Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 13
leysti þá óvart vind og farþegar litu þá óhýru auga. Stuðningsfulltminn sagði strangur við gerandann: “Hvað segir maður?” Þá gellur við í hinum: “Amen”. Faraldsfræði og algengi einhverfu á íslandi nefnist grein Evalds Sæmundsen sálfræðings á Greining- arstöð. Hann segir þar frá úrtaks- aðferðum og skráningaraðferðum faraldsfræðinnar. Evald ræðir svo um algengi ein- hverfu hér á landi, en hann hefur einmitt rannsakað það rækilega ásamt öðrum. M.a. sem þar kemur fram er að einhverfum hefur fjölgað umfram það sem nemur eðlilegri fjölgun landsmanna. I rannsókn ’84-’92 var algengi 7 af 10.000 en 10.4 ef með voru teknir þeir með ódæmigerða einhverfu. Pétur Lúðvígsson, bamataugasjúk- dómalæknir fjallar í grein sinni um einhverfu og flogaveiki. Orsakir einhverfu eru óþekktar, einkenni benda til viðtækra truflana á starfsemi heilans. Flog og flogaveiki algengari hjá einhverfum en öðrum, einkum kippaflogaveiki ungbarna eða svo- nefntáunniðflogamálstol. Þaðvekur athygli hins leika þegar Pétur segir að hvorki flogaveiki né einhverfa séu sjúkdómar í hefðbundnum skilningi þess orðs. Og gullkorn: Einhverfur nemandi var að borða og var óðamála með munninn fullan af mat. “Renndu nið- ur áður en þú talar,” sagði kennarinn. Nemandinn renndi niður buxnaklauf- inni og hélt áfram að tala. Svanhildur S vavarsdóttir talmeina- og boðskiptafræðingur skrifar: Grein- ingin er einhverfa en hvað svo? Lýsir fyrst alþjóðlegri skilgreiningu á ein- hverfu. Segir svo að boðskiptahöml- un barna með einhverfu sé afar flókin og málskilningur afar takmarkaður. Veldur því að barnið virðist vera heyrnarlaust. Nauðsynlegt sé að tengja orðin við sjónræna mynd. Þjálfunin, meðferðin verður umfram allt að vera lifandi og fjölbreytileg, segir Svanhildur. Að ná athygli barns- ins á einhvern máta er algjör nauðsyn, lengja athyglina, skipta athyglinni. Eftirherma barnsins er í raun um leið fyrstu boðskipti og merki um sameinaða athygli. Skyntruflanir hjá einhverfum og nreðferð við þeim er greinarheiti Jarþrúðar Þórhallsdóttur sjúkraþjálf- ara og fv. form. félagsins. Hún bendir á að vitað sé nú að heilastarfsemin er trufluð, að úrvinnsla og samhæfing er ekki sem skyldi, að truflanir á skynjun eru alvarlegar. Hún leggurút af þessu, ræðir um S.I. Sensory Intergration - samhæfingu skynsviða - truflun á henni veldur að sjálfsögðu alvarlegri röskun. Hún segir svo hinar einstöku reynslusögur út frá truflunum skyn- sviða: sjón, heyrn, snerting, lykt, bragð. Dæmi: “Það sorglega við heyrn mína var að rödd föður míns var stórfurðuleg - eins og verið væri að skjóta úr byssu”. Hún fer svo yfir í að lýsa S.I. með- ferðinni, sem felst m.a. í því að örva það svæði í heilanum, sem stýrir með- vitund og athygli - örva snerti- og þrýstiskyn eða stöðuskyn. S.I. með- ferðin oft notuð með annarri hreyfi- þjálfun. Rætt er við Svanhildi Arnadóttur, móður Andra Freys, 13 ára ein- hverfs drengs. Hún segir sögu hans allt frá fyrstu einkennum einhverfu, hún ræðir einnig mikilvægi Umsjón- arfélags einhverfra. Hún bendir á sérstakan orðaforða og vissar áráttur, nefnir m.a. að hann kunni alla stjömu- gjöf Söngvakeppninnar (Eurovision). Allt verður að vera í föstum skorðum. Áhyggjur móðurinnar eru aðallega varðandi framhaldsnám Andra, þeim deilir hún með öðrum foreldrum ein- hverfra barna, því engin framhalds- skóladeild er til fyrir þau í skólum. Varpar því fram hvort möguleiki sé á stofnun sérdeildar við einhvern fram- haldsskólann. Guðmundur Már Björgvinsson forstöðumaður sambýlis við Hólaberg skrifar um sambýli einhverfra. Sam- býlin eru rekin á vegum félagsmála- ráðuneytis. Unnið er eftir TEACCH aðferðafræðinni, en TEACCH - stend- ur fyrir: Meðferð og menntun fyrir einhverfa og aðra með boðskipta- hamlanir, helsta markmiðið að fólk öðlist meiri virkni, myndrænar fram- setningar mikið notaðar. Guðmundur Már lýsir svo daglegri starfsemi, stoðþjónustu, vinnu, bíla- málum og fullorðinsfræðslu. Stöðu- heimildir við sambýlin eru alls 25,1. Guðmundur Már ræðir svo framtíð- ina, telur þetta búsetuform henta mjög vel fyrir flesta, kannski beri að stefna að sjálfstæðri búsetu hjá sumum. Skipulögð kennsla nefnist grein Sigrúnar Hjartardóttur. Skipulögð kennsla tekur til allra þátta, sjónrænar vísbendingar nýttar, sóttar hugmyndir til TEACCH - líkansins. Sjónrænt, skipulegt umhverfi gagnast mjög vel við kennslu margra annarra barna er þurfa á sérstökum stuðningi að halda, sömuleiðis nýtist það vel þeim sem ekki eru orðnir læsir áritmál. Reynsl- an hér af almennt mjög góð. Sigríður Lóa Jónsdóttir sálfræð- ingur á þarna greinina: Atferlis- meðferð barna með einhverfu. Hagnýt atriði: Þar vekur hún at- hygli á því að þeir sem greinast með einhverfu búa flestir við umtalsverða fötlun til lífstíðar. Rannsakað hefur verið hverju markviss meðferð skilar, FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.