Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 51
Þórdís Klara
Ágústsdóttir:
Jól
Hjarta mitt hlustar.
Það heyrir svo margt,
það heyrir svo margt sem meiðir.
Það heyrir um hatur
og hörmungar stríðs,
um ósætti manna á meðal
- og mannvonsku.
Það svíður, er svik og prettir
svívirða heiðarleikann
og særa siðferðiskenndina
í sjálfri mér.
Hjarta mitt hlustar.
Það heyrir um öfund
og illindi manna á meðal,
um þráhyggju og þunglyndi,
og þjakandi kvíða
- og sorgir.
Um lygi og leynimakk,
leti og sinnuleysi
í samskiptum.
Um særandi orð og athafnir
þar sem vonir og væntingar
verða að engu.
Hjarta mitt hlustar.
Það heyrir boðskap,
boðskap um frið og frelsi
og fögnuð - sem engu líkist.
Það finnur friðinn
flæða sem Ijúfan andblæ
Guðdómsins.
Það er Guðs sonurinn sjálfur
sem segir:
“Komið til mín - allir
þér sem erfiðið
og þunga eruð hlaðnir
- ég mun veita yður hvíld.”
Hjarta mitt hlustar.
í húmi skammdegis,
þegar niðamyrkur næðir
og nálgast jól.
Eins og græðandi smyrsl á sárin
sendir Guð okkur frelsarann
Jesúm Krist.
Hann, sem þekkir þjáningu
og þarfir mannanna barna.
Vegna þess að hann vildi
verða sem lítið barn
- mannsbarn.
Lifa og læra - mannsins
leyndustu þrár og vonir,
og hvernig hjartað hlustar
hjartað - sem Guð skapaði.
Hjarta mitt hlustar.
Hlustar eftir Guði
Kristur er að koma
sem hvítvoðungur
- vafinn reifum.
Hann eyðir óttanum
innra með mér,
og friður hans flæðir
eins og ferskur andblær
Guðdómsins,
inn í hjarta mitt - anda minn,
alla veru mína.
Heilagur ert þú - Drottinn
allsherjar.
Hjarta mitt hlustar.
Það heyrir lofsöng - englasöng:
“Dýrð sé Guði í upphæðum,
friður á jörðu og velþóknun
yfir mönnunum.
Drottinn er í nánd.”
Það heyrir hamingjuboðskap:
“Því yður er í dag
frelsari fæddur
sem er Kristur Drottinn - í borg
Davíðs.”
Hallelúja- hallelúja.
Lofaður sé lífsins og Ijóssins
Guð og faðir
fyrir son sinn - Jesúm Krist
Hjarta mitt hlustar.
Það hrópar til Drottins
og biður um blessun
biður um frið
á meðal mannanna.
Kallar á kærleika - í stað
haturs,
kærleika án skilyrða,
visku og vísdóm
til valdsmanna þjóða.
Kallar til kristinna manna
að koma á framfæri
fagnaðarboðskap friðarins
um frelsarann Jesú,
sem fæddist á jólum - í jötu.
Játumst honum.
Hjarta mitt hlustar.
Herra minn, og Guð minn.
“Tala þú Drottinn - þjónn þinn
heyrir.”
Ég vil þjóna þér
á þessari jörð,
bera boðskap friðarins,
biðja fyrir sjúkum - og
sorgmæddum.
Eyða sundrung og ósætti
því orð þitt segir:
“Verið ávallt glaðir
vegna samfélagsins við
Jesúm.
Ljúflyndi yðar verði kunnugt -
öllum mönnum
Drottinn er í nánd.”
Hjarta mitt hlustar
og heyrir orðin:
“Hjarta yðar skelfist ekki
né hræðist.
Trúið á Guð - trúið á mig.
Minn frið gef ég yður.”
Ég kem að jötu þinni,
Jesús minn.
Jólin eru komin,
jól mín og allra þeirra,
sem gefa Guði hjartað
- hjarta, sem hlustar
og hlýðir Guði sínum,
sem gaf líf
og frið og Ijós
á jólum - Amen.
Þórdís Klara Ágústsdóttir,
Höfundur er form. KFUK
í Reykjavík.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
51