem eðlilegust
vera. Hann minnti á útboð á hjálpar-
tækjum sem sparað hefðu tugi millj-
óna hjá stofnuninni. Þá vék hann að
hinni lélegu húsnæðisaðstöðu TR ekki
sízt sem afgreiðslustofnun fyrir fatl-
aða, 35 starfsmenn Byggðastofnunar
hafa jafn mikið rými og 190 starfs-
menn TR. Þakkaði Öryrkjabanda-
laginu og Sjálfsbjörg fyrir stuðnings-
ályktanir hvað þetta varðar. Þá kom
Karl Steinar inn á aðhaldsaðgerðimar
nú og “sparnað” í því sambandi.
Alvarlegast væri ef stjórnmálamenn
skildu ekki þarfir og nauðsyn hinna
Hlerað í hornum
Litli snáðinn var í heimsókn hjá
frænku sinni. Um kvöldið las hann
bænir sínar, en þegar að signingunni
kom brá frænkunni í brún, því í stað
hinna venjulegu signingarorða sagði
snáði: Einn, tveir, þrír, fjórir - og þá
er ég búinn góði guð.
fötluðu, þá væri voðinn vís. Þá yrði
forgangsröðun og gildismat ekki sem
skyldi. Óneitanlega hefðu aðhalds-
aðgerðir undanfarið haft sín áhrif á
hag fatlaðra og það að rjúfa tengsl
launa og bóta hefði skapað óöryggi
um framtíðina.
Karl Steinar taldi brýnt að ör-
yrkjar fengju meira svigrúm til
að bæta tekjur sínar ef þeir mögulega
gætu. Hann vék í því sambandi að
bótastiginu sem vissulega væri lágt,
en kauptaxtar verkalýðsfélaga væru
undarlega lágir, því miður. Taldi ótví-
rætt að hagsmunasamtökin þyrftu
mjög á verði að vera og minnti á þá
staðreynd að TR setti ekki lög og
reglugerðir heldur framkvæmdi það
sem stjómvöld hafa ákveðið.
Karl Steinar lagði áherzlu á að
Öryrkjabandalagið hefði náið sam-
band við verkalýðshreyfinguna og
vísaði til góðrar reynslu þar af í áranna
rás. Baráttan væri eilíf og árangur
fengist ekki nema með árvekni og
hæfilegri ýtni.
I lokin vék hann svo að starfi
nefndar um endurskoðun almanna-
trygginga.
Lokaorðin voru þessi: Styrkur
öryrkja eflist með sterkum talsmönn-
um og þróttmiklum hagsmunasam-
tökum. Það má hvergi láta deigan
síga. Þá mun árangur nást, þá mun
sífellt og eyðileggjandi öryggisleysi
breytast. Þá verða hnífar niðurskurð-
arins bitlausir og framtíðin bjartari.
Karl Steinar svaraði svo fyrirspurnum
greiðlega.
s
Olöf Ríkarðsdóttir sleit svo fundi
kl. 17.35. Þakkaði Karli Stein-
ari sérstaklega og færði um leið þakkir
fyrir góða samvinnu við Trygginga-
stofnun í áranna rás. Þakkaði starfs-
mönnum fundarins sín vel unnu störf.
H.S.
**
Tveir menn voru allnokkuð við skál
og sá þeirra sem austur í sveitum bjó
settist undir stýri í bifreið sinni og
bjóst til að aka af stað. “Heldurðu að
þetta sé nú ráðlegt?”, spurði
bæjarmaður. “Uss, þetta verður allt í
lagi. Þetta er svo langt að það verður
runnið af mér, þegar ég kem heim.”
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9