Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Side 43
Jóhannes Albert Sævarsson hdl.:
Leiðbeiningar varðandi
skattaframtalið
Til lögfræðiþjónustu Öryrkja-
bandalags fslands hafa
öryrkjar í auknum mæli leit-
að í vandræðum sínum vegna álagðs
tekjuskatts og útsvars utan stað-
greiðslu. Urræði lögfræðiaðstoðar
ÖBÍ hafa verið þau að óska skriflega
eftir lækkun á tekjuskattsstofni hjá
Ríkisskattsstjóra (RSK) og lækkun
eða niðurfellingu á álögðu útsvari hjá
viðkomandi sveitarfélagi. Eðlilegast
væri að öryrkjar sjálfir sendu um-
sóknir þessa efnis til RSK og sveitar-
félaganna með framtali sínu strax í
upphafi, en ekki eftirá þegar álagning-
in hefur farið fram og erfitt getur
reynst að fá henni breytt. Þannig
myndu yfirvöld þurfa að taka afstöðu
til umsóknarinnar strax við álagning-
una. Ef þessum ráðleggingum yrði
fylgt myndi það spara öryrkjum fyrir-
höfn og óþarfa áhyggjur. Því verða hér
birt form tveggja umsókna sem
öryrkjar ættu framvegis sjálfir að rita
og láta fylgja skattframtali sínu.
Það skal tekið fram að lækkunar-
heimildir þessar eru sjálfstæðar og
byggjast á aðskildum lagaákvæðum.
Tvær sjálfstæðar umsóknir þarf því til.
Önnur umsóknin beinist til RSK en
hin til viðkomandi sveitarfélags. Heft-
ið þær síðan innan á skattframtalið.
(Öll nöfn, kennitölur og heimilis-
föng eru tilbúningur)
Form fyrir umsókn um lækkun
eða niðurfellingu á tekjuskatts-
stofni skv. 66.gr. Iaga nr. 75 frá
1981.
Ríkisskattstjóri
Reykjavík, lO.febrúar 1997
Laugavegi 166
150 REYKJAVÍK
Efni: Umsókn um lækkun á
tekjuskattsstofni.
Við undirrituð hjón, Anna Jens-
dóttir, kt. 291236-4239, Grænalæk
190, Reykjavík og Pétur Jósefsson,
kt. 250331-6479, sama stað, sem
bæði höfum verið metin til 75%
örorku af Tryggingastofnun ríkisins
Jóhannes Albert
Sævarsson.
(TR), förum þess á leit við embætti
yðar að heimildarákvæðum 66.gr.
laga um tekju- og eignaskatt nr. 75/
1981 um lækkun skattstofna verði
beitt við álagningu embættisins á
okkur hjónin.
Rökstuðningur okkar fyrir um-
sókninni er sá að við höfum aðeins
örorkulífeyri frá TR okkur til fram-
færslu, auk óverulegrar mánaðar-
greiðslu til Péturs úr Lífeyrissjóði
sjómanna. Við búum í leiguhúsnæði.
Það myndi reynast okkur illmögulegt
að standa undir frekari álögum.
Örorkulífeyrir Önnu frá Trygg-
ingastofnun ríkisins nam að meðaltali
kr. 51.000,- á mánuði á síðast liðnu
ári, en hjá Pétri kr. 49.000,-. Auk þess
fær Pétur kr. 8.000,- á mánuði úr Líf-
eyrissjóði sjómanna. Þessu til stað-
festu fylgja ljósrit af launaseðlum
okkar frá TR og Lífeyrissjóði sjó-
manna fyrir mánuðina nóvember-
desember 1996 og janúar-febrúar
1997.
Einnig fylgir með umsókn þessari
síðasta endurmat Tryggingastofnunar
ríkisins á örorku okkar.
Virðingarfyllst,
undirritun hjónanna
Hjálögð eru eftirfarandi gögn:
- Launaseðlar frá TR vegna nóv.-des.
96 og jan.-feb. 97
- Launaseðlar frá Lífsj. sjómanna
vegna nóv.-des. 96 og jan.-feb. 97
- Síðasta endurmat TR á örorku okkar
hjóna dags. íjúlí 1996
Form fyrir umsókn um lækkun
eða niðurfellingu útsvars skv.
heimild í l.mgr. 25.gr. laga nr. 4 frá
1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Borgarráð Reykjavíkur
Reykjavík, lO.febrúar 1997
Ráðhús Reykjavíkur
101 Reykjavík
Varðar: Umsókn um niðurfell-
ingu eða lækkun á álögðu útsvari.
Við undirrituð hjón, Anna Jens-
dóttir, kt. 291236-4239, Grænalæk
190, Reykjavík og Pétur Jósefsson,
kt. 250331-6479, sama stað, sem
bæði höfum verið metin til 75%
örorku af Tryggingastofnun ríkisins,
förum þess á leit við Borgarráð
Reykjavikur að það beiti heimild í
l.mgr. 25.gr. laga nr. 4 frá 1995 um
tekjustofna sveitarfélaga og að lækk-
að verði eða fellt niður álagt útsvar
okkar hjóna.
Rökstuðningur okkar fyrir um-
sókninni er sá að við höfum aðeins
örorkulífeyri frá TR okkur til fram-
færslu, auk óverulegrar mánaðar-
greiðslu til Péturs úr Lífeyrissjóði
sjómanna. Við búum í leiguhúsnæði.
Það myndi reynast okkur illmögulegt
að standa undir frekari álögum.
Örorkulífeyrir Önnu frá Trygg-
ingastofnun ríkisins nam að meðaltali
kr. 51.000,- á mánuði á síðast liðnu
ári, en hjá Pétri kr. 49.000,-. Auk þess
fær Pétur kr. 8.000,- á mánuði úr Líf-
eyrissjóði sjómanna. Þessu til stað-
festu fylgja ljósrit af launaseðlum
okkar frá TR og Lífeyrissjóði sjó-
manna fyrir mánuðina nóvember-des-
ember 1996 og janúar-febrúar 1997.
Ákvæði það sem vísað er til hér
að ofan veitir sveitarstjórnum fullt
sjálfdæmi til niðurfellingar á álögðu
útsvari þeirra er nutu á tekjuárinu bóta
skv. II. og IV. kafla laga um almanna-
tryggingar. Með ákvæði þessu er
gengið lengra en í almennri heimild
66.gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og
eignaskatt, en þar er lífeyrisþega
Sjá næstu síðu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
43