Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Qupperneq 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
1. TÖLUBLAÐ
11. ÁRGANGUR 1998
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot og útlit:
K. Fjóla Guðmundsdóttir.
Prentun:
Steindórsprent Gutenberg
Forsíðumynd:
Þór Jónsson
Aðrar ljósmyndir:
Hafliði Hjartarson o.fl.
Frá ritstj óra
Ellefta útgáfuár Fréttabréfs Öryrkjabandalagsins er hafið. Enn
eitt eintakið berst ykkur nú, það fertugasta og fyrsta í röðinni.
Horft til baka um þessi rúmlega 10 ár er þökkin efst í huga ritstjóra
fyrir allt það efni er hann hefur fengið í blaðið frá svo ótalmörgum,
ágætum höfundum. Jafnljóst er svo hitt að helsti galli þess er þó sá,
hve ritstjóri heldur oft á penna af margvíslegu
tilefni, sem eflaust léti mörgum nákomnari betur
að greina frá eða reifa rösklega.
Það eitt er hins vegar dýrmætt að mega á einum
stað finna svo mætan fróðleik um atburði sem
ávinninga, um hina ævarandi baráttu svo og fræð-
andi greinar um hin margvíslegu málefni.
Það sem mistekist hefur og hlýtur að skrifast á
reikning ritstjóra er að gera blaðið að virkum lif-
andi vettvangi hins almenna félaga í okkar mörgu ágætu félögum.
Menn hafa ekki, með örfáum undantekningum, fundið ritgleði sinni
farveg á síðum þessa blaðs, sem á þó að vera þeirra málgagn umfram
annað. En það kostar sitt að gefa út og senda sextán þúsundum blaðið
án endurgjalds.
Áætlaður kostnaður þessa árs að öllu óbreyttu er 6,5 millj. kr.,
sem þýðir 1/8 allra útgjalda bandalagsins. Við þessar aðstæður er
eðlilegt að spymt sé við fótum og spurt um mikilvægi og þýðingu
þessarar fjárhæðar í þetta eina verkefni. Til greina kemur að skoða
þrjú blöð á ári í stað fjögurra, harðar verði gengið fram í að einungis
skuldlausir félagar fái blaðið, fækkað verði blaðsíðutali hvers eintaks
o.s.frv. Ljóst er að á tímamótum er staðið og skylt að skoða alla kosti
þegar um slíkar fjárhæðir er að tefla. Til þess er ritstjóri reiðubúinn,
en áfram vill hann þó mega trúa því að blaðið sé bandalaginu brýn
nauðsyn og af því góða að gefa það út.
Helgi Seljan
Helgi Seljan
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra...........................2
Yfirfærslan, gráa hættan og réttindin...3
Verðug athygli á vasapeningum vakin.....4
Andlit Styrktarfélagsins................5
Útskrift hjá Starfsþjálfun fatlaðra....10
Ferlimál á alþjóðadegi fatlaðra........11
Umsjón.................................12
Helios II - þátttaka íslands...........15
Hjálpartækjamiðstöðin heimsótt.........16
SÍBS sótt heim.........................18
Tvær ágætar athafnir...................21
Frá FAAS...............................22
Hlerað............23 24 30 33 35 37 43 47
Kveikjum ljós..........................24
Ávarp á samstöðuhátíð í Stykkishólmi.... 25
Ástkæra ylhýra málið...................25
Félagslegt tryggingakerfi..............26
Samráðsfundur..........................28
Af stjórnarvettvangi..................29
Búktalari Halaleikhópsins.............31
Heimsókn umboðsmanns..................32
Úr minningaþáttum Bergs...............33
Yfirborðsmennska......................34
írafárið..............................36
Samstöðuhátíð.........................38
Geðheilsa bamsins þíns................39
Um starfsemi Foreldrafélags...........40
Skyggnst um gættir í Gerðubergi.......42
Velvirðingar beðizt...................43
Listasmiðjan sótt heim................44
Styrk þú mig..........................45
Hjúskaparmál öryrkja..................45
Gamlar gátur..........................46
Meginregur SÞ á Alþingi...............46
Bundið mál og laust...................47
Klúbburinn Geysir.....................48
Snillingurinn.........................48
Fjögur ljóð...........................49
í brennidepli.........................50
2